Vestfirðingur - 23.06.1959, Blaðsíða 4

Vestfirðingur - 23.06.1959, Blaðsíða 4
4 VESTFIRÐINGUR Si|ir Alþýðibandalagsins er ykkar sipr! Nú þegar Norðu-lsíirðingar ganga til kosninga þurfa þeir, eins og allir aðrir Islendingar, að líta yfir Árni Ágústsson farna leið í íslenzkum stjórnmálum um leið og þeir horfa til framtíð- arinnar. Efnasagsmálin fyrir 1956. Sérstök ástæða er til þess að rifja upp þá stefnu, sem ríkti á árunum fyrir 1956 í fjárfestingar- og efnahagsmálum vorum. Á því tímabili urðu meiri fólksflutningar úr byggðum landsins til Reykja- víkur og Reykjanesskaga en nokkru sinni áður í sögu íslend- inga. Ástæðan fyrir þessum fólks- flutningum var fyrst og fremst sú, að atvinnuvegir vorir voru vanræktir samtímis því, sem létt og vel borguð störf júkust í þjón- ustu hins erlenda herliðs á Kefla- víkurflugvelli. Nú var það ekki að- eins landbúnaðurinn, sem skorti vinnuafl til nauðsynlegustu bú- starfa, heldur einnig sjávarútveg- urinn. Vegna þess hve margir Is- lendingar voru bundnir við vel launuð störf hjá hinu svokallaða varnarliði í Keflavík, þurfti að ráða fjölda erlendra sjómanna á íslenzka skipaflotann, til þess að forðast algera stöðvun skipanna. Ríkisstjórn íhalds og Framsókn- ar var furðu áhugalaus í þessum efnum og hafði þau ráð helzt við atvinnuleysi í kauptúnum úti á landi að vísa íbúum þeirra í her- stöðvavinnu suður á Miðnesheiði. Þótt Framsóknarflokkurinn hafi talið það meðal áhugamála sinna að viðhalda og auka byggð lands- ins, þá gætti þessa áhuga lítið í samvinnunni við íhaldið, enda munu foringjar beggja þessara flokka hefa fengið nokkra glíu í augun af hermangsgróðanum, sem rann eftir helmingaskiptareglu til vildarmanna í hópi flokkaleiðtog- anna. Enda var svo komið að tekjur ríkisins af herstöðvunum voru orðnar um 390 millj. kr. á mótil 706 millj kr. af framleiðsluat- vinnuvegunum. Samtímis þessari öfugþróun var grafið undan trú fólksins á landið og atvinnuvegi þess. Hér var sannarlega stefnt á ó- gæfuleið. Skipakostur landsmanna gekk úr sér, og ekkert var hirt um að endurnýja hann, hvað þá að auka. Þó lágu mörg fiskiskip í höfnum árum saman og sum svo árum skipti. Við allt þetta bættist svo það, að vertíðir gátu oftast ekki byrjað á eðlilegum tíma, vegna þess að þá stóð á ríkisstjórninni að semja við útgerðarmenn og sjó- menn um rekstur útvegsins í tæka tíð. Ekkert var heldur hirt um að bæta kjör sjómanna, svo að störf Kjördæmamálið munu flestir telja réttlætismál. Kjördæmaskip- unin nú er orðin svo úrelt og rang- lát, að henni varð að breyta til samræmis við óskir manna um jafnari atkvæðisrétt allra á land- inu. Er þó tekið eðlilegt tillit til aðstöðumunar þeirra, sem í sveit- um búa, við fjölbýlissvæðin. Framsóknarmenn þykjast vera á móti fyrirhuguðum breytingum á kjördæmaskipuninni, en eiga þó sjálfir ríkan þátt í því að málið er leyst án þeirra í því formi, sem ákveðið er. Framsóknarmenn höfðu lofað að leysa kjördæma- málið með vinstri flokkunum í fyrrver-andi ríkisstjórn. Þeir brugðust þessu loforði og slitu stjórnarsamstarfinu á mjög hvat- skeytlegan hátt. Eftir það voru þeir sviptir áhrifum á gang og úrslit málsins. Alþýðuflokksráð- herrar Sjálfstæðisflokksins tóku síðan málið upp og gerðu fram- kvæmd þess að principatriði í stjórn sinni. Kaupránstillögur nú- verandi ríkisstjórnar voru þó látnar ganga fyrir réttlætismálinu. Framsóknarmenn gátu eytt kjördæmamálinu um sinn hefðu þeir fellt þessar tillögur, en þeir léðu þeim stuðning með hlutleysi sínu, og ruddu á þann hátt leið fyrir stjórnina til þess að leysa kjördæmamálið með þeim hætti er gert var. Framsóknarflokkurinn kom heldur ekki með nokkrar til- lögur í málinu, er leitt gætu til samkomulags um aðra tilhögun á kjördæmabreytingu. Tillögur flokksþings Framsókn- þeirra við fiskveiðar yrðu eftir- sóknarverð til jafns við landvinnu. Skiptir um hver á heldur. 