Dögun - 01.05.1953, Blaðsíða 3

Dögun - 01.05.1953, Blaðsíða 3
Föstudaginn 1. maí 1933 DÖGUN 3 DÖGUN Bæjarbláö Sósíalistafélags Akraness Ritnefnd: SIGURDÖR SIGURÐSSON ELlNBORG KRISTMUNDSDÖTTIR HALLDÖR ÞORSTEINSSON (áb.) — Sími 174. Afgreiðsla: HALLDÖR BACKMAN, Skagabraut g. —• Sími 222 PRENTVERK AKRANESS H.F. s.-------------------------------------------------- Ávarp — 1. m stí Enn á ný heilsar Dögun ykkur, Akurnesingar og Borg- firðingar. Dögun ■ mun sem fyrr berjast fyrir málstað alþýðunnar, gegn hverjum þeim öflum, er vilja setja rétt alþýSu rnafiria til hliðar. Dögun mun einnig sem fyrr, berjast gegn hverjum þeim öflum, sem reyna að veikja mótstöðuafl þjöðarinnar gegn er- lendri ásælni og vilja stinga henni svfnþorn með gyllingu gjafafjár og sníkjustarfsemi erlendis frá. Dögun heitir nú á alla velunnara sína frá fyrri árum og alla, er vilja stuðla að því, að heyrst geti raddir, um baráttu þá, er hún vill styðja frá þessum okkar vaxandi og lífvœnlega bœ, að styrkja okkur í því að geta haldið blaðinu úti, sem oft- ast og helzt að tryggja áframhaldandi útkomu þess. Þáð er von okkar og trú, sem að því stöndum að vekja Dögun til lífsins á ný, að okkur takist að tryggja útgáfu blaðsins um lengri tíma, en til þesis þurfum við á hjálp ykk- ar að. halda samborgara okkar hér í bœ og nærsveitum og við erum þess fullviss að sú hjálp fœst og útgáfa bláðsins verður tryggð. Um leið og Dögun hefur nú göngu sina á ný óskar hún öllum lesendum sínum gléðilegs' sumars og þakkar gamalt samstarf og óskar þess og væntir áð henni endist aldur til, að leggja drjúgan skerf til baráttu alþýðunnar fyrir vaxandi rétt- indum og öryggi, og fá álla sanna Islendinga til að verða hið vakandi afl hinnar vinnandi stéttar og voraldarmenn hins nýja tíma. 4 * * 1 undanfarin 30 ár hefur íslenzk alþýða helgað 1. maí baráttu sinni fyrir bættum kjörum. Vissulega hefur mikið áunnizt þó aðmar gt sé enn ógert af því, sem vinna þarf, áður en fullt öryggi er fengið í þeim málum. Á undanförnum árum hefur stundum virzt eins og ýms- um haifi fundist að nú sé að nokkru komið í höfn hvað mál alþýðunnar snertir. Það er þó hinn mesti misskilningur. Geysi- mikið vantar enn á að alþýðan hafi náð þeim kjarabótum og atvinnuöryggi, sem hún á fyllsta rétt til og er á allan hátt þjóðfélaginu til mestra hagsbóta, að hún fá sem fyrst Ennfremur eru nú mjög miklar viðsjár í málum þeim er alþýðuna snertir, bæði 'hvað kjör og atvinnuöryggi áhrærir. Og þar hafa viðsjár skapast af svikum Alþýðuflokksins við málstað verkalýðsins. Á undanförnum árum hafa forystu- menn Alþýðuflokksins unnið þau óhappaverk að afhenda þjónum atvinnurekenda ýmis verkalýðsfélög landsins. Afleiðing þess er nú að koma fram í mörgu, er þessi félög varðar. Það alhættulegasta við þetta er það, að ekki er unnið hreinlega, að ekki er gengið beint til verks, því að auðvitað þarf að hylja þessa þjónkun við atvinnurekendur. Er haifa farið aftan að verkamönnum. Reynt er að ala á sundr- ung og úlfúð milli verkalýðsfélaganna innbyrðis og kapp- hlaups milli einstakra félagsmanna um atvinnuna. Er það vitanlega til þess að vekja sundrung í félögunum. Með þessu móti er stefnt að því að eyðileggja félögin innanfrá. Þeir, sem ekki vilja trúa orðum þessum ættu að kynna sér ástandið í ýmsum þeim félögum í Reykjavík þar sem þjónar atvinnu rekenda fara með stjórn, og vita hvers þeir yrðu vísari. Islenzk alþýða, látið ekki menn þá, sem kalla sig vel- unnara alþýðunnar, en sýna svo hvað eftir annað í verki að þeir eru leiguþý þeirra afla, er vilja öll verkalýðsfélög feig. látum þá ekki svíkja okkur. Stöndum þétt saman og verjum af alefli öll þau rétt indi, er þegar