Fjarðarfréttir - 12.09.2024, Síða 10
10 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR – HAFNFIRSK ÆSKA | FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2024
MALBIKSVIÐGERÐIR
MÁLUN BÍLASTÆÐA
„Börn og unglingar eiga að leysa
málin með okkur. Foreldrar eru
öryggis netið og þurfa að standa saman
og taka þátt,“ segir Þórunn Þórarins-
dóttir sem vinnur að því að fá formlega
viðurkenningu á því að Hafnar fjarðar-
bær sé barnvænt samfélag.
„Það er mikilvægt að hlusta á raddir
barnanna þegar við reynum að leysa
málin. Það á til að mynda við núna
þegar við tökum á svo óhugnanlegu
máli eins og vopnaburði í skólunum.
Aðkoma þeirra skiptir svo miklu máli.
Það gleymist oft að tala beint við
börnin og unglingana,“ segir Þórunn
Þórarinsdóttir, verkefnastjóri barnvæns
sveitarfélags hjá Hafnarfjarðarbæ.
„Við erum þorpið og við þurfum að
fá allt samfélagið með okkur. Það þýðir
að við leysum málin með börnin í okkar
liði.“
VINNA EFTIR
BARNASÁTTMÁLANUM
Þórunn er rétt að sleppa hendinni af
aðgerðaráætlun svo Hafnarfjarðarbær
geti státað af því að vera sveitarfélag
sem vinnur eftir Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna í allri stjórnsýslu og
starfsemi sinni. Samþykki UNICEF
áætlunina og svo bæjarstjórn kemst
bærinn í hóp tveggja annarra sveitar-
félaga sem þegar vinna eftir samkomu-
laginu.
„Það felur í sér að sveitarfélagið
samþykkir að hafa Barnasáttmálann af
leiðarljósi í starfi sínu. Rauði þráðurinn
er að stuðla að virkri þátttöku barna í
málum sem snerta þau. Það er til mikils
að vinna. Þau eru jú framtíðin.“
FORELDRAR BYGGI UPP
TENGSL
Þórunn segir að passa verði að tengsl
barna og fullorðinna trosni ekki á
unglingsárunum. Foreldrar þurfi að
vera öryggisnet barna sinna.
„Við þurfum að taka þátt í for eldra-
rölti þegar beðið er um það. Þannig
stækka foreldrar tengslanetið. Við
þurfum að skrá okkur sem bekkja-
fulltrúa, bera umhyggju fyrir vinum
barna okkar og hvetja þau öll til að
nýta starfið í félagsstöðvunum,“ segir
hún.
FYLGJUMST MEÐ
BÖRNUNUM
„Í félagsmiðstöðvunum eru mikil-
vægir fullorðnir einstaklingar sem þau
geta leitað til. Það gerist svo margt á
unglingsárunum. Við þekkjum börnin
okkar og reynum að rýna í svörin sem
þau gefa okkur. Það er ekki alltaf fínt þó
að þau segi að allt gangi fínt,“ segir
hún og gefur ráð.
„Við þurfum að hafa augun opin og
fylgjast með breytingum. Eru breytingar
á vinahópnum, aukinn pirringur? Þá
þurfum við foreldrar að ræða við
skólann og félagsmiðstöðvarnar. Það
er svo miklu auðveldara þegar for-
eldrar tengjast, þeir þekkja kennarana
og fólkið sem vinnur í félagsmið-
stöðvunum. Þekkja hvernig innviðirnir
virka.“
„Við öll erum þorpið“
Viðtal við Þórunni sem vinnur að því að fá viðurkenningu á að Hafnarfjarðarbær sé barnvænt samfélag
Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags hjá Hafnarfjarðarbæ, stefnir að því að bærinn fái börnin
að borðinu og vinni eftir barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
KYNNING