Margt smátt - 01.04.1989, Page 2

Margt smátt - 01.04.1989, Page 2
 FYLGT ÚR HLAÐI Nýtt fréttablað Hjálparstofn- unar kirkjunnar lítur nú dags- ins ljós. Með útgáfu þess vilj- um við koma á framfæri upp- lýsingum til almennings um hjálparstarf okkar í þriðja heiminum og kynna hvernig aðstæður fólks eru á þessum stöðum. Ætlunin er að gefa út þrjú til fjögur tölublöð á hverju ári. Okkur hefur lengi þótt þennan vattvang vanta. Allir þeir fjármunir sem við höfum til ráðstöfunar eru frjáls fram- lög almennings á íslandi. Við erum oft spurð hvað verði um þessa fjármuni, hvar og hvern- ig þeim sé varið og hvort og þá hvaða árangur hjálparstarfið beri. Með útgáfu þessa blaðs er verið að koma til móts við óskir fólks um meiri upplýsing- ar um það starf sem unnið er á vegum stofnunarinnar. Við vitum líka að fólk í þriðja heiminum vill gjarnan að við í okkar heimshluta fáum betri innsýn í og aukinn skiln- ing á þeirra veruleika. Aukinn gagnkvæmur skilningur á hög- um ólíkra þjóða og samfélaga eru að okkar mati meðal þeirra verkefni sem mikilvægust eru á okkar tímum. Við vonum að okkar litla framlag í þágu þess málstaðar verði til að auka áhuga lesenda á málefnum þriðja heimsins. Eftir miklar bollaleggingar var ákveðið að þetta fréttablað skyldi hljóta nafnið MARGT SMÁTT. Heitið finnst okkur HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR \ \ f; - /, ■ • r >. í 316 S Stjórn: Árni Gunnarsson formaður Haraldur Ólafsson varaformaður Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason Hanna Pálsdóttir Sr. Úlfar Guðmundsson Framkvlemdastjóri: Sigríður Guðmundsdóttir Ritstjóri: Þórdís Sigurðardóttir Ábyrgðarmaður: Sigríður Guðmundsdóttir Skrifstofa Hjálparstofnunar kirkjunnar: Suðurgötu 22 150 Reykjavík sími: (91)26440 Hönnun: Ydda Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Filmur og prent lýsa vel því starfi sem fram fram á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar. ,,Margt smátt gerir eitt stórt,“ segir máltækið. Þetta máltæki segir raunverulega allt um grundvöll Hjálparstofnun- ari kirkjunnar, en stofnunin byggir algerlega á mörgum smáum framlögum, sem verða að einu stóru þegar saman safnast. Þannig söfnuðust í okkar árlegu söfnun í desem- ber síðastliðnum tæpar 20 milljónir króna. Heitið á ekki síður við um sjálft hjálparstarf stofnunarinn- ar. Flest verkefnin eru ósköp lítil á alþjóðlegan mælikvarða eða þá um er að ræða sam- starfsverkefni við aðrar hjálpar- stofnanir, sem venjulega eru mun stærri en okkar litla stofn- un. En þótt skrefin séu smá skiptir mestu máli að þau séu í rétta átt. Mikilvægast er að að- stoðin komi ævinlega þeim til góða sem mest þarfnast henn- ar, og að það séu hagsmunir hinna fátæku sem sitji í fyrir- rúmi. í þessu fyrsta tölublaði eru frásagnir víðs vegar að, frá stöðum þar sem Hjálparstofn- un kirkjunnar hefur haft með höndum verkefni að undan- förnu. Vönum við þar með að lesendur verði nokkurs vísari um starfsemi stofnunarinnar og þau vandamál sem við er að etja. Þórdís Sigurðardóttir. Fréttablaðið MARGT SMÁTT er sent ókeypis til styrktarmeð- lima, presta, sókna, í skóla, fjölmiðla og víðar. Tekið er á móti framlögum til Hjálparstofnunar kirkjunnar í bönkum, sparisjóðum og á pósthúsum á tékkareikning nr. 27 í SPRON, og á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar.

x

Margt smátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Margt smátt
https://timarit.is/publication/1939

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.