Allt um íþróttir - 20.05.1968, Síða 3
ALLT UM ÍÞRÓTTIR — 3
. ■ ------------—1—; -t-"'/■■tfv
VIÐTAL VIKUNNAR
GUÐMUNDUR GÍSLASON:
Keppi a&
mast til Mexico
Það er' að sjálfsagðu alger
óþarfi- að kynna sérstakilega
Guðmund Gíslason mesta af-
reksmann íslendiniga í sundi til
t>essa, svo þekktur er hann
fyrir afrek sín. En Guðmund-
ur er ekki aðeins þekktur fyrir
aifrek sín, heldur og fyrir sér-
staklega prúða og . íþrótta-
mannslega framkomu. Guð-
mundur er. sá íþróttamaður
okkar sem að ,sönnu er fyrir-
mynd úngu kynslóðarinnar og
vafaiaust hefur margt a'f því
unga sundfólki okkar sem nú
vekur athygli á sér sett sér
það mark að feta í fótspor
(hans.
Guðmundur hefur þjálfað
og keppt í sundi í meira en
áratug og býr si;g nú undir
að taka þátt í Olympíuleikun-
u,m í Mexico í haust. En hann
er ekki aðeins virkur íþrótta-
maður heldur líka virkur for-
ustumaður í íslenzkum sund-
málum. í fimm ár hefur hann
setið í stjórn Sundsambands
fslands. Það bar því vel í
veiði fyrir blaðið þegar það
hitti hann á förnum vegi fyrir
stuttu og fékk hann til þass
að spjalla um stórmál sund-
fólksins. Og að sjálfsögðu vild-
um við heyra álit hans á þeim
ánægjulega árangri sem sund-
fólkið heifur náð að undan-
förnu:
— Já, hjá okkar bezta sund-
fólki hefur orðið mifcil fram-
för á síðasta ári eins og síð-
asta ÍR-mót bar með sér. Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir er nú
tekin til við æfingar á ný eft-
ir tveggja ára fjarveru og það
má fyllilega búast við þvf að
hún bæti sig enn á næstunni.
Einnig hef ég mikla trú á
Leikni Jóussyni. Hann hefur
um stuft skeið æift aö réðii og
GUDMUNDUR
GÍSLASON
Fæddur: 19. jan. 1941 í
Reykjavík. Hefiztu íþrótta-
afrek: Margfaldur íslands-
meistari í sundi — hefur
sett 99 íslandsmet og 10
sinnum jafnað gildandi
met — hlaut silfurverðlaun
á Norðurlandameistaramót-
inu 1907 — tók þátt í 01-
ympíu'leikunum í Róm 1960
og Tokío 1964 og í Evrópu-
meistaramótunum 1962 í
Leipzig og 1966 í Utrecht.
þegar náð glæsi'legum árangri
eins og íslandsmetið sem hann
settí um daginm sýnir, Svo
eigum við margit efnilegt sund-
fólk sem á eftir að sýna hvaö
það getur. Svo hefur breidd-
in í sundinu vaKÍð til rnuna
upp á síðkastið og er það m,ik-
ið gleðiefni. Aftur á moti' er-
uim við í Reykjavík óánægð
yfir því að þátttakan utan af
landi í sundmótunum hérskuli
ekki vera meiri en hún er
í raun og veru, því við vitum
að þar er margt gott sund-
fólk.
Hver eru helztu verkefni
ykkar í sumar Guðmundur?
— Sundmeistaramót Isfands
fer fram um miðjan júnímán-
uð og svo ætlum við að reyna
okkur við íra í landskeppni
í byrjun júlímánaðar. Þetta
eru höfuðverkefnin í sumar og
við stefnum að því að vera
í mjög góðri þjálfun um það
leyti t>g reynum þá um leið
að ná þeim lá.gmöi’kum sem
sétt hafa verið fyrir þátttöku
í Olympíuleikunum í haust.
Er það ekki takmark þitt að
komast á Olympíuleikana í
Mexico?
— Jú auðvitað, en.þáð hefur
heyrzt að það eigi aðeins að
senda tvo keppendur á leik-
ana og þessi vitneskja dregur
úr áhuganum á því að búai sig
vel undir hugsanlega þátttöku.
Að mínu áliti væri það réttara
að ganga með ákveðni tilverks
og hvetja íþróttafólkið til æf-
inga heldur en að telja þátt-
töku fyrirfram þýðiugarlausa,
þ.e. að íþróttafólk okkar nái
ekki sómasamlegum aifrekum á
leikunum.
