Dögun - 16.09.1949, Blaðsíða 3
Föstudaginn 16. sept 1949
3
DÖGUN
Bœjarbláð Sósíalistafélags Akraness
Ritnefnd:
SIGURDÓR SIGURÐSSON
ELlNBORG KRISTMUNDSDÖTTIR
HALLDÓR ÞORSTEINSSON (áb.) — Sími 174.
Afgreiðsla:
INGVAR IÓNSSON, Kirkjubraut 21, sími 153.
PRENTVERK AKRANESS H.F.
1 s----------------------------------------—--------
Akurnesingar hafa aðstöðu til að
senda tvo menn á þing
Akurnesingar eiga þess nú fyrsta sinn kost að senda tvo
fulltrúa á þing.
Mannsaldur hefur bændahöfðinginn Pétur Ottesen setið á
alþingi fyrir Borgarfjarðarsýslu og Akranes eða síðan 1916.
Þéttur á velli og þéttur í lund fylgir hann fram hverju því
máli, sem skap hans á. En samleið á hann ekki í þjóðmálum
með þessu blaði, né hagsmunamálum sjómanna og verka-
ínanna. Og engum vafa er það bundið að kosningu hlýtur
hann nú, sem endranær með nokkur hundruð atkvæða meiri-
1 hluta.
Bónleiðir í erindisleysu gengur Haukur Jörundsson um bæ-
inn og ber á hvers manns dyr, en fær nær hvergi áheyrn að
Vonum, því virðingarverðari er þessi viðleitni hans, sem það
er á allra vitorði, að enga möguleika hefur hann á þingsetu.
Framboð Alþýðuflokksins hér í kjördæminu gegnir hinni
tnestu furðu. Virðist mistök þessa ógæfusama flokks engan
endi ætla að taka. Hingað er sendur ungur blaðamaður nokk-
Ur, Benedikt Gröndal að nafni, sem orðlagður varð af út-
varpserindum þeim, sem hann á námsárum sínum flutti af
plötum frá Bandaríkjunum með skerandi amerískum hreim.
Eftir heimkomuna hefur hann einkum getið sér orð fyrir að
Vera einn tamnasti fylgifiskur Bandaríkjanna við Alþýðu-
blaðið og í Alþýðuflokknum. Vitað er, að óánægja er með
framboð hans meðal Alþýðuflokksmanna hér á Akranesi, enda
er almannarómur, að þeim hafi verið óvirðing sýnd með því
að senda þeim slíkan frambjóðanda — sem auk þess aðeins
einu sinni eða tvisvar hefur stigið fæti í kjördæmið — í stað
traust flokksmanns á staðnum eða einhvers forvígismanna
flokksins, t. d. Sigurjóns Ölafsson, sem ákveðið var, að viki
af lista flokksins í Reykjavík. 1 Skagapistli, sem Benedikt
skrifar af heimsókn nokkurra íslenzkra blaðamanna í
danska sementsverksmiðju, segist hann hafa gerzt þreyttur
þegar á heimsóknina leið. Við getum fullvissað hann, að
tniklu — miklu — miklu þreyttari verður hann eftir fram-
boð sitt hér.
Sigurdór Sigurðsson er öllurn Akurnesingum góðkunnur
fyrir ötulan þátt í málefnum bæjarins hálfan þi’iðja áratug
og er vinsæll af öllum, sem hann þekkja. Hann þarf engra
tneðmæla með.
Við síðustu alþingiskosningar hefðu rösklega þrjúhundruð
atkvæða nægt til að koma Stefáni ögmundssyni á þing, sem
landskjörnum þingmanni sósíalista. Síðan það var hefur sósí-
alistum á Akranesi 'bætzt verulegt fylgi, eins og bezt sást
af síðustu kosningum til þings A. S. I., þegar listi þeirra og
stuðningsmanna þeirra fékk fleiri atkvæði en nokkru sinni
fyrr. Möguleikar Sigurdórs til að komast á þing eru þess vegna
góðir, — jafnvel mjög góðir.
Margur mun án efa vera reiðubúinn til að stuðla að því
keð atkvæði sínu, að Akurnesingar og Borgfirðingar fái tvo
fulltrúa á þing, annan úr hópi bænda, hinn úr hópi sjó-
tttanna og verkamanna. Yrði þá hag bæjarins og sýslunnar
ólíkt betur borgið á alþingi, þegar þau hafa þannig tvo þing-
tnenn til að tala máli sínu, hvor í sínum flokki. Komi þá síð-
Ur til þess, eins og stundum hefur þótt bregða við, að velferð-
Urmál bæjarins yrðu borin fyrir borð.
KOSNIN G ASKRIFSTOF A
Sósíalistafélagsins er á Krókatúni 16 — Skrifstof-
an er opin alla daga vikunnar frá kl. 8—io síðdegis.
Sími skrifstofunnar er 276.
Það er mjög þýðingarmikið, að sem flestir komi
á skrifstofuna og veiti allar þær upplýsingar, sem
að haldi mega koma.
