Dögun - 20.03.1949, Side 3

Dögun - 20.03.1949, Side 3
Sunnudagurinn 20. marz Í949 DÖGUN 3 Vopnlaus þjóð Allt hið þjakaða mannkyn þráir frið. Allt hið þjakaða mann- kyn þráir vopna- og vígalausan heim. Við Islendingar megum á vissan hátt kallast útverðir og tákn þessa friðarvilja og friðarviðleitni. Við höfum að fullu og öllu sagt skilið við vopnin og sannað, að það er miklu affarasælla að vera án þeirra. Við íslendingar erum ekki skapminni en aðrar þjóðir, nema síður sé, en við höfum sýnt og sannað, að hægt er að útkljá öll þjóðfélagsleg deilumál án vopna. Engin þjóð getur talið sér ógnað af vopnlausri þjóð, og að biðja um land slíkrar þjóðar til hernaðarþarfa er níðingsverk, og uppgjöf á friðarhugsjón mannkynsins. Að taka land slíkrar þjóðar herskildi er viðbjóðslegt, en þó skömminni til skárra en að æskja þess, að þjóðin sjálf gefi fríviljuglega frá sér allar sínar helgustu hugsjónir. ★ Ef við íslendingar biðjum um hervernd, er það sama og hopa af hólmi, hopa af hólmi friðarhugsjóna þeirra, er við höfum löngu viðurkennt og sannað, að eiga fullan rétt á sér. Ef við biðjum um vopnavernd er það á vissan hátt rothögg á friðarvonir og friðarhugsjónir hins þjakaða mannkyns. Hvað segir kirkjan um slíkt? Hvað segja hinir vigðu þjónar Jesú Krists, friðarins postula? Getur nokkur þeirra óskað eftir saklausu blóði yfir höfuð sín og sinna? Á þesu eina sviði, framkvæmd friðarhugsjóna kristninnar, komust við Islendingar einna næst því að geta heitið kristnir menn. Á nú einnig að hopa frá því vegna ímyndaðrar eða ekki ímyndaðrar hættu, sama hvort heldur er. ★ „Ó, þér trúarveikir,“ sagði Kristur. Á 1949. ári frá fæðingu Krists er ennþá engin þjóð, sem þorir að fylgja friðarhugsjón kristninnar. Geta ekki einu sinni prestamir trúað því, að guði sé megnugt að varðveita þessa þjóð, þetta lifandi tákn friðar- viljans, og þá einnig megnugt að þurrka hana út eins og ibúa Sódóma og Gómorra, ef einnig hún bregst hlutverki sínu? Það virðist nú vissulega vera að snúa hlutunum við, þegar við sósíalistar, sem kirkjan dæmir guðleysingja og trúníðinga, finnum okkur knúða til að ganga fram fyrir skjöldu og segja þjóð vorri þau orð, sem vissulega ættu nú að heyrast af vörum allra presta vorra og hljóma úr hverjum predikunar- stól íslenzku kirkjunnar. „Hvert er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?“ Ef við eigum nú að fleygja frá oss af fúsum vilja öllu, sem áunnizt hefur með langri baráttu, bæði í sjálfstæðismálum þjóðarinnar og einnig í þessu friðarins hugsjónamáli, afvopnun þjóðarinnar, fyrsta sporinu í afvopnun heimsins. ★ Það hefur löngum verið hugsjón Islendinga, að það sé betra að falla með sæmd, en lifa við skömm. Ef við lánum nú land vort með frjálsum vilja til hernaðarþarfa, eigum við víst, hvorí sem við lifum hildarleikinn af eða ekki, að hljóta þann vitnis- burð eða grafskrift hjá þeim sárþjökuðu sálum sem þá lifa: Islendingar lánuðu land sitt og allt sem þeir áttu til þess, að auðveldara væri fyrir hina stríðssoltnu menn að koma styrj- öldinni af stað, þeir bera ábyrgð á miklu af því blóði, sem nú hefur flotið um þessa jörð. Það væri vissulega nýr þáttur i sögu íslenzku þjóðarinnar að fá slíkan vitnisburð. ★ Ef við hins vegar neitum að eiga nokkurn þátt í þessum átökum, höfum við meiri líkur til að lifa hildarleikinn af. ef til stríðs kemur, og höfum að honum loknum þó alltaf hreinan og óflekkaðan skjöld af því blóði, sem þar yrði úthellt. Nei, hvort sem á málið er litið frá trúarlegu, hagfræðilegu eða þjóðlegu sjónarmiði, er það ófrávikjanleg skylda okkar að halda fast við hlutleysi okkar í styrjöldum og trúa á mátt frið- arins og hins góða í mönnunum. - Bandaríkin lau Framhald af 