Vestfirðingur - 21.09.1960, Qupperneq 4
4
VESTFIRÐIN GUR
„Látum hana bara reyna,“ sagði Eustace.
„Hespurnar eru skrúfaðar fastar. Það er ekki
hægt að lyfta þeim á þann hátt. En nú ætla
ég að setja hlerana fyrir líka. Þú átt næsta
leik, Saunders. Ég er búinn að færa.“
En Saunders gat ekki lengur einbeitt sér að
skákinni. Hann undraðist hátt og í hljóði, hve
vinur hans virtist vera óttalaus. „Hvað segir
þú um eitt' glas af víni?“ spurði hann. „Þú
virðist taka þessu öllu með malandi ró, en ég
játa fúslega, að ég er hræddur eins og mús.“
„Hvaða bull. Það er ekkert yfirnáttúrulegt
við þessa hönd, Saunders. Ég á við, að hún
verður að hlíta náttúrulögmálunum alveg eins
og við. Hún getur ekki gert sig ósýnilega og
kemst ekki gegnum dyr og veggi. Þessvegna
hætti ég á, að bjóða henni byrginn. Við för-
um snemma í fyrramálið. Ég læt ekki hræða
mig meira. Helltu í glösin, gamli vinur. Það
eru hlerar fyrir gluggum og dyrnar læstar.
Lengi lifi Adrian frændi! Skál! Af hverju hik-
arðu nú?“
Saunders stóð grafkyrr með glasið í hönd-
unum. „Hún getur komizt inn“, sagði hann
með hásri röddu. „Hún kemst inn. Við höf-
um gleymt skorsteininum í herberginu mínu.
Hún getur komizt niður í gegnum reykpíp-
una.“
„Fljótt," sagði Eustace, um leið og hann
hljóp inn í hitt herbergið. „Við megum ekki
missa eina einustu mínútu. Hvað getum við
gert? Kveiktu upp í ofninum, Saunders! Fáðu
mér eldspýtu.“
„Þær eru í hinu herberginu. Nú skal ég
sækja þær.“
„Já, en flýttu þér maður, í guðanna bænum.
Gáðu upp á hilluna og í baðherbergið. Nei,
bíddu hér, ég skal sjálfur leita.“
„Flýttu þér!“ hrópaði Saunders. „Ég get
þegar heyrt í henni.“
„Troddu lakinu úr rúminu þínu inn í ofn-
pípuna! Nei, hérna eru eldspýturnar. Ertu bú-
inn að leggja í ofninn? Gott, en það kviknar
kannske ekki í því, — bíddu við, hér er olía
af gamla leslampanum og bómullarhnoðri.
Kveiktu nú! Taktu lakið frá aftur, þorskur-
inn þinn ,við höfum ekki not fyrir það leng-
ur.“
Það heyrðust drunur frá eldstæðinu, þegar
logarnir soguðust inn í reykopið. En Saund-
ers hafði verið helzt til seinn í snúningum, er
hann reyndi að ná lakinu burt. Það hafði lent
á því olía, og nú var byrjað að loga í því.
„Það kviknar í öllu húsinu!“ hrópaði
Eustace, sem reyndi að kæfa logana með
teppi. „Þetta stoðar ekki. Ég get ekki gert
þetta einn. Þú verður að hlaupa eftir hjálp,
Saunders.“
Saunders flýtti sér til dyranna og skaut
slagbrandinum frá, lykillinn festist í skránni.
„Flýttu þér!“ hrópaði Eustace, „annars
kafna ég í reyknum. Loks lét lykillinn undan
Saunders beið aðeins hálfa sekúndu til að líta
til baka. Eftir á var honum ekki vel ljóst,
hvað hann sá, en honum fannst bregða fyrir
einhverju svörtu og koluðu, sem hægt, mjög
hægt skreiddist gegnum logana og nálgaðist
Eustace Borlsover. Eitt andartak datt honum
í hug að snúa við vini sínum til hjálpar, en
brakandi logarnir breyttu þeirri ætlun hans,
og hann þeyttist niður ganginn og hrópaði:
„Eldur, Eldur.“ Hann æddi að símanum og bað
um hjálp, og síðan sneri hann aftur til bað-
herbergisins — það hefði honum átt að hug-
kvæmast strax — til að ná í vatn. Þegar hann
kom inn í svefnherbergið, kvað við skelfing-
aróp. Það þagnaði skyndilega, og á eftir
heyrðist þungur dynkur.