DÖGUN
Mikil er triiin á trú-
girni fólksins.
Ekki klýjar Sjálfstæðisfiokk-
inn við lýginni frekar en
fyrri daginn, og mikil er trú
hans á trúgimi fólksins, ef
hann ætlar fólki að gleypa við
fullyrðingum hans um að
Dögun sé gefin út fyrir rúss-
neskt fé og stjórnað þaðan.
En hverju getur hann ekki
búizt við að íslenzkir kjósend-
ur trúi, heildsalaflokkurinn,
sem hefur aflað mestu af sinu
fylgi með þeirri máttlausu og
auðsæjustu lýgi sem hugsast
getur, sem sé því að telja fólki
trú um, að hann sé allra stétta
flokkur.
Annars væri æskilegt ef rit-
nefnd Framtaks hefur þetta
rússneska fé og fyrirskipanir
til Dögunar undir höndum, að
þeir vildu í votta viðurvist af-
henda okkur hvom tveggja,
það væri fróðlegt að sjá hvoru
tveggja og ætti ekkert að vera
því til fyrirstöðu fyrir þá að
gera slíkt, fyrst þetta er „sann
anlega" fyrir hendi.
Beinafundurinn ....
Framhald af 1. síðu.
máli, þar sem þau fundust, og
i,g—2 metra undir stórstraums
flóði. —
Er það svo merkilegt?
— Af því mætti kannske
ráða, að um eitthvert sig hafi
verið að ræða þarna upp frá
hjá ykkur. Þá kvæði meira að
niðurbroti sjávarbakka og foki.
Það gæti hugsanlega skýrt, hve
djúpt beinin liggja. Annars vil
ég ekkert um þetta fullyrða að
svo stöddu, segir Sigurður. —
Hefurðu nú þegar gert þér
ákveðnar hugmyndir um,
hvernig beinin hafa borizt
þangað, sem þau fundust?
—- Erfitt er að komast að
raun um það. Mér finnst of
mikið hafa fundizt af rostungs
beinum um Suð-vesturland til
að um rostungsveiðar hafi
verið að ræða. Rostungar eru
sjaldséðir hér við land, — held-
ur Sigurður áfram, víkur frá
andartak, kemur aftur með
fornfálega skræðu, flettir
nokkrum blöðum og bregður
fingri yfir skrælnaða síðuna.
— Hér er sagt frá, eins og þú
sérð, að Grænlandsfar braut á
Hvítárnesi 1266 og fórst með
tólf manna áhöfn. Samt eru
ekki miklar líkur til að bein-
in séu einmitt þaðan. Tíðar
samgöngur voru við Grænland
af kaupförum með grávöru,
allt fram yfir aldamótin 1400
og síðar. —
Sigurður flettir aftur nokkr-
um blöðum i skræðunni og
heldur áfram: — Hér er t. d.
sagt, að Ásmundur kæstan-
rassi hafi lagt Grænlandsfari
sínu í Breiðarfjörð 1185. —
Enn fletti hann — Fjögur skip
lágu 1387 vetrarlangt í Hval-
firði eftir tvo vetur í Græn-
landi, — þannig mætti lengi
telja. Ekki hefur vantað tæki-
færi til að ná sér í rostung í
þá tíð. —
Hvað verður nú um beinin
og heldurðu rannsóknunum á-
fram?
— Beinin eru komin á safn.
Sporin hræða ....
Framhald af 1. síðu.
öðrum orðum rýrður kaup-
máttur iauna hins vinnandi
fólks, það verður krafa Fram-
sóknarflokksins við næstu
stjórnarmyndun, fái hann að-
stöðu til að koma þar nærri.
Hitt er svo eins víst, að þó
að Alþýðuflokkurinn telji sig
i dag vera á móti gengislækk-
un og lofi þvi fyrir kosningar
að vera það, þá svíkur hann öll
sín loforð fái Stefán Jóhann
& Co. aðeins tækifæri til að
sitja í ríkisstjórn með hvaða
kjörum sem honum verður
boðið upp á, þá eru öll kosn-
ingaloforð frambjóðenda flokks
ins gleymd, rokin út í veður og
vind, þetta er reynsla íslenzkr-
ar alþýðu af kosningaloforð-
um þess stjórnmálaflokks, sem
, ber nafn hennar, til þess eins
að blekkja fyrir kosningar.
Þegar Alþýðuflokkurinn
myndaði i fyrsta sinn ríkis-
stjórn á Islandi 1947, lofaði
hann því að lækka dýrtíðina.
Hvernig hefur hann efnt þau
loforð? Dýrtíðin hefur aldrei
verið eins mikil og nú, og þó
hefur þessi ríkisstjórn setið við
völd í tvö og hálft ár. Alþýðu-
flokkurinn lofaði því einnig þá,
að rýra ekki kjör hins vinnandi
fólks, enda er það brot á
stefnuskrá hans. Hvernig hef-
ur þetta loforð verið haldið?
