Dögun - 03.01.1949, Qupperneq 3

Dögun - 03.01.1949, Qupperneq 3
Mánudagurinn 3. janúar 1949 DÖGUN 3 Vindhögg kapitalismans I öðru tölublaði „Framtaks“ er grein með fyrirsögninni: „Kommúnisminn er hrörnandi þöll“, og af því maður er orðinn pví svo vanur að í herbúðum afturhaldsaflanna í landinu séu hlutirnir sjaldnast nefndir réttum nöfnum, býst ég við að þarna sé átt við stefnu þá sem sósíalismi heitir og langar mig að gera smáathugasemd við grein þessa. Greinarhöfundurinn, sem ekki lætur nafns síns getið og því ^afalaust einhver úr ritnefnd blaðsinS, byrjar grein sína á því að segja að Sósíalistar telji sig hina einlægustu og ótrauðustu fylgismenn allra framfara. Jú, mikið rétt, það hafa þeir sýnt 'lð þeir vissulega eru, enda reynir greinarhöfundur ekki á nokk- Urn hátt að sýna fram á að svo sé ekki. Svo heldur greinarhöf. áfram og þykist vera skelfing findinn og segir að Sósíalistar telji 'sig hafa með minnihluta sínum „þvingað" meirihluta þingsins til að fallast á og standa að þeim stórfelldu umbótum sem fyrrv. úkisstjórn framkvæmdi og ennfremur að hinir tveir ráðherrar þeirra hafi „þrautpínt“ meðráðherra sína til undirgefni við sig °g sína stefnu. Mikil undur er þessi greinarhöfundur gáfaður haður. I hans augum er ekkert tæki til, til þess að vinna sinni stefnu fylgi og sínum málum framgang nema einhver píningar- ''erkfæri. Einstaklega skemmtilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn ef t'essi maður túlkar hugsunarhátt flokksins. Getur þessi bless- ■'ður greinarhöfundur ekki skilið einföldustu staðreyndir. Getur Iiann ekki skilið að það aðhald, sem meðráðherrar Sósíalista pöfðu af þeim í stjórninni og sömuleiðis meirihluti þings átti '-klvert skylt við neinar píningar eða persónulegan ótta af viss- "m mönnum heldur hitt,. að allir hinir skynsamari menn stjórn- firflokkanna sáu að þessir menn túlkuðu skoðanir og kröfur al- i^ýðunnar í landinu, þ. e. þjóðarinnar sjálfrar. Þeir sáu það, að var gagnslaust að berjast á móti þvi sem sjáanlegt og sannan- ^egt var að var vilji almennings í landinu. Að minnsta kosti sáu þeir að heimskulegt var að vega beint framan að íslenzkri ‘'lþýðu cg slógu því undan í bili, sennilega meðan þeir voru hugsa upp einhver lævís ráð til að blekkja alþýðuna og véla svo hægar væri að hnekkja framfara- og réttlætisvilja kennar, enda erum við farin að sjá frumsýningarnar að þeim ieik, sennilega koma aðalsýningarnar áður en langt líður. Það sem raunverulega hefur gerzt í stjórnmálunum undan- iarin ár, er, að vegna hinnar gífurlegu aukningar Sósíalista- flokksins, cg vegna þess að þeir sem Sósialistar hafa sent á þing Irir sig, hafa sýnt að þeir teldu sig ekki komna þangað til þess svíkja sína yfirlýstu stefnuskrá, eins og margir þingmenn fánna flokkanna virðast álíta að sjálfsagt sé að gera, vegna þess r,g vegna óttans við dóm kjósendanna og þar af leiðandi fýlgis- á'un flokka sinna, hafa afturhaldsflokkarnir fylgt framfara- og 'mbótastefnu Sósíalista nokkuð á undanförnum árum, en vitan- 9ga reynt að telja fólki trú um að þettá sé og hafi alltaf verið leirra einlægur vilji. Því vöknuðu mennirnir ekki fyrr en þetta, ýrst þeir voru búnir að ganga með þennan einkennilega fram- aravilja árum saman? Enginn hélt aftur af þeim. 1 mörg ár öru þeir búnir að fara með stjórn landsins, en þó vöknuðu teir ekki til raunhæfra framfara fyrr en Sósíalistaflokkurinn 'ár orðinn sterkur flokkur og kominn í stjórn. Já, ég spyr, Wers vegna rumskuðu þessir „framfara“-flokkar ekki fyrr? Svo þykist ghéinarhöf. benda á,: eina stórsynd Sósialista og hún er, að þeir bendi mönnum á „rauða ljósvitann í austri.