Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista - 15.10.1947, Side 4

Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista - 15.10.1947, Side 4
4 kostnaðarverði. Slíkt er sanngjarnt, þar sem óeðlilegt er, að háskólinn láti þessa þjón- ustu í té í ágóðaskyni. A þennan hátt yrðu háskólastúdentum sparað stórfé. Þeir kæm- ust hjá því að greiða þann ágóða, sem bóksalar nú hafa af því að selja þeim náms- bækurnar. Því hagkvæmari rekstur, sem hafður yrði á þessari þjónustu háskólans, þeim mun meiri yrði hagnaður stúdenta. Þess vegna á að inna þjónustuna af hendi á sem ódýrastan hátt. Eg tel, að svo verði bezt gert með því móti að stofna slíkt fyrirtæki sem tillaga mín gerir ráð fyrir. Einhverjum kann að þykja í of mikið ráðizt með þessari tillögu. Það mætti til sanns vegar færa, ef aðeins væru lagðar byrðar á háskólann með framkvæmd henn- ar. En því fer fjarri. Þvert á móti er hér um að ræða mikið hagsmunamál skóians sjálfs, sem fer saman við hagsmuni stú- denta. Það er ekkert launungarmál, að útgáfa og verzlun á bókum er mjög arðbær at- vinnugrein. Bóksalar hafa með sér öflug samtök, sem koma í veg fyrir, að nokkrir aðilar reki bóksölu, nema með þeirra sam- þykki. Hagnaðinum af allri bóksölu í land- inu er þess vegna skipt á milli tiltölulega fárra aðila. Ef háskólinn yrði einn þessara aðila, hefir hann tryggt sér öruggar fjár- hagstekjur. Ekki er viðeigandi að gera ráð fyrir öðru en að bóksalar veiti svo virðu- legri stofnun inngöngu í samtök sín. Ef hinsvegar svo reyndist ekki, yrðu hagsmun- ir bóksalanna að víkja fyrir hag háskólans, sem er almenningshagsmunir. Flestum er ljóst að háskólanum er þörf aukins fjár. Verkefnin eru mörg, sem bíða hans. Það er algengt, að erlendir háskólar ráði yfir gildum sjóðum, sem þeir verja til eflingar vísinda og lista. Háskóli íslands á enga verulega sjóði, sem hann getur gripið til í þeim tilgangi, en allt, sem miðar að því að auka tekjur hans, bætir nokkuð úr þessu. En í tillögu minni felst ekki einungis eðli- leg og örugg leið til fjáröflunar. Bókaút- gáfa veitir aðstöðu til víðtækari áhrifa á menningu og bókmenntaþroska þjóðarinn- ar. Mér þykir einsýnt að veita beri háskól- anum þessa aðstöðu, því að þá mun hann geta gengt hlutverki sínu enn betur en áður. Mér er vel ljóst að benda má á aðrar leiðir en tillaga mín gerir til þess að bæta úr skorti námsbókanna. En ég tel þá leið tvímælalaust þá beztu, sem völ er á, vegna þess að hún tryggir vel, ekki einungis hag háskólastúdenta, heldur einnig háskólans sjálfs. Það er enginn ástæða til að ætla annað en að auðvelt verði að framkvæma tillög- una, ef aðeins dugandi og hæfum mönn- um verður falin forsjá málanna". Tillaga þessi var samþykkt samhljóða. En því miður hefur ekki enn orðið að framkvæmdum í málinu. Stúdentar mega þó ekki láta við svo búið standa, heldur halda málinu fram. TÓNLEIKAR Á fundi 16. nóvember lagði Þorvaldur Garðar fram eftirfarandi tillögu : „Stúdentaráð Háskóla íslands felur stjórn sinni að athuga, hvort ekki væri hægt að fá færa tónlistarmenn til að halda tónleika nokkrum sinnum á hverju kennsluári í há- skólanum fyrir kennara og nemendur hans. Telur stúdentaráðið æskilegt, ef tekizt gæti samvinna við Tónlistarfélagið um þetta mál. Stúdentaráð álítur æskilegt, að aðgang- ur verði ókeypis að tónleikum þessum, en fjár vegna kostnaðarins verði aflað með öðru móti“. Tillaga þessi var samþykkt samhljóða, en minna hefur orðið um framkvæmdir. Ymsir örðugleikar þóttu á því að halda