Fyrsta verk þessarar ríkisstjórn
ar var festing kauplagsvisitöl-
unnar í 300 stig, sem þá var
Bókaf regn:
Heildarútgáfa af 1)66-
um Jóhannesar úr
K'ótlum.
Bókaútgáfa Heimskringlu
hefur ákveðið, að gefa út heild
arútgáfu af ljóðum Jóhannesar
skálds úr Kötlum. Eftir hann
hafa komið til þessa átta ljóða-
bækur, sem flestar hafa lengi
verið uppseldar, en heildarút-
gáfan verður í tveim bindum
í skinnbandi nálægt 45 örkum
eða um 700 blaðsíður að stærð.
Bækurnar koma út í nóvem-
ber í tilefni af fimmtugs af-
mæli skáldsins. Vandað verður
sem bezt til hinnar nýju út-
gáfu, en hún jafnframt gerð
eins ódýr og kostur er.
Áætlað verð beggja binda til
áskrifenda er 120 kr.; heftið
145 í rexin, en 170 krónur í
vandaðasta skinnbandi. Þeir
sem nota vilja sér þetta tæki-
færi til að eignast öll ljóð eins
bezta skálds okkar, fyrir sann-
gjarnt verð, geri pöntun strax
til Halldórs Þorsteinssonar,
Sunnubraut 22, sími 174.
Ég held rannsóknunum áfram
og sendi að þeim loknum inn
skýrslu um fundinn. Læt ykk-
ur vita, ef ég rekst á eitthvað
nýtt. —
Að svo búnu er þakkað fyrir
viðtalið og kvatt. Dr. Sigurður
segir nokkur orð í kveðjuskyni
í sínum hispurlausa og gaman-
sama tón, sem dylur þó sjald-
an nákvæmni og gerhygli vís-
indamannsins.
eftir útreikningi Hagstofunn-
ar 328 stig. Þetta kauprán rík-
isstjórnarinnar eitt út af fyrir
sig, nemur hvorki meira né
minna en hálfu þriðja þúsundi
króna á ári af launum þess
verkamanns, sem vinnur að-
eins 8 stunda vinnudag, með
núverandi grunnkaupi kr. 3.08
og 328 vísitölustigum, og því
meira kauprán, sem meira er
unnið.
Stefnuskrá Alþýðuflokksins
mælir svo fyrir að flokkurinn
beiti sér fyrir afnámi tolla og
óbeinna skatta, þetta stefnu-
skráratriði hefur flokkurinn
þverbrotið. — Eins og alþjóð
er kunnugt hafa tollar og ó-
beinir skattar að minnsta kosti
þrefaldast í tið núverandi rík-
isstjórnar og lætur nú nærri
að helmingur vöruverðs í land-
inu sé heildsalagróði, tollar og
skattar.
1 skjóli hafta og vöruvöntun-
ar elur þessi rikisstjórn svarta-
markaðs-braskara við brjóst
sín, og hlutast beinlínis til um
að erlendur gjaldeyrir sé seld-
ur á svörtum markaði í land-
inu til þeirra, sem hafa efni á
því að stunda lúxusflakk og
heimshornaflæking, en íslenzk-
ir sjómenn geta ekki fengið
vetlinga á höndurnar eða sjó-
stígvél á fæturna sökum gjald-
eyrisskorts að sögn Alþýðu-
flokksrikisstjórnar Stefáns Jóh.
Stefánssonar, þó hvílir svo að
segja öll gjaldeyrisöflun þjóð-
arbúsins á þeirra herðum, en
það gildir víst einu, hvort þeir
a'fla hans vetlingalausir og í
lekum stígvélum eða betur
búnir, slíkt er aukaatriði fyrir
þá háu herra, nema ef vera
skildi svona rétt fyrir kosning-
ar, en þá verður vafalaust
gripið til hinna þjóðfrægu lof-
orða, svo haldgóð sem þau hafa
reynst.
Kjósendur góðir, væri það
nú ekki vel þess vert, að þoka
þessum pólitísku spaðagosum
til hliðar, og gefa þeim frí frá
störfum, þó ekki væri nema
eitt kjörtímabil, með svo ein-
földum hætti, að öll alþýða
þessa lands kjósi sósíalista við
alþingiskosningarnar 23. okt.
n. k.
Skortur á
háttvísi
Nokkuð hefur borið á því, að
börn þau sem hafa verið að
selja Dögun hafa orðið fyrir
aðkasti og sneypum af hálfu
andstæðinga sósíalista. Slíkt
hátterni á ekkert skylt við
heiðarlega stjórnmálabaráttu,
en ber aðeins vott um skort á
háttvísi. Börnin eru aðeins að
vinna sér inn aura og eiga að
vera utan við allt stjórnmála-
þjark.
Dögun vill brýna það fyrir
velunnurum sínum, að þó þeim
gremjist þessi framkoma við
börn þau er selja fyrir okkur,
að forðast að gjalda þar líku
líkt, heldur koma vingjarnlega
og kurteislega fram við þau
börn, sem bjóða þeim blöð and-
stæðinga okkar.