Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista - 15.10.1947, Side 8

Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista - 15.10.1947, Side 8
8 JON ÞORSTEINSSON, stud juris : Kosningahorfur Fyrir aðeins tveimur árum héldu and- stæðingar okkar lýðræðissinnaðra sósíalista því fram, að við værum ekki einu sinni nógu fjölmennir til þess að stilla upp framboðs- lista með 18 mönnum, hvað þá að fá mann kjörinn. Kosningaúrslitin þá sýndu, hve and- stæðingum okkar skjátlaðist hrapalega, enda minnast þeir nú ekki framar á neitt slíkt. Hins vegar er nú svo komið, að þessir sömu menn óttast fátt meira en að hsti okkar fái nú tvo menn kjörna. Sá ótti er heldur ekki ástæðulaus. Undanfarin ár hefur vegur Stúdentafé- lags lýðræðissinnaðra sósíalista vaxið veru- lega. Markmiðið er líka að gera það að forustufélagi vinstri aflanna innan háskól- ans. Afanga að þessu marki ætlum við að ná nú við stúdentaráðskosningarnar með því að fá tvo menn kosna í ráðið. Kosningabaráttan stendur milli lýðræðis- sinnaðra sósíalista, kommúnista og Vöku. Að vísu bjóða leifarnar af Félagi frjáls- lvndra stúdenta fram lista, en hans mun að engu gæta í þessum kosningum. Þar sem hver dagurinn er nú síðastur til að rita um það félag, annað en eftirmæli, er rétt að víkja að því nokkrum orðum. Fyrir fá- um árum var þetta allöflugur félagsskapur, sem átti tvo fulltrúa í stúdentaráði. Hneigð- ust félagsmenn brátt til mikillar samvinnu við kommúnista, sem endaði með því að félag þeirra missti öll áhrif og völd, en húsbændur þeirra og samstarfsmenn, kommúnistarnir, efldust að sama skapi. í kosningunum í fyrra töpuðu svo frjálslyndir sínum síðasta fulltrúa í stúdentaráði og munu vart eiga þangað afturkvæmt. Því geta stúdentar, sem hafa það í hyggju að skila auðum seðli við kosningarnar, sem í hönd fara, alveg eins kosið hinn gersamlega vonlausa framboðslista frjálslyndra, því að afleiðingin verðrrr ein og hin sama, nefni- lega sú að atkvæðið verður ónýtt. í síðustu stúdentaráðskosningum sigraði Vaka, félag íhaldsstúdenta, allglæsilega. Að vísu unnu þeir ekki nýtt sæti, en litlu mun- aði, og höfðu þeir þó meirihluta fyrir. Ein helzta orsökin að veldi Vöku hér í hákólanum er sú, að þeir geta jafnan bent á kommúnista sem sína höfuðandstæðinga og keppinauta um fylgi háskólastúdenta. Stúdentum hefur því verið nokkur vorkunn, þó að þeir liðsinntu Vöku, sem jafnan hefur siglt undir blettóttum fána lýðræðisins, gegn hinum rauða fasisma hér í háskólan- um. Þetta sýnir hins vegar greinilega nauð- syn þess að efla Stúdentafélag lýðræðissinn- aðra sósíalista til forustu vinstri aflanna inn- an háskólans gegn íhaldsfélaginu Vöku. Nú við þessar kosningar eru sigurhorfur Vöku aftur á móti ekki eins góðar og oft áður. Stafar það nokkuð af því að meðal stúdenta frá í vor eiga þeir hlutfallslega litlu fylgi að fagna og ennfremur mun skortur á góð- um forustumönnum nú hafa gert eitthvað vart við sig. Enginn kommúnistiskur félagsskapur hér- lendis mun bera nafn, sem beint gefur til kynna hvers eðlis hann sé. Þannig heitir félagsskapur þeirra innan háskólans Félag róttækra stúdenta. í stúdentaráðskosning- unum 1945 töpuðu þeir einum fulltrúa, en unnu hann aftur í fyrra með naumundum. Vonir sínar um að tapa ekki fulltrúa aftur nú, byggja kommúnistar á væntanlegum liðsauka nýrra stúdenta, en heldur ekki neinu öðru. Skortur góðra forustumanna mun þó ekki meiri nú en vant er. Kosninga- horfur kommúnista eru því allt annað en glæsilegar. Nú sem stendur eiga Vökumenn 5 full- trúa í stúdentaráði, kommúnistar 3 fulltrúa og við lýðræðissinnaðir sósíalistar einn full- trúa. Okkur skorti þó aðeins 10 atkvæði til þess að fá 2 fulltrúa kjörna, svo auðsætt er, að við höfurn nú miklar líkur til að vinna það sem á vantar. Þetta hefur líka berlega kornið í ljós í kosningabaráttunni, því að við höfðum fengið girnileg samfylkingar- tilboð, bæði frá hægri og vinstri, sem við höfum þó vísað eindregið á bug. Við göng- um til þessara kosninga einir og óháðir í baráttu gegn íhaldi og kommúnisma. Þeir stúdentar, sem greiða lista okkar atkvæði sitt á kjördegi, veita okkur mikinn styrk í þeirri baráttu. Andstæðmgar íbalds og kommúmsma sameinast um A-listann Útgefancli: Stúdentafélag lýðræðissinnaðra sósíalista. — Ábyrgðarmaður Árni Gunnlaugsson. — Prentsmiðja Hafnarfjarðar h. f., prentaði.

x

Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablað lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/1964

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.