Margt smátt - 01.04.1989, Side 3
Jarðskjálftinn sem varð í
norðurhluta Armeníu þann 7.
des. sxðastliðinn er mörgum
enn í fersku minni. Þetta var
einn af alvarlegustu jarð-
skjálftum sem orðið hafa á
þessari öld.
Hjálp til fórnarlambanna
barst víðs vegar að úr heimin-
um, m.a. frá íslandi. Fjöldi ís-
lendinga brást vel við beiðni
Hjálparstofnunar kirkjunnar og
Rauða krossins um aðstoð við
bágstadda í Armenxu. 5 lestir af
niðursoðnum fiski og 3400 ull-
arteppi voru send á vegum
Hjálparstofnunar kirkjunnar til
jarðskjálftasvæðanna fyrir jól-
in. Matvælin og teppin voru
gefin af fyrirtækjum á íslandi
sem hafa viðskipti við Sovét-
ríkin. Flugleiðir og skipadeild
Sambandsins fluttu hjálpar-
gögnin endurgjaldslaust. Hjálp-
arstofnun flytur öllum þessum
aðilum bestu þakkir.
Yfirvöld í Sovétríkjunum
hafa nú staðfest að fjöldi lát-
inna sé yfir 25.000 og að um
17.000 hafi slasast. Það er ekki
ljóst hve marga vantar í þessar
tölur. Það getur t.d. verið um
að ræða fólk sem ættingjarnir
sjálfir jörðuðu án þess að til-
kynna það á fullnægjandi hátt
og fólk sem enn er grafið
undir
rústunum, eða fólk sem fluttist
burt af eigin rammleik eftir
jarðskjálftana. Um 114.000
manns voru á vegum yfirvalda
fluttir á brott frá jarðskjálfta-
svæðunum. Alls er talið að um
hálf milljón manna hafi orðið
fyrir tjóni af völdum jarð-
skjálftanna. Veturinn hefur ver-
ið óvenjuharður í Armeníu og
hefur það gert aðstæður fólks
þar enn verri.
Eins og gefur að skilja er
mikið uppbyggingarstarf fram
undan í Armeníu. Margir þurfa
þar að leggjast á eitt og m.a.
Heimilislaus armensk kona hengir út
þvott í einum aqf mörgum tjaldhúó-
um sem komiö var upp eftir jard-
skjálftann í desember síöastliönum.
liggur það ljóst fyrir að arm-
enska kirkjan mun hafa þar
hlutverki að gegna. Alþjóðleg-
ar hjálparstofnanir, sem Hjálp-
arstofnun kirkjunnar er aðili
að, hafa boðið framhaldsað-
stoð. Uppbyggingarstarfið mun
taka langan tíma. Á meðan
verður áfram mikil þörf fyrir
bráðabirgðahúsnæði fyrir það
fólk er missti heimili sín og
fjöldi slasaðra þarfnast endur-
hæfingar. Afleiðingar jarð-
skjálftanna eru lagt frá því yfir-
staðnar þó að fyrstu hjálp sé
að mestu lokið.
ARMENÍA
Uppbyggingarstarfið
í Armeníu hafið