“ Eg sé nú ekki að það sé nein stórsynd þó menn kannist við að merki sósialismans var fyrst hafið í austri. Mér finnst það áð möi'gu leyti táknrænt að svo er. Eg veit ekki betur en ljós- og orkugjafi jarðarinnar, sólin komi upp í austri, og veit ég ekki til að menn hafi haft neitt við það að athuga, eða hafi ósk- að eftir að hún kæmi heldur upp í vestri. Sósíalisminn er að sínu leyti ljós-og orkugjafi þjak- aðrar alþýðu allra landa og því táknrænt að merki hans er fyrst hafið í austri og eins og sólin viðheldur lífinu á jörðinni með birtu sinni og yl, eins mun sósíalisminn halda við kjarki undirokaðrar alþýðu allra landa og gefa henni von og styrk unz sigur er unninn á öllu misrétti. Svo kemur nú rúsínan í pylsuendanum hjá greinarhöf- undi. „Hin fámenna klíka kommúnista hér á landi sem gengur með einræðishyggjuna í maganum.“ Hafið þið heyrt dásamlegra orðatiltæki? Því í ósköpunum ráðleggur ekki þessi góðgjarni greinarhöfund- ur þessari „fámennu kliku“ að laxera svo hún losni við þennan óþverra úr innyflunum? Nei, góðir hálsar, hvorki þessi greinarhöfundur né aðrir sem alltaf eru að brýna okkur ís- lenzka sósíalista á einræðis- hyggju, geta bent á eitt einasta dæmi þar sem sósíalistar hafa sýnt minnstu tilraun til ein- ræðis. Aftur á móti veit ég ekki hvað er einræði ef það er ekki viss tegund einræðis sem Sjálf- stæðisflokkurinn alltaf og æfin- lega hefur barizt fyrir, sem sé að hinir ríkari eigi skilyrðis- laust að ráða yfir hinum fá- tæku og setja þeim þá kosti sem þeim sýnist. Greinarhöf. segir að Sósíal- ismi stingi ekki rótum nema í jarðveg „vitneskjuleysis“. Nú er það vitað mál, og óum- deilt, að íslenzk alþýða er betur menntuð en alþýða nokkurs annars lands, og einnig vita allir að Sósíalismi þróast ekki að ráði hér fyrr en á síðari árum, einmitt þegar alþýða þessa lands var orðin enn al- mennara betur menntuð en nokkru sinni fyrr. En þó segir þessi greinarhöf. óbeint að al- þýðan hér sé heimsk og vit- neskjulaus. „Gjafir eru yður gefnar synir mínir, og eruð þið menn að minni ef þið laun- ið öngu,“ sagði Bergþóra forð- um og mætti íslenzk alþýða minnast orða þessara er slíkar gjafir eru að henni réttar.. — SíldveiSarnar Sárum vonbrigðum hefur það valdið allri íslenzku þjóð- inni, hversu sildveiðarnar í Hvalfirði hafa brugðizt á þessu hausti. Aðallega mun þó tvenns konar sjónarmiða hafa gætt í þessum vonbrigðum. Annars vegar vonbrigði sjómanna, verkamanna og útvegsmanná um betri lífsafkomu og fjár- Greinarhöf. er að gambra með að Sósíalistar hafi hleypt á stað pólitískum verkföllum. Þetta er nú svo heimskulegt að það er varla svaravert. Ég geri ráð fyrir að greinarhöf. eigi að ein- hverju leyti þarna við hina löngu og erfiðu kjaradeilu Dagsbrúnar nú, ekki alls fyrir löngu, en það tel ég hámark ósvífni af Akurnesing að minn- ast á þá deilu, þar sem Akur- nesingar neituðu að rétta fé- lagsbræðrum sínum í Reykja- vík hjálparhönd í deilu þeirra en hirtu svo hagnaðinn af sigr- inum að deilunni afstaðinni. Greinarhöf. segir að kosn- ingin til Alþýðusambandsþings sýni fylgishrun Sósíalista í landinu. Þetta er algerlega út í loftið sagt og hefur ekki við neitt að styðjast. En yfir kosn- ingum sem þessum gleðjast Sjálfstæðismenn, kosningum. sem unnar eru að nafninu til á lýðræðislegan hátt en með augljósum svikum og prettum og Alþýðusambandið tekið í hendur þessara mjög vafasömu fulltrúa með beinu ofbeldi. 