1. síðu. óhætt fyrir þessa landsölu- menn, að leggja þetta mál und- ir dóm þjóðarinnar, því eftir því sem Bjarni Ben upplýsir í Washington, eru engir hér á landi á móti herstöðvum og öðrum undirlægjuhætti við Bandaríkin, en „kommúnistar" og þeir munu vera 10% af þjóðinni. „Lýgur þú nú enn. Eyjólfur." Það er einkennandi fyrir ráðherra þessarar núver- andi stjórnar, hvað ósannindin renna liðugt upp úr þeim, þeg- ar þeir eru komnir út fyrir landsteinana. Ef til vill sýnir þetta, að Islendingseðlið sé ekki alveg dautt í þessum mönnum fyrst þeir virðast eiga erfiðara með ósannindin, þegar þeir eru á íslenzkri grund, eða kannske þetta stafi bara aðeins af því, að þeir vita, að hér heima eru ósannindin tafarlaust rekin of- an í þá aftur, og virðist að raunar trúlegra að þess vegna losnar um allar flóðgáttir ó- sannsöglinnar hjá þessum mönnum, um leið og þeir stíga á erlenda grund. Jafnvel þó þessum mönnum. sem æstastir eru í undirlægju- skap sínum við yfirdrottnun Bandarikjanna, gæti tekizt að koma samþykkt um aðild Is- lands í þessu hernaðarbanda- lagi í gegnum þingið, er það hrein lögleysa, því menn þeir, sem það samþykktu, hafa enga heimild til þess. Þeir eru allir kosnir af þjóðinni til þess að standa vörð um sjálfstæði þjóð- arinnar og verja landsréttindi vor, og þeir sóru og sárt við lögðu, er þeir voru að dorga eftir atkvæðum við síðustu kosningar, að þeir skyldu trú- lega standa vörð um þessi mál. Þetta sviku þeir nú flestir strax er á þing kom, með samþykkt Keflavíkursamningsins, og eru því siðferðilega búnir að tapa umboði því, sem kjósendurnir fólu þeim. AndvaraleysiS er stórhœttulegt En hvernig má það vera, að þessir menn skuli vera komnir svo langt í að farga okkar helgustu landsréttind- um? Hvernig má það vera, að allur almenningur virðist meira að segja enn sofa svefni andvaraleysisins og láta þannig teyma sig óafvitandi á ánauð arbásinn? Jú, það er raunaleg stað- reynd, að öllum þorra manna finnst sér ekki koma við að hlusta á stjórnmál eða neitt, sem að því lýtur, nema rétt um kosningar. Þá hugsa þeir kann- ske pínulítið, og svo að kosn- ingunum loknum fara þeir ró- legir heim „og leggja sig,“ og telja sig svo eiga „frí“ frá öllu slíku næstu fjögur árin. Það er auðséð á öllu, að þessir land- sölumenn, sem nú sitja í stjórn, hafa treyst á þessa værukærð kjósendanna, þegar þeir gengu út í síðustu kosningabaráttu, og sóru þar að verja öll okkar landsréttindi vitandi vits, að ia leppum sínúm þeir ætluðu að svíkja öll sín orð og eiða strax að kosningum loknum, og enn er þjóðin svo dofin, að hún þegir að miklu leyti við þeim svívirðilega lyga- áróðri, sem blöð stjórnarflokk- anna bera daglega á borð fyrir hana. Því eru Islendingar til fulls vakandi um sín velferðar- mál og ætti að vera búið að trutta svo rækilega við þessum mönnum, að þeim væri ekki lengur vært í þingsölunum til að saurga þar löggjafarsam- komu þjóðarinnar. Nei, nú þurfa allir sannir íslendingar að spyrna við fót- um, áður en lengra er komið út í foraðið. Hingað og ekki lengra. Þessi stjórn vérður að víkja og ábyrgir menn að taka við, ef okkur á að verða bjarg- að frá þvi að verða hjáleigu- ríki Bandaríkjanna. Mútuþægni bjálfanna og svefn hinna rólyndu er þáS, sem treyst er á. Það er auðvelt að skilja til- gang Bandaríkjanna með öllum þessum svokölluðu „gjöfum‘“ sínum. Hinir ráðandi menn þar vita vel hvað þeir eru að gera, er þeir rétta mútur sínar að hinum auðs- og valdasoltnu mönnum. Það hefur löngum þótt arðvænlegt til yfirdrottn- unar, að kaupa sál og sann- færingu ráðandi manna þjóð anna, ef hægt hefur verið að sjá leik á borði með slíkt, og það virðist hafa gengið allgreið- lega hvað snertir þessa íslenzku