Vestfirðingur - 23.03.1983, Blaðsíða 3
VESTFIRÐINGUR 3
Höf num borgríki
byg'g’jum ÞjóÖríki
Kjartam
Ólafsson
Þegar þessi orð ern skrifuð, sit-
ur Alþingi enn að störfum, en bú-
ist við, að þlnglnu fjiiki innan
fárra daga. Meðal þeirra mála,
sem þar eru til umfjöllunar á
siðustu dögum þingsins, er hið
svokallaða kjördœmismál og sú
tiiiaga að stjómarskrárbreytingu,
sem formenn flokkanna hafa lagt
fram. fJti um landið hefur allt of
litil umræða farið fram um þetta
alvarlega mál, þött miklir hags-
munir séu i húfi fyrir fólklð,
sem á landsbyggðinni býr.
Þeim mun meiri gauragangur
hefur verið hafður í frammi á suð-
vesturhomi landsins, þar sem öfl-
ugir hópar öfgamanna hafa reynt
að safna liði um þá ósvífnu kröfu,
að íbúar tveggja kjördæma af átta
það er Reykjavíkur og Reykja-
ness, skuli öðlast rétt til þess að
kjósa einir ríflegan meirihluta
alþingismanna. Nokkrir brodd-
borgarar, sem fyrir níu árum
stóðu fyrir undirskriftasöfnun
„Varins lands " tóku sig nú
til í annað sinn og hófu opinbera
„skoðanakönnun" um kjördæma-
málið, en aðferðirnar sem beitt
var, svo og tilhögun spuming-
anna voru með þeim hætti, að
hvergi nálgaðist óhlutdrægni.Og
auðvitað fékk fólkið, sem býr í
kjördæmunum sex, utan suðvest-
urhomsins alls ekki að taka þátt í
þessari sérstæðu skoðanakönnun
„Varins lands" :Skoðanir þess
skyldu einskis metnar og máttu
ekki trufla liðsafnað höfðingjanna
meðal útvaldra.
BROT Á MARKAÐSLÖGMÁL-
UNUM
I hópi þeirra sem harðast beittu
sér í þessari herferð gegn lands-
byggðinni, var Ragnar Halldórs-
son, forstjóri álversins í Straums-
vík. í ræðu sem þessi formaður
Verslunarráðs Islands flutti á við-
skiptaþingi í síðasta mánuði,
komst hann svo að orði, að það
væri brot á markaðslögmálunum,
ef vægi atkvæða væri ekki ná-
kvæmlega jafnt um land allt.
- Menn ættu að taka vel eftir ná-
kvæmlega þessari röksemda-
færslu. Á bak við hana er ákveðin
hugmyndafræði, ákveðin trúar-
brögð. sem ekkert meta eða
virða nema frelsi markaðarins,
frelsi fjármagnsins og handhafa
þess til að drottna.
Þeir sem fastast trúa á hjálp-
ræði markaðslögmálanna, heimta
nú, að meirihluti Alþingis verði
kjörin af íbúum suðvesturhoms-
ins eingöngu og hyggjast þannig
auka enn á það misrétti á fjölda-
mörgum sviðum, sem íbúar
landsbyggðarinnar, fólkið sem
ber uppi nær alla undirstöðu-
framleiðslu okkar þjóðfélags, hef-
ur mátt þola.
En við skulum ekki láta ál-
forstjórann og félaga hans í
klúbbnum „VARIÐ LAND"ráða
þessu. Við skulum halda áfram að
bijóta markaðslögmálin, þegar
nauðsyn krefur. Heill byggðar-
laganna hringinn í kringum landið
krefst þess, að þessi lögmál auð-
hyggjunnar fái ekki að rikja ein.
Heill okkar íslenska samfélags,
þjóðarinnar allrar, krefst þess, að
fólkið, sem ber uppi framleiðsl-
una og býr úti um landið. fái í
vaxandi mæli að njóta afraksturs
erfiðis síns, en sé ekki hornrekur I
eigin landi.
AFLEIÐING EKKIORSÖK
Fólksfjölgunin við sunnan
verðan Faxaflóa og fólksfækk-
unin úti um land á undanförnum
árum og áratugum er fyrst og
fremst afleiðing, en ekki orsök.
Þeir þjóðflutningar, sem nú hafa
átt sér stað, eru afleiðing
margvíslegs misréttis og lakari
kjara á ýmsan veg, sem lands-
byggðarfólki hefur verið gert að
búa við.
Nú vi|ja markaðshyggjumenn-
irnir gera þessa ömurlegu afleið-
ingu gamals misréttis að orsök
og tilefni nýs misréttis. - Hér þarf
að snúast til vamar.
Ég skrifaði fyrir nokkrum mán-
uðum grein í þetta blað um
kjördæmamálið undir fyrirsögn-
inni„Ætlar Framsókn að bregðast
landsbyggðinni?"Því miður hafa
mál þróast með þeim hætti, sem
þar var sérstaklega varað við.
