Ólafsfirðingur - 23.01.1946, Side 1
\
OLAFSFIRÐINGUR
Ábyrgðamiaður: Ásgrímur Hartmannsson Útgef.: Sjálfstæðisfél. Ólafsfjarðar
I. árgangur Miðvikudaginn 23. .janúar 1946 1. töJnblað
Sjálfstæðisféiag Ölafsf jarðar vill
sameina alla Úlafsfirðinga um
hagsmunamál byggðarlagsins.
Árum saman hafa íbúar Ólafsfjarðar treyst stefnu
Sjálfstæðisflokksins bezt, og valið Sjálfstæðismenn
til að hafa forustu um málefni byggðarlagsins. Því
mun líka vart verða neitað, að forustumenn flestra
framkvæmda og reksturs í Ólafsfirði hafa verið og
eru sjálfstæðismenn. Andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins hafa þó ekki legið á liði sínu með að reyna að
grafa grunninn undan þeim sjálfstæðismönnum, er
staðið hafa fremstir um allar framkvæmdir. Hér á
árum áður, þegar margir einstaklingar stóðu oft höll-
um fæti, vegna erviðleika á rekstri útgerðarinnar,
og þegar byggðarlagið gat sig ekki hreyft vegna f jár-
skorts, hrópuðu þessir andstæðingar um afturhald,
íhald og auðvald, en sátu flestir hjá og reyndu engan
rekstur atvinnulífinu til eflingar. Þegar batnaði í ári
og möguleikar ukust til framkvæmda, og fyrrverandi
hreppsnefnd, geystist áfram með þær miklu fram-
kvæmdir, er hafa vakið athygli um allt land, hrópuðu
andstæðingar sjálfstæðismanna enn: Það er íhaldið,
sem ræður. Við verður að kollvarpa því!
I þeirri hreppsnefnd, sem síðast sat og illt verður
að mæla í móti, að hafi ýmist átt frumkvæði að eða
stuðlað að hinum miklu framkvæmdum, áttu að vísu
sæti 2 kommúnistar, en voru menn, sem voru ekki
meiri kommúnistar en það, að þeir settu sannfæringu
sína alltaf ofar, — línudansi flokksins. Enda var hin
ákjósanlegasta samvinna með þeim og öðrum hrepps-
nefndarmönnum og yfirleitt ríkti því sú stefna innan
hreppsnefndar, að hagur byggðarlagsins skyldi haf-
inn upp yfir allar flokkserjur. Þessi stefna samrýmd-
ist vilja sjálfstæðismanna, en öðru máli gengdi um
kommúnista, slík eining og samhugur samrýmdist
ekki línudansflokknum, við annan fulltrúa sinn innan
hreppsnefndar höfðu þeir í hótunum að reka hann úr
flokknum og komu því svo fyrir við bæjarstjórnar-
kosningarnar í fyrra, að þeir færðu hann úr efsta
sæti í þriðja, til að vera vissir um, að hann kæmist
ekki að, varðandi hinn fulltrúann höfðu þeir enn rót-
tækari aðferð, sem allir Ólafsfirðingar þekkja, enda
sennilega ekki talið hann jafn auðveldan til hlýðni.
Höfuðpaurar þessara aðgerða, þeir Sigursteinn og
Sigursveinn, létu svo fjölskylduna setja sig í öndvegi
flokkslistans við síðustu kosningar í Ólafsfirði. Og
nú hafa Ólafsfirðingar fengið tækifæri til að kynnast
þeirra starfsaðferðum innan bæjarstjórnar í heilt ár.
Strax á fyrsta fundi hófu þeir herferð sína innan
bæjarstjórnar til þess að koma þar á sundrungu og
upplausn, og sú stefna hefur einkennt þá allt síðast-
liðið ár. En útlit er fyrir, að margir þeirra kjósendur
síðast, hafi nú loks séð úlfinn gægjast undan
sauðargærunni og lítist ekki á skepnuna, því daglega
berast fréttir um, að fyrrverandi kjósendur þeirra
flýi sem fætur toga frá þessum „tilIagna-flokki“, og
telji sig eiga fótum sínum fjör að launa. Sjálfstæðis-
menn vita, að jafnvel þótt sumir af þessum mönnum
villist nú vegna nýjabrums til hins nýstofnaða Al-
þýðuflokks — muni þeir sömu menn finna það síðar,
og væntanlega flestir fyrir kosningar, að það er
stefna Sjálfstæðisflokksins, sem er heilbrigðust og
vænlegust til að auka á heill lands og þjóðar.
Sjálfstæðismenn hafa oftast lagt grundvöllinn að
þeim framkvæmdum eða fylgt þeim fastast eftir, er
hafnar hafa verið í Ólafsfirði og stefna flokksins er
meðal annars sú að reyna að sameina alla Ólafsfirð-
inga til þess að standa fast saman um hagsmunamál
byggðarlagsins. Að vinna að því að koma upp sem
fullkomnastri höfn, byggja skólahús og bæta kennsl-
una og skólastjórnina, auka útgerð, koma upp verk-
smiðjurekstri, auka landbúnað, bæta samgöngukerfið,
koma upp gróðurhúsum og ræktun grænmetis að
Reykjum. — Allt þetta og fleira vill Sjálfstæðisflokk-
urinn í Ólafsfirði vinna að, ekki með skrauttillögum,
heldur með skynsamlegri og hagsýnni stjórn á bæjar-
málum og auknum og bættum skilyrðum einstakl-
inga og félaga til atvinnurekstrar, sem verða mætfi
til að tryggja íbúunum, stöðugri og meiri atvinnu
enn nú er. Aukin útgerð, aukin iðnaður á að standa
undir gjöldunum til aukinna framkvæmda, en ekki
ósanngjarnar og óhóflegar álögur, þar munu sjálf-
stæðismenn standa á verði, eins og síðastliðið ár,
þegar kommúnistar sóttu sem fastast að leggja sem
mest á í útsvörum án nokkurs tillits til gjaldþols
íbúanna.
Ólafsfirðingar góðir! Látið ekki moldveður of-
stækisflokka villa ykkur sýn! Með rólegri yfirvegun
sjáið þið í gegnum grímu þeirra. Sjálfstæðismenn
vilja samvinnu við alla, sem af einhug vilja málefnum
byggðarlagsins vel. En því aðeins er samvinna allra
[landsbókasafnI
UíG83S2