liljómleikana í hátíðasal skólans vegna galla á honum. Þá kom til mála að halda tónleik- ana á Gamla Garði, en á því voru einnig erfiðleikar. Þar vantaði m. a. flygel. En það má þó segja, að sá árangur hafi orðið af þessum ráðagerðum, að garðstjórn hefur samþykkt að kaupa slíkt hljóðfæri fyrir Garðinn. Þetta sjálfsagða menningarmál þarf næsta stúdentaráð að leysa á viðunandi hátt í sam- ræmi við tillöguna. ÍSLENZK GLÍMA Þorvaldur Garðar bar fram á stúdenta- ráðsfundi 12. febrúar eftirfarandi tillögu: „Stúdentaráð Háskóla íslands felur stjórn sinni að beina þeim tilmælum til stjórnar íþróttafélags stúdenta, að hún athugi mögu- leika á því, að efnt verði á þessum vetri til námsskeiðs í íslenzkri glímu fyrir há- skólastúdenta. Þeim tilmælum er einnig beint til stjórn- ar íþróttafélags stúdenta, að hún vinni að því, að háskóhnn sjái framvegis þeim stú- dentum, er þess óska, fyrir kennslu í glímu. Skal þetta gert í þeim tilgangi að skipa glímunni þann sess í íþróttalífi háskóla- stúdenta, er henni ber sem þjóðlegustu íþrótt Islendinga“. Meðflutningsmaður tillögunnar var Ás- geir Pétursson, stud. jur. Tillagan var samþykkt samhljóða. íþróttafélag stúdenta hefur athugað mál- ið og tjáð stúdentaráði, að ekki sé hægt að koma við glímuæfingum í vetur, vegna plássleysis. Það varð heldur ekki af náms- skeiði s. 1. vetur. Það kann því að vera, að árangur liafi enn orðið lítill af þessari tillögu, en vissulega má þetta mál ekki falla niður, og ætti næsta stúdentaráð að sjá svo um. KAPPRÓÐRAR Á fundi stúdentaráðs 12. febrúar bar Þor- valdur Garðar fram eftirfarandi tillögu : „Stúdentaráð Háskóla Islands felur stjórn sinni að beina þeim tilmælum til stjórnar Iþróttafélags stúdenta, að hún athugi mögu- leika á kaupum tveggja til þriggja kapp- róðrarbáta til afnota fyrir háskólastúdenta. Ráðið felur stjórn sinni að aðstoða í- þróttafélagið í þessu máli eftir því sem þörf gerist". Tillaga þessi var samþykkt samhljóða. íþróttafélagið mun hafa athugað þetta mál, en ekki stofnað til framkvæmda að svo búnu. Þetta mál er hið merkasta og væri mikill fengur fyrir íþróttalíf háskól- ans, ef tillagan yrði framkvæmd. AFSKIPTI AF ÖÐRUM MÁLUM Hér eru engin tök á að lýsa ýtarlega af- skiptum fulltrúa Stúdentafélags lýðræðis- sinnaðara sósíalista til allra mála, sem stú- dentaráð hefur fengizt við, en óhætt mun að fullyrða, að afstaða hans hafi verið í sam- ræmi við hagsmuni stúdenta. Ég ætla að- eins að drepa á örfá mál. Á fundi ráðsins 16. nóv. var tekin fyrir áskorun frá almennum garðbúafundi um, að stúdentaráðið beitti sér fyrir endurskoð- un garðlaga. Sérstök nefnd samdi síðan ný lög, og átti í henni sæti 3 lýðræðissinnaðir sósíalistar og tveir Vökumenn. Það er því óhætt að segja, að Stúdentafé- lag lýðræðissinnaðra sósíalista hafi átt fullan þátt í því verki. Þessi lög eru ekki ennþá endanlega samþykkt, þar sem há- skólaráð hefur ekki afgreitt málið fyrir sitt leyti. Skíðaskálamálið hefur verið á dagskrá stúdentaráðs í vetur. Ráðið samþykkti teikn- ingu af skíðaskálanum, og almennur stú- dentafundur hefur nýlega kosið nefnd til að hafa framkvæmdir með höndum. Það er ekki vonum framar, að þetta mál er komið á þennan rekspöl, en það hefur ver- ið að velkjast í meðförum stúdentaráðs í mörg ár. Að sjálfsögðu hefur fulltrúi lýð- ræðissinnaðra sósíalista verið samþykkur því, sem gert hefur verið í málinu í vetur.

x

Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/1964

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.