1 gegnum alla grein þessa dásam- lega höf. heyrist náhrafnahlakk Sjálfstæðisflokksins yfir að hafa nú náð því sem þeir kalla „kverkatakinu á Alþýðusam- bandinu". En ég gæti trúað að þeir hlakki helzt til snemma, því þó að íslenzk alþýða sé nú illa stödd vegna þess að hafa látið afturhaldsöflin í verklýðs- hreyfingunni svínbeygja sig og blekkja, þá er það von mín og trú að hún eigi eftir að rétta sig úr kútnum og sýna þeim háu herrum að þó það sé hægt að blekkja íslenzka al- þýðu um sinn og tekizt hafi að ná af henni heildarsamtök- um hennar nú í bili með kosn- ingasvikum og skefjalausum áróðri, þá er aldrei hægt að sigra baráttuvilja og þrek hennar, og að hún kemur harð- sæknari og samstilltari úr hverri raun, og ætti ég ekki bágt með að trúa að næstu Al- þingiskosningar ættu eftir að færa þeim heim sanninn um það. hagslegt sjálfstæði en ella. Hins vegar vonbrigði heildsala, braskara og heimshornaflakk- ara yfir léttari sjóðum gjald- eyris, til að ausa úr, í sitt þjóð- kunna starf. Lesendur Dögun- ar geta sjálfir sem bezt gert upp á milli þessara vonbrigða. Hinir sístarfandi og vökulu sjómenn hafa sannarlega gjört allt, sem í þeirra valdi stóð á því herrans ári 1948, til þess að ná gulli úr greipum Ægis, en það hefur ekki legið laust, og eru því tekjur þeirra eftir árið mjög rýrar, en eins og allir vita ört vaxandi dýrtíð. Nú er svo högum háttað hjá okkur Akurnesingum, eins og allir vita, að lífsafkoma öll fellur og stendur með sjávar- útveginum. Hvernig er nú um- horfs hjá okkur í þeim efnum? Litil beitusíld til vetrarvertíðar- innar, engin netaveiðafæri (svo sem troll eða snurvoð), sem af sumum munu verða kölluð rán- yrkjuveiðarfæri, en um það verður ekki deilt hér. Byrjað er að frysta hér beitusíld af þeim litla afla sem veiddist í Hvalfirði í haust en handar- bakastjórn látin ráða og ekki nýtt út í æsar afköstf rysti- húsanna eins og fyllsta ástæða er þó til, og svo þar ofan á kaupið seldur all verulegur hluti af hinni frystu síld, út úr bænum, sem mun þó hafa tekizt að kippa til baka á síð- ustu stundu. Þarna sést spegil- mynd af hinu frjálsa framtaki einstaklingsins, þegar mest er þörfin á að það komi fjöldanum að notum. Vonandi rætist úr síldveið- unum í Hvalfirði eftir áramót- in, en þó svo fari að þær vonir bregðist, verður eitthvað að rífa úr hryggjunum, annað dugar ekki. Togarasjómaður skrifar: „. . . . ég hélt að á Akranesi væru sjómenn og helst ekkert nema sjómenn og að við tog- arakarlarnir mættum vænta liðsinnis hjá iulltrúum Verk- lýðsfélags Akraness, um leng- ingu hvíldartímans okkar. En svo sá ég nöfn þeirra birt i hópi þeirra fulitrúa er greiddu atkvæði á móti áskorun, er fram kom á 21. þingi Alþýðu- sambands Islands, um að skora á Alþingi að samþykkja frum- varp Hermanns Guðmunds- sonar og Sigurðar Guðnasonar, um lengingu hvíldartímans á íslenzkum togurum. Svo brugð- ust krosstré sem önnur tré.“

x

Dögun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.