Á síðastliðnu hausti var þegar
ljóst, að einhverjar breytingar á
núverandi vægi atkvæða í hinum
ýmsu kjördæmum yrðu gerðar á
næstunni.
Það sem mestu máli skiptir við
þessar aðstæður, var að hindra,
að réttur landsbyggðarkjördæm-
anna sex og íbúa þeirra yrði
eftir þær breytingar lakari en
hann var fyrst eftir síðustu kjör-
dæmabreytingu, árið 1959.
Þar var hin eðlilega vamarlína,
sem sæmilega auðvelt var að
verja, ef þingmenn þessara kjör-
dæma hefðu borið gæfu til sam-
komulags. Þessi vamarlina,
að iandsbyggðarldördæmin sex
hefðu áfram að minnsta kosti
sjö þingsæta meirihluta á AI-
þingi.
FRAMSÓKN BRÁST
Það hörmulega gerðist hins vegar
í þessu máli, að Framsóknar-
flokkurinn, sem margt lands-
byggðarfólk hafði sett traust sitt
á, markaði strax I nóvember þá
flokksstefnu, að deilumar um
kjördæmamálið skyldi leysa með
því einfalda móti að flytja alla
uppbótarþingmenn frá lands-
byggðarkjördæmunum til
Reykjavfkur og Reykjaness.
Framkvæmd slíkrar stefnu
þýddi augljóslega, að þingmenn
landsbyggðarkjördæmanna sex,
yrðu aðeins fjórum mönnum fleiri
en þingmenn Reykjavíkur og
Reykjaness og réttur Iands-
byggðarfólks þannig mun lakari
en hann varl959.
Þessi furðulega og vanhugsaða
samþykkt Framsóknarflokksins
braut niður sterkustu vamarlínu
landsbyggðarinnar í málinu, því
án þingmanna Framsóknar var
engan meirihluta hægt að mynda
á þingi sem dugað gæti fyrir
landsbyggðina. Með þessari sam-
þykkt Framsóknar var þeim sem í
öðrum flokkum reyndu að verja
hagsmuni landsbyggðarfólks gert
langtum erfiðara fyrir og bestu
vopnin slegin úr höndum manna -
vamarlínan frá 1959 rofin. Fyrir
þetta á Framsókn refsingu skilið.
Síðan hafa mál gengið í þófi uns
fram var lagt stjórnarskrár-
frumvarp allra flokksformanna
ásamt greinargerð.Það frumvarp
er heldur hagstæðara lands-
byggðinni en upphafleg tillaga
Framsóknar, en þar er munurinn
þó ekki mikill.
Að loknum kosningum nú gefst
kostur á því að vinna að
breytingum á því frumvarpi
landsbyggðinni í hag, en miðað
við nýjustu reynslu, þá er Fram-
sóknarflokkurinn undir forystu
- steingríms Hermannssonar ekki
líklegur til að verða þar að liði.
VESTFIRÐINGUR
AUGLÝSINGASÍMAR
4242 - 4057
ÍSFIRÐINGAR — HNÍFSDÆLINGAR
SÚÐVÍKINGAR
Höfum opnað skrifstofu á ísafirði og er hún opin
alla virka daga frá kl. 9:00 — 17:00
ALLAR TRYGGINGAR Á EINUM STAÐ
Þökkum ánægjuleg viðskipti og bjóðum ykkur vel-
komin á nýjum stað.
% TRYGGINGAMIÐSTOÐIN ?
ÍSAFJARÐARUMBOÐ
Hafnarhúsinu, ísafirði
Sími: 94-3245
HALINN
SYNDAAFLAUSN FENGIN
Töluverða athygli hefur
vakið veiting dómsmálaráð-
herra, Friðjóns Þórðarsonar, á
embætti bæjarfógetans á ísa-
firði, en Friðjón veitti emb-
ættið tiltölulega ungum og
reynslulitlum manni, Pétri Kr.
Hafstein. Alls sóttu níu menn
um embættið og þóttu lík-
legastir til að hljóta það Barði
Þórhallsson, bæjarfógeti á
Ólafsfirði, Már Pétursson,
héraðsdómai í Hafnarfirði og
Freyr Ófeigsson, héraðs-
dómari á Akureyri, allir prýði-
lega hæfir menn með mikla
starfsreynslu.
Þeim spámönnum sem
meira trúðu á pólitísk sjónar-
mið við veitinguna þóttu
Guðmundur Sigurjónsson,
aðalfulltrúi á ísafirði og Guð-
mundur Kristjánsson, aðal-
fulltrúi í Keflavík, einnig koma
til greina ásamt Barða, en þeir
munu allir vera Sjálfstæðis-
flokksmenn. Fáum mun hins
vegar hafa dottið í hug að
Pétur hreppti hnossið þar sem
hann mun lítið sem ekkert
hafa komið nærri dómstörfum
og hafði minnsta starfsreynslu
umsækenda.