Hafa íslendingar möguleika
á því vera framarlega í sundi
ef sendir yrðu?
— Það ber náttórulega að
athuga það að sundfóik ann-
arra þjóða hefur verið þjálfað
mjög vel fyrir leikana og í
þeim tilgangi sent til Mexico
eða til Pyrenneafj alta til þess
að vanjast hinu þuuna lofts-
lagi í México og keppa við
þau skilyrði. Eins og allir vi'tiá
'hefur ekki sá háttur vefið halfö-
ur á hér. Meðal annairs þess
vegna tel’ ég áð við getuim að-
'eins keppt 'i stuttu vagialengd-
unum. Hvað sjálfan mig snert-
ir myndi ég velja 200 rnebra
fjórsund og 100 metra fluig-
sund eða skriðsund. Ég myndii
álíta að Hrafnhildur hefði
mesta möguleika á góðum ár-
angri í 200 m. fjórsundi og
100 og 200 m. sikriðsundi oig
Leiknir í 100 og 200 metera
bi’ingusundi.
Að síðustu Guðmundur,
hvaða sundfólk getur hreppt
gullverðlaun í Mcxico?
— Það er erfitt að segja. Á
þýzka sundmeistaramótinu fyr-
ir stuttu, sem var opi'ð, nádu
sovézku sundmennirmir afar
góðum afrekum og verið get-
ur að þeir séu búnir að ná
amerísku sundköppunum. Ég
tel að Pankin og Propopenko
haifi mjög mikla möguleifca á
sigri í bringusundinu og eiun-
ig sovézku sundkonumar. —
Bandaríkin eiga mjöig . góða
sundmenn, eins og til dæmis
Schollander sem er mjög sig-
urstranglegur í skriðsuodimu.
Svo eiga þeir eina afskaplega
góða skriðsundkonu Dðbby
Meyer og ég álít að hún vinni
fleiri en ein gullverðlaun. Aulk
þess tel ég allar líkur á því,
að Austur-Þjóðverjinn Rolaind
Matthes beri sigur úr býtuim i'
baksundi, a.m.k. er hano lang-
beztur einsog stendur.
Við þökkum Guðmundi fyrir
vinsemdina og óskum honum
góðs árangurs í sundinu í sum-
ar og . . . . í Mcxico!
AFREKSÍÞRÓTTIR: JÁ EÐA NEI?
Á undanförnum áru-m höfum
við ísilenidingar stöðugt verið
að dragast aftur úr í afreks-
íþróttum miðað við aðrarþjóð-
ir. Á meðan okkwr hefur held-
ur miðað afitur á bak, þá hafa
orðið stórstígari framfarir er-
lendis en á öðruim timum, —
Þassi sifcaðreynd er rejmdar ber-
letgri en svo að netoa þuirfi.
Það má sega>a að í dag sfcömd-
um við erlendum íþrófctaköpp-
uim jafofæfciis í aðeins einini
grein íþrótta, — og það ar i
handiknattleiik karla. Af er sú
tíð, að íslenzkir íþróttaimenn,
sundmenn knattspyrnumenn, en
þó sérstaklaga frjálsíþrófcta-
menrn oklkar voru vimsælir um
alla Evrópu og víðfrægi-r fyrir
afrek sín. Fjóra evrópuimeist-
aratitla unmu ísilemzkiiir frjálsí-
þróttamemm á áruinium 194G-’50,
svo eitfchvað sé nefmfc. Þtassí af-
rek vöktó mikla athygli á Is-
lendiingum í heimi frjálsíþrótta
og meira að segja ítalinn Rob-
erto Quertiani vildi halda því
fram eftir Evrópuimeistaramó't-
ið í frjálsíþróttum 1950, að Is-
lendingar æfctu kröfu til þass
að vera kallað'ir „bezta frjáls-
íþróibtalþjóð í heimi“.
Nú er oldin öninur og eíkki
bara í flrjálsíþróbtuim. Sjaildan
gebum við státað af mikluim
afrekum íþróttamaoina á er-
lendu.m vettvangi nema þá í
handknattleik eins og áður var
tekið fraim.
Þegar svo er ástatt er það ó-
sköp skiljanlegt, að þær radd-
ir verða háværar sem viilja
lýsa frati á fslenzkar afreksí-
þróttir og halda því flram að
okkur beri hreinlega að hæfcta
að taka þátt í erlendum sbór-
mótum og leggja lamdiskeppnir
við aðrar þjóðir niður a.m.k. í
knattsipyrnu. Það þýði hvort
sem er elkkert fyrir okikur að
Framhald á bls. 7.