Dögun - 03.01.1949, Side 2
2
DÖGUN
Mánudagurinn 3. janúar 194£
TYNDIRPEN
Það var eitt kvöld, fyrir
nokkru, að ég var á gangi á
götum bæjarins, og var á leið
heim. Allt í einu kemur mað-
ur þeysandi á reiðhjóli á móti
mér, beygir í veg fyrir mig og
stanzar rétt við tærnar á mér.
Ég bar strax kenzl á manninn,
þetta var sem sagt einn af harð-
soðnustu fylgismönnum „Sam-
einingarflokksins“ á Akranesi.
„Komdu sæll,“ segir hann, al-
veg formálalaust. „Þú skrifar
grein í blaðið okkar, það þarf
ekki að vera um pólitík."
„Ætlið þið að fara að gefa
út blað?“ spyr ég, með hálf-
gerðum drissingi. „Já, því ekki
það,“ segir hann. „það er ekki
of mikið þó gefin séu út þrjú
blöð í svona stórum bæ. en eins
og þú veizt eru þau ekki nema
tvö.“ „Skrattann ætli að ég sé
að skrifa í þetta blað ykkar,“
segi ég, „skyldu ekki vera
nógir aðrir til þess?“ „Og jú, en
ekki er það sama hver ..Hann-
esinn“ er, stendur i visunni.
Okkur langar til, sjáðu! að fá
eitthvað frá þér í blaðið, þú
hefir svo skrambi góðann
penna. ‘ ..Nei, þetta er hrein-
asta bull,“ segi ég, og ætla að
snúa hann af laginu. Ég á ekki
einn einasta, ég hefi sem sagt
ekki skrifað stafkrók síðan ég
skreið af skolabekk, og allir
mínir pennar illir og góðir fyr-
ir löngu týndir.“ ..Hvað ætli
bú gerir þetta ekld,“ þráaðist
hann, og lét sem bann tryði
mér ekki. „Jæja þá það,“ segi
ég, því ég sá að hann ætlaði
ekki að gefa sig. „Ég á til gam-
alt pennaskaft, einhvers staðar
i fórum mínum, ég klóra þá
bara með því pennalausu eitt-
hvað í blaðið ykkar, en þið
megið búast við því að fram-
leiðslan fari eftir áhaldinu.11
„Skítt með það!“ hló hann.
hissaði sér á hjólinu, spólaði
löppunum, og þaut fram hjá
mér öðru megin eins og byssu-
skot, og hvarf á götunni.
Þegar heim kom hóf ég strax
leit að pennaskaftinu og fann
það fljótlega, en ekki leizt mér
á að enda loforð mitt að skrifa
með þvi pennalausu. Ég tók nú
að grafa niður í gamlar skúffur
og skrankassa, ef verið gæti að
ég rækist a eitthvað af hinum
týndu pennum; fann ég að
lokum nokkur stykki, og koma
nú afleiðingar þess hér fram.
Úr heimahögum.
Bílarnir hoppuðu og hjuggu
og slengdust til, svo að marr-
aði og skrölti í pöllunum á
þeim. Kerruhesturinn sperrtist
við og hnykktist út á hliðarnar,
sitt á hvað, og barnakerran
víxlaðist og skrönglaðist upp og
niður, og stöðvaðist við næstum
þvi annan hvern snúning hjól-
anna um sjálft sig. „Mikið
fjári geta göturnar verið hol-
óttan og forugan," sagði ég við
sjálfan mig, labbandi í leðj-
unni á annarri rönd götunnar,
leitaðist við að toga af mér
skógarmana í hvert sinn er
ég steig niður, og skilja mig
eftir á sokkunum.
Svona hafa þær alltaf verið
og verða alltaf, okkar gömlu,
góðu og þjóðlegu moldargötur,
ef dropi fellur úr lofti, ófærar,
bæði fólki og farartækjum. Er
nú ekki mál til komið að fara
að hefjast handa um að losna
við þessar ófétis götur með
því að steypa eða malbika smá-
spotta af þeim árlega? Hið
þjóðminjalega gildi þeirra
mætti varðveita með því að
taka þær á filmu, og væri þá
þeim málum borgið, þótt þær
hyrfíi smátt og smátt undir
malbiks- eða steypulag.
Jólaglaðningur.
Meirihluti þings hespaði og
samþykkti frumvarp um dýr-
tíðarráðstafanir ríkisstjórnar-
innar um síðustu helgi fyrir
jól.
Frumvarp þetta veitir ýms-
um stéttum þjóðfélagsins all-
veruleg fríðindi; munu til
dæmis bátaútvegsmenn þeir
sem verst eru stæðir, og nokkrir
fleiri atvinnurekendur sem tap-
hafa, fá uppgjöf skulda, og nú
lán, ef til vill án endurgreiðslu,
og á borðum verkamanna og
annarra launþega mun verð-
fallskássa og söluskattssúpa
verða til drjúgra muna í fram-
tíðinni.
Ekki er vitað hve næringar-
né bætiefnarík þessi fæða muni
verða, enda skiptir það minna
máli.
Allt í lagi.
Bandaríkjaþing hefur sam-
þykkt, eftir því sem fregnir
herma, að veita Nankingstjórn-
inni í Kína 69 millj. dollara
lán til almennra þarfa og 125
millj. dollara lán sem hernaðar-
hjálp. „Þeir verða að sletta
skyrinu sem eiga það,“ sagði
Kölski forðum.
Vondur maður.
