Margt smátt - 01.04.1989, Side 6

Margt smátt - 01.04.1989, Side 6
REBEKKA Rebekka er ein af flóttamönnunum í Suður-Súdan Rebekka situr hjá mömmu sinni og bendir á gatiö á búsinu þeirra se kom þegar SPLA rédust á flóttamannabúöirnar. Ljósmynd Saren Holmberg. í S-Súdan er bærinn Juba. í útjaðri bæjarins eru fjórar flóttamannabúðir og þar dvelj- ast um 150.000 manns. Flóttamennirnir sem streymt hafa til Juba undanfarna mán- uði hafa orðið að þola miklar þreyingar. Margir hafa gengið í marga daga og jafnvel fleiri hundruð kílómetra til að kom- ast til Juba. Þetta er ferð um mörg illfær svæði full af jarð- sprengjum og þar leynast bæði uppreisnarmenn SPLA og her- menn stjórnarhersins sem hvað eftir annað hafa ráðist á flótta- fólkið til að komast yfir fátæk- legar eigur þess. Þetta er einnig skýringin á því hvers vegna loftbrú hefur verið einasta færa leiðin til að koma matvælum til flóttafólksins íjuba. Rebekka er ein af þeim sem fær mat daglega vegna tilkomu loftbrúarinnar. Hún hleypur um í Lolugo-flóttamannabúð- unum í rauöum sumarkjól með hvítum doppum. Hún hefur stein í litaðri snúru um hálsinn og hún er dálítið kvefuð. Rebekka er 5 ára. Hún kom með fjölskyldu sinni til Lol- Hver passar þá kýrnar þínar? Sigríður Guðmundsdóttir var í haust á ferð um Indland ásamt Dorte Fremm frá Folke- kirkens Nödhjælp í Danmörku. Sigríður dró þessa litlu sögu úr ferðinni upp úr pokahorninu. Við vorum í heimsókn hjá föður Martin, en hann starfar meðal þeirra allra fátækustu í Arcothéraðinu í Suður-lnd- landi. Á meðan á heimsókninni stóð áttum við skemmtilegar viðræður við starfsfólk hans. Þetta var ungt fólk sem hafði fengið þjálfun og var nú sjálft farið að kenna í þorpunum í kring. ugo-búðanna fyrir'nokkrum mánuðum. Hún sýnir gestum sem koma í heimsókn gat á veggnum á húsinu sem hún býr í og stingur hendinni í gegnum það. Pabbi hennar útskýrir hvernig það er tilkomið. Kvöldið áður réðust SPLA á flóttamannabúðirnar. Þeir skutu og eitt skotið fór í gegn- um hús Rebekku og fjölskyldu hennar, tveim sentímetrum fyr- ir ofan nefið á Rebekku, þar sem hún lá og svaf — og áfram út um hina hlið hússins. Re- bekka á enn þá nefið sitt og vonar líka að óskin um „Happy new year“ sem er mál- að á húsið hennar rætist. Óskin er auðvitað ætluð íbúum búð- anna en líka gestum. Rebekka og fjölskylda hennar tjá þessa ósk í trausti þess að matvæla- aðstoðin, sem rétt nægir til að halda í þeim lífi, bregðist ekki. Rebekka treystir á að hún fái áfram mat í svanginn og hún hefur miklar fyrirætlanir um sjötta árið sitt en þá ætlar hún að fá pabba sinn til að kenna sér að lesa. Það er óskandi að ráðagerðir hennar geti orðið að veruleika. Unga fólkið hafði mikinn áhuga á að heyra hvort gestirn- ir væru giftir. Ég svaraði því til að ég væri ógift. Það var þögn dálitla stund umhverfis borðið. Svo spurði einn drengurinn, ,,Já en kemur þú ekki langt að?“ Ég svaraði því játandi. ,,Og er ekki mjög kalt þar sem þú átt heima?“ Aftur svaraði ég játandi. ,,Og þú ert ekki gift?“ ,,Nei,“ hljóðaði svarið. „En hver passar þá kýrnar þínar?“ Ég útskýrði að flestir í landinu mínu ættu engar kýr, en fyrir drengnum var það fjöldi kúnna sem sagði til um hve rfkur maður væri. Það var ekki auð- veld að skýra í hverju ríkidæmi okkar er fólgið . . .

x

Margt smátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.