Athyglisvert var að eftir
embættisveitinguna reyndi
dómsmálaráðherra ekki að
I
I
“H
færa fyrir henni nokkur rök,
þegar glaðbeittur blaðamaður
Tímans krafði hann skýringa.
Hefði Friðjón þó mátt notast
við hina snjöllu röksemda-
færslu Steingríms Hermanns-
sonar fyrir flugmálastjóra-
veitingu, sem var á þann veg
að væri framsóknarmaður á
meðal umsækenda mætti ekki
láta hann gjalda þess að vera
í þeim góða flokki og bæri
honum því starfið með réttu.
Hefur Steingrímur nú með
þessari tímamótakenningu
komið í veg fyrir hugsanleg
slys í þá veru að framsóknar-
ráðherrar veiti utanflokks-
mönnum einhver bitastæð
embætti í framtíðinni.
Fróðir rijenn hafa bent á hin
ættfræðifegu rök til skýringar
veitingu Friðjóns, en Pétur á
sterka að þar sem hann er
kominn af Hafsteinum og
Thorsurum og er því afsprengi
innsta kjarna Sjálfstæðsi-
flokksins.
Síðast en ekki síst telja
menn dómsmálaráðherra hafa
gert sín næstbestu kaup þegar
hann ók í Bifröst vestur á
vakningasamkomu ’ ’ sannra
íslendinga”, lýsti syndum
sínum, hlaut aflausn og var
tekinn í hóp rétttrúaðra, en
þurfti þó í engu að gjalda
utan litlu embættisbréfi
vestur á fjörðu.
MEÐ LOGANDA UÓSI
Minnihlutinn í bæjarstjóm
ísafjarðar leitar nú með log-
anda ljósi að málefnaágrein-
ingi hjá meirihlutaflokkunum.
Ekki hefur skriffinnum Vestur-
lands orðið betur ágengt í
viðleitni sinni en svo, að
stunda þurfa þeir sögurann-
sóknir svo sem síðasta tölu-
blað Vestfirðings ber með sér.
Er þar verið að vitna í greinar-
stúf í Skutli heitnum, frá
frá því fyrir bæjarstjómar-
kosingar. Munu þá einhver
hnjóðsyrði hafa hrotið úr
kratapenna eins og fara gerir
í hita kosningabaráttu. Þykir
halanum þetta gáleysisleg
skrif að opinbera á síðum
Vesturlands, að menn þar á
bæ skuli ekki hafa neitt þarf-
ara að gera en fletta gömlum
árgöngum af Skutli.
Kann þetta að vera skýring-
in á þeirri litlu vinnu, sem
minni hlutinn eyddi í athug-
anir á flárhagsáætlun kaup-
staðarins, en ekki eina einustu
breytingartillögu báru þeir
sjálfstæðisflokksmenn fram
við frumvarpið.
SLÆMT SKYGGNI
Máttur fjölmiðla er mikill
hér á landi sem annars staðar,
einkum þó sjónvarpsins. Eftir
að menn hafa birst nokkrum
sinnum á skjánum heima hjá
fólki, þykja þeir skjótt gjald-
gengir í framboð og vegnar
einatt vel. Talandi dæmi
þessa. er spútnikinn, sem
skaust upp á stjörnuhvelið hjá
Allaböllum í Norðurlandi
eystra, Steingrímur Sigfússon.
Hafði hann birst á skjánum í
fáein skipti sem hjástoð hjá
Bjarna Felixsyni að kynna
íþróttir. Umsvifalaust var
hann kjörinn í fyrsta sæti í
næsta prófkjöri til Alþingis-
kosninga. Segja óljúgfróðir
menn að norðan, að Stein-
grímur hafi hlotið afburða-
kosningu í Eyjafirði svo og I
Suður-Þingeyrjarsýslu. Hins
vegar tók að kárna gamanið,
þegar norðar dró og fátt um
atkvæði. Munu sjónvarps-
skilyrði hafa verið með versta
móti í Norðursýslunni, vegna
bilaðs sendis og Steigrímur
sést illa á þeim slóðum.
FLUGLEIÐIR OG ERNIR
frh. af forsiðu.
Þegar starfsmaður Emis er ekki á
staðnum, munu starfsmenn Flug-
leiða sjá um farbókanir, sím-
svörun og almenna upplýsinga-
gjöf í símum Ernis. Þá segir í til-
kynningunni, að Flugleiðir taki að
sér móttöku, geymslu og afhend-
ingu á pósti og frakt fyrir Emi. Ef
breytingar verða á brottfarartíma
í flug Ernis, áður en farþegar eiga
að mæta, sér starfsmaður Ernis
að jafnaði um að láta farþega vita
þar um.
Vænta forráðamenn beggja félag-
anna þess, að samningur þessi
verði til þess að bæta þjónustu
við flugfarþega á Vestfjörðum og í
kjölfar hans komi víðtækari sam-
vinna félaganna.