leppa. Islenzk alþýða hefur nú aldrei gert sér miklar vonir um hinn svokallaða „Sjálf- stæðisflokk." — Forystumenn hans hafa nú aldrei farið bein- línis dult með það, að þeir hafi Mammon fyrir sinn guð, en af Alþýðuflokknum var vissulega annars vænst, en að hann seldi sál og sannfæringu strax og eitthvað slíkt væri í boði, en það er nú vissulega komið á daginn, að þetta gat komið fyr- ir. Forystumenn Framsóknar- flokksins hafa í þessu herstöðv- armáli komið fram líkt og belja með kálfsótt, sem aldrei getur á sama stað staðið augna- blik, og er ekki gott að vita, hvað úr þessu japli þeirra verð- ur á endanum. Sósíalistaflokkurinn er sá eini af flokkunum, þar sem hver og einn, sem eitthvað hef- ur látið til sín heyra um þetta mál, hefur verið heill og óskipt- ur að því að verja sjálfstæði þjóðarinnar og benda á hætt- una, sem fellst í landsréttinda- afsali stjórnarinnar, og er það vissulega skiljanlegt af þeim rökum, að sá flokkur saman- stendur af alþýðufólki. tJr þess röðum hafa alltaf beztu bar- áttumennirnir í sjálfstæðismál- um þjóðarinnar komið, en síð- ur frá hinum rikari stéttum þjóðfélagsins. I þeim flokki er fólkið, sem berst fyrir hugsjón- um og mannfélag9umbótum. en hefur ekki selt sál sína Mammoni, fólkið, sem aldrei verður keypt fyrir peninga eða vald. — Þess vegna er hinn kapitaliski heim- ur í æðislegri tryllingu að reyna að berja þessi öfl niður, og eyðir til þess milljónum í Marshalllánum og öðru sliku, þvi þeir finna, að með heiðar- legu móti, ráða þeir ekkert við þessa þróun. Þeir vita, að þau öfl, sem þeir ráða yfir, auður og metorð, megnar ekkert á móti hugsjónum og baráttu- kjarki þessa fólks, sem er vakn- að til þess að finna sína stétt- arlegu köllun í lifinu. Þess vegna er þeirra eina traust, mennirnir, sem hægt er að kaupa, og mennirnir, sem hægt er að stinga svefnþorn, svo þeir láta svikin afskiptalaus. Ætlar þú, lesandi góður, að leiða hjá þér öll afskipti af þessu máli og samþykkja svikin með þögn- inni? Þetta mál, hernaðarbanda- lagsmálið, er hátt hafið yfir alla flokkapólitík, þetta mál er mál allra sannra Islendinga, og það veltur ósegjanlega mikið á hverjum og einstökum í þessu máli, þar má enginn, alls eng- inn skerast úr leik. Rússagrýlan, óskabarn íslenzka afturhaldsins. Vegna þess, að allir þeir sósíalistar, sem hafa látið til sín heyra í þessu máli, hafa dyggilega túlkað málstað Is- lendinga en ekki mælt með undirlægjusemi við Bandarík- in, höfum við sósialistar fengið svívirðilegan lygaáróður í hverju málgagni þessarar lepp- stjórnar, sem Bandarikin eiga hér. Því er haldið fram, að við viljum vinna að því að Bússar nái hér bólfestu og yfirráðum. Þetta er bjálfaleg og heimsku- leg ósannindaflækja, og sýnir úrræðaleysi og vandræði þess- ara aumu þjóna. Bússar hafa aldrei farið fram á nein hlunn- indi hér eða sýnt okkyr neina yfirdrottnunargirni, og ég er sannfærð um, að enginn Is- lendingur óskar eftir yfirráð- um þeirra né vilji stuðla að þeim. En hitt er staðreynd, að æ meiri fjöldi fólks fylkir sér nú undir merki sósíalismans, og það er það, sem þessir mann- onsdýrkendur eru hræddir við og eru alveg að ærast ut af, og á þeirra máli heitir allur sósial- ismi „Rússadýrkun.“ Já, þeim ferstað vera að reyna að núa öðrum svívirðing- um um nasir, þessum mönnum sem skjallega er hægt að sanna á þá auðvirðilegustu þjónkun við erlend yfirráð, sem nokk- urn tíma hafa þekkst á þessu landi. Nei, góðir hálsar, hér skal staðar numið. ViS mótmœlum öll Nú heitir gamla Frón á hvern son og dóttir, að standa vörð um lífæð þjóðarinnar, sjálfsásökunarrétt og sjálfstæði þessa lands. E. Kristmundsd.

x

Dögun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.