hafa náðst, og sækjum fram til fullkomins atvinnuöry ggis. Sofnúm ekki á verðinum, verkalýðsmenn, því að einr og nú er ástatt, getur andvaraleysis eyðilagt margra ára bar áttu þeirra, er bezt hafa barizt fyrir kjarabótum og réttindum alþýðunnar. friðun fnxnflön fjrir Sl- jijöðflöömstölinn í Hnn^? Svo virðist sem ríkisstjómir tslands og Rretlands séu í þann veginn að leggja friðun Faxa flóa fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag. tslenzka ríkisstjómin hefur lýst því yfir, að hún sé reiðubúin að leggja landhelgis- grunnlínuna, milli Eldeyjar- dranga og Gáluvíkurtanga fyr ir Alþjóðadómstólinn, ef brezka ríkisstjórnin léttir löndunar- banninu í Bretlandi. En i gær. 30. apríl, lýsti Nutting, aðstoð arutanríkisráðherra Bretlands þvi yfir, að brezka stjórnin teldi sig ekki geta létt löndunar- banninu, og hélt enn fram þeirri átyllu, að löndunar- bannið væri ekki haldið uppi að vilja brezku ríkisstjórnar innar. t gær var því ekki vitað, hvað næst gerðist í málinu. En með því að slita málið í sundur og leggja aðeins einn lið þess, friðun Faxaflóa, fyrir alþjóðadómstólinn án þess að andstæðingurinn viðurkenni almenna víkkun landhelg- innar úr 3 í 4 milur, er stigið hið óheillavænlegasta skref í málinu. Verða samtök sjómanna og útvegsmanna og landsmenn allir að fylgjast sem nánast með málinu og standa vörð um rétt og hag landsins. Hitt er annað mál, að þessi þróun í landhelgismálinu kem ur ekki á óvart. Frá því um — Þegar dýpst var .... Franihald af 2. síðu. mælti á þessa leið: „Vegna þeirrar afstöðu, sem flokkur minn hefur tekið, — og vegna þess jafnframt, að það væri til þess fallið að túlka ranglega afstöðu mína til þessa máls ifyrr og nú, ef ég greiddi atkvæði gegn þessum samningi — eða á sama hátt og þeir, sem engan samning vilja gera, hvernig sem hann væri, mun atkvæði mitt ekki falla á þann veg. — En með því að neita að taka þátt í atkvæðagreiðslu get ég neitað og neita að taka ábyrgð á samningi þessum, eins og frá honum verður gengið, og í ann- an stað mótmæli ég á þennan hátt meðferð þessa máls, þar sem auðsætt var frá upphafi, að engu yrði þokað og neitað með öllu að þoka nokkru um til þess að nálgast það sjónar- mið ok.kar, sem óánægðir er- um með samninginn, eins og hann er, og teljum rasað i mál- inu. — Vitið þér. . . . ? Framhald af 1. síðu. „Eða einhver af yðar nánustu?" spurði ráðherrann ennfremur. Ég sagði þá um hvaða menn væri að ræða og að forsetinn hefði beint mér á hans fund. Ráðherrann kann- aðist nú við þetta mál, en kvað það ekki hafa hlotið afgreiðslu enn og væri ekki ákveðið, hvenær það yrði né með hvaða hætti. áramót hefur ýmislegt bent til þess, að eitthvert leynimakk um hugsanlega málamiðlun í landhelgisdeilunni ætti sér stað milli ríkisstjórnar íslands og Bretlands. Islenzka ríkisstjórn- in gerði ekki uppskátt fyrr en það hafði verið gert að umtals- efni af brezkum blöðum snemma í febrúar, að henni hefði borizt í byrjun janúar ný orðsending frá brezku stjórn- inni í landhelgismálinu. Var þar með brugðið út frá þeirri venju, sem höfð hefði verið um fyrri orðsendingar brezku stjórnarinnar, en íslenzka rík- isstjórnin hafði tilkynnt nokk- urn veginn jafnóðum og henni bárust þær, að hún hefði tekið á móti þeim. Efni þeirra var síðan birt nokkru síðar. Líka hvað þetta snerir brá ríkis- stjórnin út af vana sínum, því að Morgunblaðið hafði það eft- ir Ólafi Thors, að janúar-orð- sending brezku stjórnarinnar yrði ekki birt. Kom sú frétt illa við marga, því að í erlendum blöðum höfðu verið uppi get- spár eða kviksögur um efni brezku orðsendingarinnar. — Voru þær á tvennan veg. f höfuðatriðum var ýmist sagt, að brezka stjórnin