Ólafsfirðingur - 23.01.1946, Side 2

Ólafsfirðingur - 23.01.1946, Side 2
2 ÓL AFSFIEÐINGUE Ólafsfirðinga um hagsmunamál byggðarlagsins tryggð, að sundrungaröflunum sé eytt. Standið fast saman og greiðið allir Sjálfstæðisflokknum atkvæði ykkar 27. janúar. SETJIÐ x við C. Ásgrímur Hartmannsson Hugleiðingar um áróðursskrif sósíalista í Ölafsfirði Sósíalistar í Ólafsfirði, þeir Sigursteinn Magnús- son skólastjóri og Sigursveinn D. Kristinsson, skrifa mikið um þessar mundir í blaðið ,,Mjölnir“ í Siglu- firði. Það er að vísu ekki nýtt; þeir hafa fyrr skrifað í það blað, að minnsta kosti held ég, að Ólafsfirðingar muni eftir stefnuskrá, sem þeir birtu í því blaði fyrir bæjarstjórnarkosningar þær fyrstu, sem fram fóru í Ólafsfirði 6. jan. f.á. Þeim, sem lásu það fræga plagg, mun ef til vill hafa þótt orðin fögur og loforðin stór og glæsileg, en ég geri þó ráð fyrir, að flestum — nema ef til vill sósíalistum sjálfum — hafi verið, og sé það, ljóst, að meira þarf til að framkvæma þá mörgu hluti, sem þar eru nefndir, — auk annarra nauðsynjamála lítils bæjar — en orðin ein. Ennfrem- ur er það mörgum kunnugt, að sum þeirra mála, sem þar eru tekin upp, voru og eru fremur stefnu- og áhugamál annarra en Sósíalista. En þessi fallega stefnuskrá þeirra sósíalista í bæjarmálum Ólafsfjarð- ar átti líka að tryggja þeim sæti 3ja eða fjögra full- trúa í bæjarstjóminni, svo ekki var að undra þó þeir reyndu að tína sem flest til. Þetta urðu þó tálvonir einar, því Ólafsfirðingar hafa enn ekki reynst eins auðginntir til fylgis við þá stefnu, sem sósíalistar fylgja, og við þeirra fögru loforð og miklu mælgi, eins og þeir hafa ætlast til. Fólkið ér ekki eins hugsunarsnautt og þeir halda, það gengur þeim ekki á hönd fyrir loforð, sem það veit, að ekki verða efnd, og orð, sem í raunveruleik- anum eiga sér engan stað. Og þeir þurfa ekki að halda, að þeir séu staddir í Rússlandi og fólkið þori ekki annað en fylgja þeim í blindni. Þeir eru enn á Islandi, og það eru Islendingar, sem þeir eru að reyna að blekkja til fylgis við stefnu, sem áreiðanlega mun aldrei festa djúpar rætur í íslenzku þjóðlífi, sem betur fer. — Stefnuskráin og aðrar þær greinar, sem þeir Sósíal- istar birtu um svipað leyti, gerðu sem sagt ekki sitt tilætlaða gagn, og em þeir nú byrjaðir að skrifa pistla sína í „Mjölnir“ á ný, því bæjarstjórnarkosn- ingar standa nú enn fyrir dyrum, og þykir þeim nú mikils við þurfa, að fá Ólafsfirðinga til að kjósa þá í bæjarstjórnina. Þeir eiga sennilega ekki von á því, að þeir hafi unnið sér mikið fylgi með verkum sínum í bæjarstjórninni eða öðrum afskiftum þeirra af framkvæmdamálum þessa bæjar, og þá á að reyna að vinna með orðagjálfrinu það sem á vantar. Það tel ég þó mjög vafasamt, að þeir efli fylgi sitt með skrifum sínum í „Mjölnir", því Ólafsfirðingar em það kunnugir bæ sínum og málum þar, að sósíalistum ætti að vera það ljóst, að blekkingar þeirra eru alger- lega gagnslausar. Það merkilegasta og athyglisverðasta við öll skrif þeirra Sigursteins og Sigursveins er það, að stund- um miklast þeir yfir framkvæmdum og framförum í Ólafsfirði, en í sömu andránni heldur afturhaldið eða íhaldið öllu í heljargreipum sínum, svo að engu verð- ur umþokað um framfaramál bæjarins fyrir þeim afturhaldsseggjum, sem nefna sig Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn. Stundum tala þeir um einhug íbú- anna og góðan vilja Ólafsfirðinga til nauðsynjamála, en í öðru orðinu eru Ólafsfirðingar alltof ópólitískir og þessvegna, að þeirra áliti, óhæfir til þess að vinna vel fyrir bæ sinn. Þetta kemur flestum dálítið einkennilega fyrir sjónir og skulum við því athuga þetta sjónarmið þeirra ofurlítið. Sósíalistar langar til að hafa betri ástæður til pólitískra árása á þá, sem þeir telja pólitíska and- stæðinga, en þeir hafa. Þessvegna reyna þeir í skrif- um sínum að vekja upp einhverja ímyndaða drauga, sem séu andstöðumenn allra góðra málefna í þessum bæ, en það tekst bara ekki betur en vonir standa til, því staðreyndirnar tala gegn vilja og óskum þeirra í þessum efnum. Þá reyna jTeir að grípa til þess úr- ræðis að þakka sér flestar framkv. og aukinn áhuga almennings fyrir bættum skilyrðum staðarins og stórhug þeirra Ólafsfirðinga, sem eitthvað vilja gera af viti fyrir bæinn og íbúa hans. Þessi tónn í Symfoniu þeirra hljómar illa í eyrum Ólafsfirðinga. Þeir Sósíalistar geta eins vel sagt okkur, að þeir stjórni gangi himintunglanna og hafi áhrif á öldurót hafsins, eins og það, að þeir geti þakkað sér eða kennt þróun tíma og lífs, bæði hér og um alla jörð. Og þeir geta sagt það öðrum en Ólafs- firðingum með þeim árangri, sem þeir óska, að þeím beri einum að þakka framkv. í Ólafsfirði og fram- farahug. Það, að Ólafsfirðingar séu svo ópólitískir, og séu þessvegna ekki færir um að vinna neitt að gagni fyrir bæ sinn fmnst mér talsvert frumleg kenning, en ef til vill skiljanleg manni eða mönnum, sem allt sjá með pólitískum gleraugum, og ekkert viðurkenna nema eigin pólitísku sjónarmið fái notið sín til fulls. Og ef þeir halda því fram 1 alvöru, að bæjarmálum okkar sé betur borgið, og að meira vinnist á í hags- muna- og framfaramálum bæjarins með pólitískri baráttu um sérhvert mál innan bæjarins heldur en góðum samstarfsvilja og góðviljuðum sjónarmiðum til málefnanna af þeim mönnum, sem að þeim vinna, hvar í flokki, sem þeir standa, þá er það mér of- vaxið að skilja velferðarhug þann, sem þeir þykjast vilja sýna okkur íbúum Ólafsfjarðar og þeim mörgu

x

Ólafsfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafsfirðingur
https://timarit.is/publication/1943

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.