Fjarðarfréttir - 12.09.2024, Blaðsíða 15

Fjarðarfréttir - 12.09.2024, Blaðsíða 15
www.fjardarfrettir.is 15FJARÐARFRÉTTIR – HAFNFIRSK ÆSKA | FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2024 Styrkurinn er ætlaður til að auðvelda fötluðu fólki að verða sér úti um þekkingu og reynslu til þess að auka möguleika þess til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Styrkir til fatlaðs fólks Nánar á hafnarfjordur.isOpið fyrir umsóknir til og með 22. september Vegna náms og tækjakaupa Fanný Lísa Hevesi var gestur móður sinnar, Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda á vel sóttum hádegistónleikum Hafnarborgar í síðustu viku. Fanný Lísa, sem er uppalin í Hafnarfirði, er nýútskrifuð úr Per- formance Preparation Academy í Bretlandi með BA-gráðu í söngleik. Hún hóf tónlistarnám sitt í Tónlistar- skóla Hafnarfjarðar en lærði svo söng í Söngskóla Sigurðar Demetz. Hún útskrifaðist með framhaldspróf í klassískum söng með Sigrúnu Hjálm- týsdóttur sem kennara en fyrir það lærði hún söngleikjasöng hjá Valgerði Guðnadóttur og Þór Breiðfjörð. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum verkum og var meðlimur í barnakór Íslensku óperunnar þar sem móðir hennar var æfingapíanisti í langan tíma. Þær mæðgur fluttu óperuleg söng- leikjalög og ýmiss konar óperuskotið og óperutengt efni. Yfirskrift tón- leikanna var „Mitt á milli – á gráu svæði“. Fanný Lísa heillaði tónleikagesti með hressilegri framkomu og tærum söng og sem dæmi um ánægju gesta þá mátti sjá óperusöngkonuna Elínu Ósk Óskarsdóttur standa upp og klappa vel og lengi eftir eitt lagið. Eigum við örugglega eftir að heyra meira frá þessari efnilegu söngkonu. Fanný Lísa heillaði tónleikagesti Hafnarborgar Sviðsframkoma Fannýjar Lísu var glæsileg og hressileg. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.