væri reiðu- búin að ifallast á víkkun land- helgislínunnar, ef íslenzka stjórnin gæfi eftir friðun Faxa flóa eða öfugt. Það bætti ekki úr skák, er Tíminn birti þessar sögusagnir nær athugasemda- laust á forsíðu í vetur. Virtist þetta benda til, að einhvers konar undanhald eða mála- miðlun væri í undirbúningi í málinu. Samningar íslenzku útvegs- mannanna við brezka auð- manninn Dawson breytti engu þar um. Þótt allt gott sé i sjálfu sér um þá að segja, er því ekki að leyna, að togara- eigendurnir hefðu getað fundið æskilegri mann til að semja við í Bretlandi um löndun og dreifingu. Brezku togaraeigendurnir, einkum þeir í Hull og Grimby, lýstu því yfir, þegar kunnugt varð um samninginn við Daw- son, að þeir mundu stöðva tog- arana, ef fslendingar lönduðu fiski i brezkum höfnum? Það hefur engum dulizt, sem ifylgzt hefur með umræðunum um landhelgismálið í brezka þinginu, að brezka stjómin stæði bak við togaraeigendur í löndunarbanninu. Án óbeins samþykkis og stuðnings brezku ríkisstjórnarinnar hefði togara- eigendunmn reynzt ógerning- ur að halda löndimarbanninu til streitu. En þar eð löndunar- bann, sem brezka ríkisstjórnin væri beinn aðili að, væri brot bæði á viðskiptasamningum fs lands og Bretlands og ákvæð- um Marsjall-samningsins um efnahagslega samvinnu samn- ingsríkjanna, gat brezka ríkis- stjórnin ekki tekið opinbéra af- stöðu með togaraeigendunum. Löndunarbannið var hvprt tveggja í senn takmark í sjálfu sér fyrir suma brezka útvegs- menn og takmark til að neyða íslendinga til að gefa eftir í landhelgismálinu fyrir aðra. Allt frá því, að veiólagsa kvæðin á ísfiski voru afnumin í Bretlandi nokkrum árum eftir stríðið, hafa brezkir útvegs- menn ítrekað gamlar kröfur sínar um takmörkun á löndun erlends ísfisks í Bretlandi. Eftir að hafa staðið gegn þeim kröf- um í fyrstu, lét íhaldsflokkur- inn undan þrábeiðni útgerðar- manna, og gerði takmörkun á löndun ísfisks að kosningamáli 1951. Aðgerð í þá átt var þess vegna að vænta eftir sigur í- haldsflokksins og myndun stjórnar hans. Vert er að hafa það hugfast, að fyrir suma brezka útgerðarmenn að minnsta kosti, er löndunar- bannið takmark í sjálfu sér, en ekki einungis tæki til að neyða Islendinga til að gefa eftir i landhelgismálinu. Margir undrast þess vegna, þegar Dawson tilkynnti skömmu eftir samninga sína við F. 1. B., að hann mundi festa fé, sem næmi 250 þús. sterlingspunda — nær 12 millj. ísl. króna í undirbúning undir löndun og dreifingu íslenzka fisksins í Bretlandi. Brezku togaraeigendurnir höfðu þá ný- lega lýst þvi yfir, að þeir sætu fastir við sinn keip. Ef Daw- son tækist þess vegna ekki að taka móti íslenzka fiskinum vegna aðgerða brezkra útvegs- mann í skjóli brezku stjórnar- innar, hlaut hann að tapa stór- fé. Hvers vegna hikaði hanþ samt ekki? Hafði hann ein- hverjar fregnir af þvi gegnum F. I. B., að íslenzka ríkisstjórrf- in hygðist fremur slaka til að einhverju leyti en verða af ís- fiskmarkaðnum í Bretlandi á næstu árum? Og hvers vegng birtir ríkisstjórnin ekki orð- sendingu brezku stjórnarinn- ar frá því í janúar í vetur? Hverju er verið að leýna? Er það ekki vafasöm leið í þessu máli að gefa eftir á sviði grundvallarhagsmuna íslend- inga gegn einhverjum ívilnun- um varðandi sölu íslenzks . ís- fisks í Bretlandi, einkum þar eð vitað er, að innan fárra árá yrðu komnar upp háværar radd ir í Bretlandi um takmörkun á löndun íslenzks fisks í Bret- landi. Ekki má gleyma, að löndr unarmálið var ekki komið til sögunnar, þegar brezki íhalds- flokkurinn gerði takmörkun á löndun erlends fisks að stefnu- máli sínu í kosningunum 1931.

x

Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.