Vestfirðingur - 23.03.1983, Blaðsíða 2

Vestfirðingur - 23.03.1983, Blaðsíða 2
2 VESTFIRÐINGUR Blað Alþýðubandalagsins á Vestfiörðum Ritstjórar: Finnbogi Hermannsson og Hallur Páll Jónsson (ábm.). Ritnefnd: Hallgrímur Axelsson, Þurfður Pétursdóttir, Einar Bragason, Svanhildur Þórðardóttir. Blaðið er sett hjá Alþýðubandalaginu á Isafirði, Aðalstræti 42, 400 ísafirði. Sími: 4242. Verð árgangs er 150 kr. Gjalddagi 1. maí. -----------------------------------------------í | Bænaskrár j j hafaekki dugad Sú var tíðin hér á íslandi, að danskir kaupmenn keyptu alta útflutningsframleiðslu okkar á smánarverði og seldu okkur í staðinn vonda vöru og dýra. Þetta var á nýlendu- tímanum þegar lénsvaldið blóðmjólkaði almúgann. Eina ráðið sem íslendingar kunnu | við þessu var að senda kónginum í Danmörku bænaskrár þar sem hann var beðinn að líta ! í náð til sinna óverðugu þegna. Þá var mönnum refsað harðlega fyrir það eitt að tala ; illa um kónginn. Nú er það ekki fiskurinn sem er seldur ! á gjafverði heldur orkan. Raforkan sem við fáum úr fallvötnunum er seld til erlendra auðkónga undir kostnaðarverði, á meðan við í verðum að kaupa erlenda orkugjafa á sífellt hærra verði. Sjálfstætt fólk lætur ! ekki bjóða sér slíkt til lengdar og að undanförnu hefur orkuráðherrann, Hjörleifur ! Guttormsson, staðið í ströngu við að reyna ! að fá auðhringinn Alúsviss að samninga- borðinu. Forstjórar álhringsins hefur þver- skallast við og viljaekkert við okkur tala, nema þeir fái í forgjöf stækkun álvers með meiru. Þegar svo er komið er ekki nema ein leið fær. Sjálfstæð þjóð verður að grípa til einhliða aðgerða og verðleggja vöru sínasjálf. Nú hefur hins vegar hið ótrúlega gerst. Upp hafa risið nokkrir framámenn meðal þjóðar- innar og heimta að fyrst verði gripið til bænaskrár. Við megum ekki styggja auðhringinn, segjaþeir. Viðverðumaðfara að honum með lagni, svo hann líti til okkar J smælingjanna af náð síns auðuga hjarta. Bænaskrá á það að vera, og þeir Geir Steingrímur og Sighvatur ætla að undir- rita hana. Þetta er hin nýja nýlendustefna. Alþjóð- legir auðhringar kaupa innlenda menn til að ganga erinda sinna, koma þeim í valda- stóla í krafti auðmagns og kaupa síðan af þeim náttúruauðlindir þjóðannaágjafverði. Erlendum fésýslumönnum er ekki treyst- andi. í tvígang hafa þeir þlekkt íslenska samningamenn. Fyrst 1966 þegar gerðir voru ! við þá samningar um álverið. Þá töldu ýmsir að kjarnorkuver myndu á allra næstu árum verða svo hagkvæmir í rekstri að raforka j frá fallvötnum yrði ekki samkeppnishæf. Árið 1975 hækkuðu þeir raforkuverðið lítilega en fengu í staðinn breytta skattastöðu sem þegar upp er staðið kostaði okkur hálfa milljón dollara beint úr ríkissjóði. Orkusalan til Alúsviss er nýtt landhelgismál Það er nýtt sjálfstæðismál. Viljum við ráða sjálf auðlindum okkar og selja framleiðsluna á viðunandi verði eða ætlum við að láta erlenda menn beygja okkur? Við getum gefið viðeigandi svör við þessum spurningum í kjörklefanum í vor. b.p_ Næg* atvinna á REFIR KOMNIR f BJARNARFJÖRÐ Þegar Vestfirðingur hafði sam- band við Pálma Sigurðsson, bónda á Klúku, nú á dögunum, sagði hann að snjór hefði mikið minnkað í Kaldrananeshreppi, en erfiður kafli hefði verið frá því um hátíðar og illa gengið með sam- göngur allt fram í febrúar. Mannlíf hefur þó gengið fyrir sig eins og venjulega þrátt fyrir sam- gönguleysið og menn verið mikið heimavið. Um miðian febrúar var þorri blótaður á Drangsnesi og tókst ágætlega að sögn Pálma. Tók sig þar saman fólk úr Hrófbergs og Kaldrananeshreppi. Á Drangsnesi hefur verið næg vinna og rækjuafli verið góður. Atvinna tengist nær eingöngu rækjuveiðunum á þessum árstíma en fjórir bátar stunda rækjuveiðar á vertíðinni nú. Refarækt er að hefla innreið sína í Bjarnartjörð um þessar mundir og voru menn einmitt að þekja refahús Pálma er við rædd- um við hann. Refabú eru einnig á döfinni í Odda og í Framnesi, en Framnesrefir enn í Odda, þar sem enginn maður er í Framnesi í vetur. Fyrst um sinn er gefið erlent þurrfóður að því er Pálmi tjáði okkur. Pálmi var að lokum spurður um menningarlífið, kvað hann ekkert í bígerð enn þá, enda erfitt um samgöngur enn þá, en í fyrra var SÁÁ menn á ísafirði SKÍÐABOGAR SKÍÐAHÖLDUR Nú þarf að huga að skíðahöldum sjónleikurinn Biðlundur settur á svið í tilefni af ári aldraðra. SLÆMT ÁSTAND ÁFENGISMÁLA I marsbyrjun voru hér á ferð á ísafirði þeir Hendrik Berndsen og Þórarinn Tyrfingsson á vegum samtakanna S.Á.Á., til þess að kynna söfnun á vegum samtak- anna fyrir nýrri sjúkrastöð. Það kom fram á fundi með þessum mönnum, að umfangsmikil starf- semi er rekin á vegum samtak- anna, en þau hafa rekið stöðvar að Sogni í ölfusi, á Silungapolli, í Reykjadal í Mosfellssveit, á Staðarfelli í Dölum og víðar. Þá reka samtökin eftirmeðferðarstöð við Síðumúla í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum sem fram komu á fundinum, eru inn- lagnir orðnar 5500 frá upphafi og oft hefur verið unnið við erfið skilyrði. Nú er verið að reisa myndarlega sjúkrastöð við Graf- arvog í Reykjavík og hefur húsið verið steypt upp. Er nú eftir átak við að fullgera húsið og hafa eins konar skuldabréf verið send út, sem menn geta skrifað undir og eru þau innheimt síðar meir. Hvað snertir ástand áfengis- mála ilandinu, sagði Þórarinn, að það hefði sjaldan verið jafn slæmt og nú og brýn nauðsyn að koma stöðinni sem fyrst í gagnið. Ramma gerð Isafjarðar Aðalstæti 33 Fjölbreytt úrval af rammalistum og römmum fyrir Ijós- myndir, málverk og útsaum. Einnig álrammalistar fyrir grafík. Vélsmiðjan Þór hf. ÍSAFJORÐUR Simnefni: Vélar Simi 3711 og 3041 Pósthólf69 Fljót og góð afgreiðsla. Fagvinna. Rammagerð ísafjarðar Aðalstræti 33, sími 3213

x

Vestfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.