Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista - 15.10.1947, Blaðsíða 6

Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista - 15.10.1947, Blaðsíða 6
6 ÞORVALDUR GARÐAR KRISTJANSSON, stud. jmis: Stúdentaráð og flugvallarmálið Eftir síðustu stúdentaráðskosningar fór um skeið mikið af tíma og starfsorku hins nýkjörna stúdentaráðs í umræður og orða- hnippingar um samning þann, er ríkisstjórn íslands gerði s. 1. haust við stjórn Banda- ríkjanna um Keflavíkurflugvöllinn. Stúdentar höfðu tekið skýra og ákveðna afstöðu gegn samningnum, er hann var fyrst lagður fyrir Alþingi, og meginþorri þeirra hélt fast við þá afstöðu eftir þær breytingar, sem voru gerðar á honum í með- förum þingsins. Þetta hafði gerzt, er núverandi stúdenta- ráð tók við störfum. # Hið nýskipaða ráð tók þegar til að undir- búa hátíðahöld stúdenta 1. desember. And- stæðingar samningsins vildu láta margyfir- lýsta stefnu og viðhorf stúdenta til þessara mála gæta við hátíðarhöldin. Þetta átti að vera tiltölulega einfalt mál. Tveir þriðju sendi tillögur þessar til háskólaráðs og garðsstjórnar hinn 8. febrúar s. 1. Aðilar þessir vilja sennilega ekki rasa neitt um ráð fram, en nokkuð þykir mönnum athug- un þeirra á tillögum þessum vera farin að dragast á langinn. Síðan ég tók sæti í stjórn garðanna, en það var um mánaðamótin ágúst-september s. 1., hefur formaður stjórn- arinnar, Ásgeir Asgeirsson, alþm. verið er- lendis, og þv íeigi gefist færi á að afgreiða mál þetta frá garðsstjórn, en enginn vara- maðm er til í stað formannsins, enda er fyrsta skrefið, að háskólaráð afgreiði til- lögurnar um breytingu á skipulagsskránni frá sér, því að reglugerðin verður að byggjast á ákvæðum skipulagsskrárinnar. Að óreyndu er engin ástæða til að ætla, að háskólaráð og garðsstjórn sé andvíg ein- faldari og ódýrari embættismannaskipan á görðunum, enda munu núverandi fulltrúar stúdenta í garðsstjórn í engu gefa eftir hlutar ráðsins voru andvígir samningnum, en þriðjungurinn hafði sætt sig við hann eftir breytingar þingsins. En málið reyndist ekki auðleyst. Þegar kom í ljós, að Vökufulltrúarnir, er fylgdu samningnum, vildu ekki halda við fyrri andmæli stúdentaráðs og hugðust knýja fram undanslátt við stefnu stúdenta í máli þessu. En greinilegt var, að mótmælin gegn samningnum voru enn í fullu gildi, þrátt fyrir breytingarnar, sem Alþingi gerði síðar á honum, enda hafði fráfarandi for- maður ráðsins lýst því sjálfur yfir í kosn- ingablaði Vöku. Á hinn bóginn bar þegar á því, að full- trúar Félags róttæki'a stúdenta hefðu ýms annarleg sjónannið í málinu. Báru þeir landráðasakir á þá alþingismenn, er greitt höfðu samningnum átkvæði, og var mál- flutningur þeirra að öðru leyti mjög í anda þess, er aðalmálgagn Sameiningarflokks al- hlut stúdenta í máli þessu, eftir því sem þeirra aðstaða leyfir, því að okkur er það ljóst, að hér er um áhuga- og hagsmuna- mál garðbúa að ræða. En þótt breytingar þær, sem nú hefur verið um getið horfi tii heilla fyrir stúdenta, eru mörg önnur verkefni, sem bíða úr- lausnar á vegum garðanna. Stúdentaráð hefur gert tillögu um viðbyggingu við sal- inn á Gamla Garði, þannig að byggður verði sérinngangur í mötuneytið og salinn, og þar verði miðstöð félagslífs stúdenta. Eru tillögurnar í alla staði hinar athyglis- verðustu. Til mála gæti einnig komið að byggja íbúðarherbergi ofan á áðurnefndan sal. En hins vegar má öllum vera það ljóst, að eina framtíðarlausnin er bygging þriðja stúdentagarðsins, og með tilliti til hins sí- vaxandi nemendafjölda Háskólans er það mál, sem þarf að undirbúa fyr en síðar. þýðu — Sósíalistaflokksins — hefir lagt til þessara mála fyrr og síðar. Fulltrúar Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, kunnu illa þessu tali róttækra, og skal þeim ekki fært það til lasts. Tók ég og þegar afstöðu gegn brígslyrðunum. Einn- ig sá ég, að slíkur málflutningur gat mjög orðið til að veikja andstæðinga samningsins. Varð sú og raunin á í stúdentaráðinu. Þar fóru nú fylgjendur samningsins að halda fram þeirri skoðun, að stúdentar yrðu að láta einhvern þeirra alþingismanna, er voru bornir landráðabrigslunum, flytja ræðu við hátíðahöldin 1. desember. Mætti þetta fyrir engan mun farast fyrir, því ella tækju stúdentar undir landráðaásakanirnar gegn þessurn mönnum. Þessi skoðun var markleysa, þótt hún væri gerð að haldreipi í átökunum um málið. Allir vissu eða máttu vita, að í samn- ingsgerðinni fólst ekki verknaður, sem varð heimfærður undir landráð, svo sem það hugtak er skilgreint í réttarríki. Réttarmeð- vitund þjóðarinar kollvarpaði því þessum ásökunum. Var jafnvel óviðurkvæmilegt í garð þessara alþingismanna að gera ráð fyrir öðru. Þá var talið, að það bæri vott frjálslyndis og lýðræðisanda, ef stúdentar létu fylgjend- ur samningsins ásarnt andstæðingum tala fyrir sína hönd 1. desember. Hér var annarri rökvillu haklið fram. Félagssamtök, hvort sem þau eru meðal stúdenta eða annars fólks, hljóta samkvæmt hlutarins eðli að skýra málin einungis til framgangs því, sem meirihluti þeirra að- hyllist og berst fyrir. Ef svo væri ekki, hefðu samtökin ekki annan tilgang en að vera auglvsingatæki til útbreiðslu mismun- andi skoðana í hverju máli. Það væri þvert á móti ólýðræðislegt að virða ekki rétt meirihlutans til að ráða mál- um samtakanna. Þeir, sem sætta sig ekki við

x

Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/1964

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.