Fjarðarfréttir - 12.09.2024, Blaðsíða 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR – HAFNFIRSK ÆSKA | FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2024
Nánar á:
Ung
menna
þing
Hvernig eiga ungmennahúsin
okkar að vera?
Ertu 16-24 ára og vilt hafa áhrif? Ungmennaþing verður
haldið í Flensborg þriðjudaginn 24. september klukkan 17.
Mættu og settu mark þitt á málið. Það skiptir máli.
hfj.is/ungmennaþing
Reykjavíkurborg, Reykjanesbær,
Vogar, Seltjarnarnesbær og Kópavogur
hafa gengið úr Reykjanesfólkvangi.
Fráfarandi stjórn bókaði um málið og
bæjarráð Hafnarfjarðar tók undir
bókunina.
Þar kemur m.a. fram að frá stofnun
Reykjanesfólkvangs árið 1975 hafi
skort samvinnusamning eða samþykkt
sem veiti stjórn fólkvangsins skýrt
umboð til að taka ákvarðanir og móta
tillögur. Þá skorti stefnumörkun fyrir
fólkvanginn og skýra ferla á milli
eigenda, stjórnar og framkvæmdaaðila
á svæðinu um m.a. verkefni fólkvangs-
ins, samráð og ákvarðanir. Umhverfis-
stofnun hefur ekki lokið stjórnunar- og
verndaráætlun fyrir fólkvanginn sem
þeim ber að gera fyrir friðlýst svæði
samkvæmt lögum, þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir.
Að auki er rekstur fólkvangsins óljós
vegna þeirra breytinga sem fyrir liggja
á stjórninni.
Leggur fráfarandi stjórn til að farið
verði í heildrænt samtal og samráð um
stefnumótun í náttúruvernd í Reykjanes-
fólkvangi, m.a. í ljósi þeirra jarð-
hræringa sem hafa geisað á svæðinu og
nýtilkominnar markaðsstofu höfuð-
borgarsvæðisins. „Mikilvægt er að rýna
vel hverskonar fyrirkomulag sé best til
þess fallið að vinna að þeim markmiðum
sem stefnumótunin leiðir af sér. Einkum
með hvaða hætti hlutverkum, aðgerðum
og fjármögnun verði skýrt skipt á milli
m.a. ríkis, sveitarfélaga og viðeigandi
hagaðila. Ástæða væri til að líta til
útivistarsvæða á öllu Reykjanesinu og
höfuðborgarsvæðinu, auk núverandi
fólkvanga og jarðvanga bæði innan og
í næsta nágrenni við Reykjanesfólk-
vang. Því tengt hvetur fráfarandi stjórn
til þess að skoðuð verði gaumgæfilega
tækifæri sem felast í því að sameina
samliggjandi friðlýst svæði með ótal
náttúruperlum á Reykjanesinu og
höfuðborgarsvæðinu.
Stuttmyndin TÓI var frumsýnd í
síðustu viku en hún er um 12 ára stúlku,
Árúnu og viðburðaríka sumarið hennar
þegar hún kynnist tröllinu Tóa. Árún og
Tói lenda í ýmsum ævintýrum og kynn ast
þar á meðal huldukonu á ferðum sínum.
Höfundarnir eru Hafnfirðingurinn
Reyn ir Snær Skarphéðinsson, ungur
kvik myndagerðarmaður sem er leikstjóri
og framleiðandi á stuttmyndinni. Hann
lauk nýlega námi sínu úr Borgarholtsskóla
af kvikmynda gerðar braut þar sem að
hann leikstýrði stuttmyndinni „Blóð-
hefnd“ sem byggði á 17. aldar víkinga-
sögunni Amlóða-sögu. Frá og með
haustinu mun Reynir stunda nám í Kvik-
myndafræði við Háskóla Íslands.
Hinn höfundurinn er suður-kóreski
Kópavogsbúinn, Jun Gunnar Lee Egils-
son, nemi í kvikmyndagerð við Lista-
háskóla Íslands sem er leikstjóri,
handritshöfundur og framleiðandi á
stuttmyndinni. Hann lauk námi úr
Borgarholtsskóla árið 2022, og hefur
síðan þá leikstýrt fjölda stuttmynda.
Skapandi sumarstörf voru endurvakin
sumarið 2021 í samstarfi við ungmenna-
húsið Hamarinn, en Skapandi sumarstörf
hafði verið starfrækt sumarið 2017 fyrir
hópa og einstaklinga á aldrinum 18-25
ára. Valdir hópar fengu tækifæri til að
starfa við ýmis skapandi verkefni á
ýmsum sviðum lista sem einnig myndu
lífga upp á mannlífið í bænum. Var
starfsemin rekin af Vinnuskóla Hafnar-
fjarðar og er Klara Ósk Elíasdóttir
verkefnastýra Skapandi sumarstarfa.
Nánar á fjardarfrettir.is
Aðeins Hafnarfjörður,
Garðabær og Grindavík
standa nú að
Reykjanesfólkvangi
Fv. stjórn vill sameina friðlýst svæði á Reykjanesi
Tói – afrakstur
Skapandi sumarstarfa
Ný stuttmynd eftir tvo unga höfunda
Jun Gunnar og Reynir Snær.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n