Horner, framkvæmdastjóri
sambands námuverkamanna í
Englandi hefir nú verið harð-
lega víttur, af þingi námu-
mann, og kvað jafnvel eiga að
fá enn betur á baukinn seinna,
eins og honum líka er mátu-
legt, fyrir að láta i ljósi samúð
með frönskum kommúnistum,
og styðja — eða vilja styðja þá
— í verkfallsbrölti þeirra í
haust, eins og eitt blaðið kemst
að orði. Skyldi honum ekki
hafa verið skammar nær að
týna heldur nokkrar kráku-
skeljar við strendur Englands
og senda þessum „verkfalls-
brölturum,“ til að lepja sult-
inn með? . Frosti.
Jólafagnaður.
Á þriðja í jólum efndi Iðnaðar-
mannafélag Akraness til jólafagnaðar
fyrir öll börn bæjarins eins og að
undanförnu. Skemmtun þessi fór vel
fram og eiga iðnaðarmenn þákkir
skilið fyrir.
Síjónaefni.
Um jólin opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Guðrún Hjartar, Bjarkagrund
og Adam Þorgeirsson, Vesturgötu
42. — Friða Lárusdóttir, Brúarlandi,
og Stefán Teitsson, Suðurgötu 21.
Hjúskapur.
Á aðfangadag jóla voru gefin
saman i hjónaband, Hrafnhildur
Svandís Þorgeirsdóttir, og Benedikt
Fr. Vestmann. Heimili þeirra er á
Vesturgötu 78.
Bókasafn Akraness
er á Vesturgötu 48, opið kl. 4—
6,30 alla virka daga.
Dánardægur.
Látist hafa hér i bæ og nágrenni
í desember s. 1.:
Guðrún Þorsteinsdóttir frá Kringlu,
f. 22. nóv. 1870.
Guðrún Björnsdóttir frá Rein. f.
9. marz 1896.
Friðrik Bergmann, Litlateig, f. 25.
sept. 1870.
Felix Eyjólfsson frá Bræðratungu,
f. 27. sept. 1893.
Jensína Laufey Þorsteinsdóttir,
Klafastöðum, f. 24. júlí 1915.
Frá Gagnfræðaskól-
anum.
Miðsvetrarprófum lauk í Gagn-
fræðaskólanum nokkru fyrir jólin, og
höfðu þá staðið yfir i viku.
Jólaleyfi var gefið að prófunum
loknum, 21. desember.
Nemendur gáfu út bláS eins og
að undanförnu, til að afla ferðasjóði
skólans tekna.
Félagslíf nemenda er með líku sniði
og undanfarið. Sú nýbreytni var
tekin upp, að seint í nóvember var
haldið kaffikvöld í Báruhúsinu og
skólafólki gefinn kostur ó að bjóða
með sér foreldrum og vinum. Sam-
koman var fjölsótt og fluttu nem-
endur sjálfir flest skemmtiatriðin.
TIL LEIGU
er gott herbergi.
Upplýsingar á Bjarkagrund 11.
HurSarhúnar
nýkomnir.
Veró kr. 6.85 settið.
Verzl. Staðarfell
Sími 150.
________________________________J
----=— 'N
Gleðilegt nýtt ár!
Með þökk fyrir viðskiptin.
Verzlunin GARÐUR
Gleðilegt nýtt ár!
Með þökk fyrir viðskiptin.
Verzlunin Bjarg h.f.
GAMAN OG ALVARA
Bæjarbúar ræða það mikið sin á
milli, hvort ekki muni verða byggðir
fleiri verkaman.iabústaðir Árlega
leggur bærinn fram allmikið fé i þvi
augnamiði. Hefir bæjarstjórn kynnt
sér, hvað líður byggingarframkvæmd-
um hjá Byggingafélagi verkamanna,
eða hefir hún beitt sér fyrir því að
lán fengist til áframhaldandi bygg-
inga? — Við sem erum húsnæðis-
laus tökum eftir því, að þar hefur
„Framtak" „ Skaga“ stöðvast.
—★—
Það hefur flogið fyrir að stjórnar
flokkarnir íslenzku séu að athuga á
hvem hátt hægt sé að koma því til
leiðar, að sólin komi framvegis upp
í vestri, en ekki 1 austri, svona 1
virðingarskyni við Marshall-hjálpina.
—★—
Orðrómur gengur um það, að upþ
hafi komið heimiliskritur á hinu
friðsama heimili Framtaks-Skaga út
Bókasafn skólans er opið til útlána
hvern laugardag, og hefir nokkuð
verið keypt af nýjum bókum. Bóka-
vörður hefir verið nú og í fyrravetur
Bragi Þórðarson i 2. bekk.
(Samkv. upplýsingum frá skólastj.)
af gamalli plötu, sem kvað heita
Stétt með stétt. Vér brosum þegar
litla ihaldið fer að standa uppi I
hárinu á honum pabba sínum.
—★—
Til „Framtaks“
Fálkinn er þitt friSarmerki,
fuglinn þessi heimski, sterki,
oft hann sést aS illu verki,
hann étur sína bræSur þrátt
lífsrétt þeirra lítur smátt.
Signý.
Ný fjöldamorð í Grikk-
landi.
Fyrir stuttu síðan voru tekn-
ir af lífi í Tripoli á Pellops-
skaga í Grikklandi 13 komm-
únistar, 7 þeirra konur. Her-
réttur Aþenu-stjórnarinnar
hafði dæmt þetta fólk til dauða
fyrir stuðning við lýðræðisher
Markosar. í Aþenu voru hand-
teknir 37 menn, þar af 9 konur.
Er þeim gefið að sök að hafa
hvatt menn til að ganga í lýð-
ræðisherinn og breiða út bylt-
ingarrit. Þetta fólk verður og
dregið fyrir herrétt.