1 þessum efnum urðu alger um- skipti, er vinstri stjórnin tók við völdum vorið 1956. Undir forustu Lúðvíks Jóseps- sonar og Alþýðubandalagsins tókst í 2i/2 ár að nýta svo vel skipakost landsins, að gjaldeyris- tekjur ríkisins urðu 200 millj. kr. meiri 1958 en nokkru sinni áður. Kjör sjómanna voru bætt, enda fækkaði erlendum sjómönnum á fiskiskipunum. Auk þess, sem öll eldri skip landsmanna voru nýtt, var stefnt að mikilli aukningu skipaflotans, og ný fiskiskip keypt til landsins. Ný fiskiðjuver og frystihús voru byggð í verstöðvum víðsveg- ar voru með þeim hætti, að þær hefðu í framkvæmd aukið ranglæti kjördæmaskipunarinnar frá því sem nú er, og var þó ekki á það bætandi. Við meðferð kjördæma- málsins á Alþingi komu Fram- sóknarmenn síðan með tillögur, sem fólu í sér fjölgun þingmanna í Reykjavík og Akureyri og nokk- ur ný kjördæmi í fjölbýlustu hér- uðum landsins. Hlutfallskosningar skyldu viðhafðar í Reykjavík og í tvímenningskjördæmunum eins og verið hefur. Af þessu má sjá alvöruleysi Framsóknarmanna í þessu máli. Þeir koma sér undan að semja um nýja kjördæmaskipun við sam- starfsflokka sína í vinstri stjórn- inni. Þeir koma síðan með harð- soðnar afturhalds tillögur í mál- inu á flokksþingi sínu, og loks þegar úrslit málsins voru ráðin milli þriggja flokka, þá koma þeir með samkomulags tillögur er fólu í sér viðurkenningu á hlutfalls- kosningum og fjölgun þingmanna, sem þeir þó fordæma mest í á- róðri sínum gegn réttlátr kjör- dæmaskipun. Hér hafa auðsýnilega eiginhags- munir flokkshyggjunnar verið við stýri og tekizt svo illa stjórnin, að Framsóknarflokkurinn er fullkom- lega einangraður í afstöðu sinni gegn öllu réttlæti í kjördæmamál- inu. Að öllu þessu athuguðu getur Framsóknarflokkurinn engann á- sakað í þessu máli nema sjálfan sig. ----0--- ar um land. Með þessari uppbygg- ingarstefnu gerðist það i fyrsta sinni í sögu undanfarinna ára, að fólksflóttinn ;af landsbyggðinni til Reykjavíkur stöðvaðist að fullu, enda var atvinna svo mikil í mörg- um kauptúnum, að skortur var þar á vinnuafli. Undir merki þessarar stefnu Al- þýðubandalagsins tókst þjóðinni á undraskömmum tíma að snúa hjólinu við frá ógæfusamlegri þjónustu við erlent herlið á Suður- nesjum til þjónustu við sjálfa sig með eflingu sinna eigin atvinnu- vega. Landhelgismilið. Undir forustu Alþýðubandalags- ins tókst að leysa landhelgismálið með útfærslu fiskveiðilandhelginn- ar í 12 sjómílur. Óhætt er að full- yrða að þetta stærsta hagsmuna- mál íslendinga væri enn óleyst, ef starfa og forustu Alþýðubandalag- ins hefði ekki gætt innan fyrrver- andi ríkisstjómar. Ég hefi hér minnst á tvö stór- mál, sem ekki hvað sízt snerta hagsmuni ykkar í byggðum Norð- ur-lsafjarðarsýslu. — En á sama hátt og þessi mál bæði hefðu ekki verið leyst án fulltingis Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn, vofir sú hætta yfir, að vikið verði frá þeirri stefnu, sem tryggði framkvæmd þeirra ef Alþýðubandalagið vinnur ekki stórsigur í komandi kosningum. Afturhaldið aftur að völdum. Um efnahagsráðstafanir núver- andi ríkisstjórnar er það að segja, að þær eru í því fólgnar að rjúfa gerða samninga milli launastétta og atvinnurekenda og skerða lífs- kjör almennings að miklum mun. Reikningurinn fyrir niðurgreiðsl- unum úr ríkissjóði verður geymd- ur fram yfir kosningar, en verður þá sendur kjósendum í formi venj- ulegrar skattheimtu af þeim. Framfarastefna Alþýðubandalagsins. Það er athyglisvert fyrir Norð- ur-lsfirðinga, sem og alla aðra landsmenn, að fólksflutningar úr byggðum landsins voru ekki stöðv- aðir fyrr en framfarastefna Al- þýðubandalagsins varð gildandi í ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn, sem ég vil sízt efa að vilji vera trúr upp- byggingarstefnu úti á landsbyggð- inni, gat ekki þjónað þessu stefnu- máli sínu í samvinnu við íhaldið. Samvinna flokks bændanna við gróðavald íhaldsins í Reykjavík leiddi suma leiðtoga hans að spilltri gróðahyggju í sambandi Framhald á 3. síðu. Kjordæmamálið og þáttur Framsóknarflokksins

x

Vestfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.