Fréttabréf


Fréttabréf - 01.12.1975, Blaðsíða 2

Fréttabréf - 01.12.1975, Blaðsíða 2
flvarp biskups Þegar Hjálparstofnun kirkjunnar varð til mótað kjörorðið: Hjálpum kirkjunni að hjálpa. Margir hafa tekið undir og gert þessi orð að sínum. Þökk sé þeim öllum. Það hugboð hefur reynzt rétt, enda stutt af reynslunni fyrr og síðar, að samúð er rík með þjóðinni og að menn bregðast drengilega við, þegar neyð kallar á hjálp. Það hefur einnig sannast, að menn hafa treyst kirkju sinni til þess að hafa farsæla meðalgöngu um aðstoð við nauðstatt fólk nær og fjær, og að margir hafa verið þakklátir fyrir að eiga aðgang að Hjálparstofnun kirkjunnar, þegar þeir vildu leggja ^jáðum lið. Þeir þurftu farveg fyrir hjálpfysi sína og þeir tre'ystu því, að framlög þeirra færu krókalausa leið á réttan stað, þegar hönd kirkjunnar annaðist um það. Þessi tiltrú er þökkuð heilshugar. Frá upphafi hefur Hjálparstofnun kirkjunnar haft tvxþætt verkefni: HÚn vill hjálpa, þegar hörmungar dynja yfir vegna náttúruumbrota eða af öðrum orsökum. Og hún vill aðstoða einhverja snauða í löndum örbirgðarinnar til þess að koma högum sínum í betra horf. Til þess að geta sinnt síðar talda hlutverkinu að nokkru marki, þarf Hjálparstofnunin að hafa einhverjar vissar tekjur, því þar er um langtíma- verkefni að ræða, sem vinna þarf eftir áætlun. Þess vegna hefur Hjálparstofnunin frá byrjun gert sér vonir um, að fastir styrktarmenn skipuðu sér um hana og legðu fram tiltekið brot af árlegum tekjum sínum til þess að styðja ákveðin verkefni í þróunarlöndum. Þessu meginatriði í skipulagi Hjálparstofnunarinnar er of skammt komið enn. En það er eindregin von, að þessu verði fram komið með traustum og virkum hætti innan tíðar. Ég óska viðtakendum þessa bréfs gleðilegra jóla og allrar blessunar Drottins. Með þökk og bróðurþeli, Forsiffan Augu litla drengsins í hlutverki stóra bróður tala skýrar en mörg orð. Við viljum koma erindi hans á framfæri með þeim hætti, sem augu hans ein megna að túlka. Gírónúmer neyðarsjóðs Hjálparstofnunar kirkjunnar er nr. 20000.

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1940

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.