Margt smátt - 01.04.1989, Qupperneq 7
Indland
Vietnam
Eitt af þeim verkefnum sem
Hjálparstofnun kirkjunnar
studdi á sxðasta ári var smíða-
nám fyrir unga atvinnulausa
menn í bænum Srikalahasti í S-
Indlandi. Atvinnuleysi er mikið
í þessum litla bæ og flestir íbú-
arnir eru mjög fátækir. At-
vinnuleysið bitnar ekki síst á
unga fólkinu, margt af því er
vondauft um að geta nokkurn
txman séð fyrir sér og sínum. Á
síðasta ári var stofnaður skóli í
bænum, þar sem ungir menn
frá fátækum fjölskyldum fá
smíðakennslu í eitt ár. Einmitt
þessi menntun er sérstaklega
hagkvæm á þessum slóðum.
Aðalatvinnugreinin er landbún-
aður og er mikil þörf fyrir
menn sem geta stundað smíðar
og viðhald á landbúnaðarverk-
færum. 20 menn hafa lokið
smíðanáminu og áætlað er að í
framtíðinni geti um 60 nem-
endur stundað nám við skól-
ann á hverju ári.
Grjóthögg er mjög erfið lík-
amleg vinna, ekki síst þegar
grjótið er höggvið með hand-
afli og einföldum verkfærum. í
þorpinu Thurakapalem í S-Ind-
landi hefur grjóthögg lengi
verið aðalatvinna fátækustu
íbúa þorpsins. Þrátt fyrir gífur-
lega erfiða vinnu nægja tekjur
grjóthöggsmanna þeim ekki til
að sjá fjölskyldum sínum far-
borða. En nú er loksins að rofa
til. Grjóthöggsmenn ákváðu að
stofna samvinnufélag og leit-
uðu aðstoðar hjá Lútherska
heimssambandinu til að kaupa
grjótmulningsvél og fleira sem
gerði þeim vinnuna léttari og
ykju afköstin. Hjálparstofnun
kirkjunnar tók þátt í kostnað-
inum og hefur gengið vel að
koma breytingunum á. Með til-
komu grjótmulningsvélarinnar
tvöfaldast tekjur grjóthöggs-
manna og vinnan léttist til
muna. Um 450 manns njóta
góðs af þessu verkefni.
Son La héraðið í Vietnam er
meðal fátækustu héraða lands-
ins. Skortur á áveitukerfi veld-
ur því að bændurnir fá ekki
næga uppskeru af ökrum sín-
um og til að sporna gegn mat-
arskortinum neyðast þeir til að
höggva skóginn í fjallshlíðun-
um í kring og stækka þannig
ræktanlegt land. Þetta hefur
haft í för með sér mikla jarð-
vegseyðingu í fjallshlíöunum
en ekki komið í veg fyrir mat-
arskortinn. Með bættu áveitu-
kerfi er hægt að koma í veg
fyrir þennan vanda. Hjálpar-
stofnun kirkjunnar gekk þess
vegna til liðs við bandaríska
hjálparstofnun (AFSC) á síðasta
ári, sem vinnur að stíflugerð í
héraðinu. Með tilkomu stífl-
unnar tvöfaldast uppskera
bændanna í þremur þorpum,
auk þess sem íbúarnir fá betri
aðgang að vatni til daglegra
nota.
Æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar
Æskulýðsdagur þjóðkirkj-
unnar var haldinn 5- mars síð-
astliðinn. Að þessu sinni var
æskulýðsdagurinn helgaður
umfjöllun um misskiptingu í
heiminum og kjör þeirra fátæk-
ustu.
Hjálparstofnun kirkjunnar og
Fræðsludeild þjóðkirkjunnar
undirbjuggu sameiginlega
fræðsluefni fyrir þennan dag,
undir yfirskriftinni ,,VIÐ SAMA
BORГ.
Myndin sýnir þátttakendur í
Bústaðakirkju syngja saman á
œskulýðsdegi.
Ljósmynd Guðmundur Viðarsson.
IHARGT
SMÁTT