Bærinn og nágrennið
NÝIK BORGAKAK.
Helga Birna, fædd 11. marz 1960
á ísafirði, skírð 27. ágúst 1960.
Foreldrar: Helga Hulda Jónsdóttir
og Jón Kristmannsson, Pólgötu 6
ísafirði.
Helga, fædd 8. maí 1960 á ísa-
firði, skírð 4. september 1960.
Foreldrar: María Kristín Jóhanns-
dóttir og Magnús Þórðarson, Hlíð-
arvegi 7 Isafirði.
Elísabet, fædd 18. ágúst 1960 á
ísafirði, skírð 7. september 1960.
Foreldrar: Steinunn Gunnlaugs-
dóttir og Árni Guðjónsson, Berg-
þórugötu 55 Reykjavík.
Högni Júlíus, fæddur 21. ágúst
1960 í Hnífsdal, skírður 8. sept-
ember 1960. Foreldrar: Ingibjörg
Högnadóttir og Svanberg Einars-
son, Hnífsdal.
María Björk, fædd 29. janúar
1960 á ísafirði, skírð 13. septem-
ber 1960. Foreldrar: Þórdís Helga
Gunnarsdóttir og Jóhann Símonar-
son, Illíðarvegi 42 Isafirði.
Elva, fædd 8. maí 1960 á Isafirði
skírð 18. september 1960. Foreldr-
ar: Elísabet Guðbjartsdóttir og
Sigurður Þorláksson, Hliðarvegi,
ísafirði.
Hjúskapur.
Þann 17. þ.m. gaf sóknarprestur,
séra Sigurður Kristjánsson, saman
í hjónaband ungfrú Jónínu K. Jak-
obsdóttur, kennara við Gagnfræða-
skólann á ísafirði, og Garðar Guð-
mundsson, kennara. Heimili þeirra
er í Sundstræti 26.
Andlát.
Júlíana Guðrún Júlíusdóttir,
húsfreyja í Hnífsdal, andaðist í
Fjórðungssjúkrahúsinu á ísaf. 1.
þ.m. Ilún var fædd 24. júlí 1921 á
Atlastöðum í Sléttuhreppi. For-
eldrar hennar voru hjónin Guðrún
Jónsdóttir og Júlíus Geirmundsson
er lengi bjuggu þar. Júlíana var
gift Högna Sturlusyni, er lifir
konu sína ásamt 6 börnum þeirra.
Gertrud H. Hasler, húsfreyja,
Mánagötu 1. ísafirði, andaðist í
Fjórðungssjúkrahúsinu á ísaf. 10.
september s.l. Hún var fædd 24.
desember 1893 í Þýzkalandi. Hún
hafði hér í mörg ár veitingasölu.
Kjartan Jakobsson frá Reykjar-
firði í Grunnavíkurhreppi andaðist
16. þ.m. Hann var kvæntur Flóru
Ebenezersdóttur, sem lifir mann
sinn.
Guðbjörg Jónsdóttir frá Kirkju-
bæ andaðist í Fjórðungssjúkra-
húsinu á ísafirði 19. þ.m. Hún var
fædd 23. desember 1864 í Hjarðar-
dal í Önundarfirði.
Steindór Þórisson andaðíst í
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 12.
þ.m. Hann var fæddur 3. septem-
ber 1937 á ísafirði en fluttist til
Reykjavíkur fyrir nokkrum árum.
Foreldrar hans eru Þórir Bjarna-
son bílstjóri og kona hans Ólöf
Jónsdóttir. Steindór sál. var mesti
efnismaður og er mikill harmur
kveðinn að foreldrum hans og ætt-
ingjum við fráfall hans.
Til lesenda.
Vegna þrengsla í biaöinu verða
ýmsar fréttir að bíða næsta blaðs,
þar á meðal frétt um 30. fund
Sambands vestfirzkra kvenna, sem
haldinn var á Isafirði 3. og 4. þ.m.
Þá eru lesendur beðnir afsökun-
ar á því að blaðið hefur ekki kom-
ið út að undanförnu, en það stafar
af fjarveru ritstjórans úr bænum.
16. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða
. var sett í Alþýðuhúsinu á ísa-
firði í gær.
Þingið sitja Um 30 fulltrúar að
meðtalinni sambandsstjórn.
Hannibal Valdimarsson, forseti
Alþýðusambands Islands, situr
þingið.