Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Síða 2

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Síða 2
Við jarðarbúar stöndum frammi fyrir risavöxnum áskorunum: Hlýnun jarðar sem veldur náttúruhamförum og skertum lífsgæðum; heimsfaraldri af völdum kórónu- veirunnar sem ógnar lífi og heilsu fólks og hefur haft gífurleg áhrif á efnahag samfélaga; stríðsátökum sem valda fólki óbærilegri þjáningu og hafa áhrif langt út fyrir átaka- svæðin; varhugaverðri þróun víða í heiminum þar sem stjórnvöld sýna alræðistilburði og þrengja að borgaralegum réttindum fólks; og loks hróplegri misskiptingu auðs og lífsgæða innan – og milli samfélaga, sem veldur fátækt, óréttlæti og togstreitu. Það er auðvelt að láta sér fallast hendur. Hvað getum við gert? Við erum bara fámenn þjóð á eyju úti á miðju Atlandshafi. Höfum við ekki nóg með okkur? Við hér hjá Hjálparstarfi kirkjunnar erum stundum spurð hvers vegna við einbeitum okkur ekki af því að hjálpa fólki hér á Íslandi, sumir spyrja jafnvel hvers vegna við einbeitum okkur ekki að því að hjálpa bara Íslendingum hér á Íslandi. Svarið er einfalt: Hjálparstarf kirkjunnar fer ekki í mann- greinarálit þegar aðstoð er veitt. Aðstoðin byggir á mati stofnunarinnar á því hvar þörfin sé mest, hún tekur mið af þekkingu okkar á verkefnasvæðum og getu til starfa þar og loks fjárráðum á hverjum tíma. En aftur að spurningunni „Hvað getum við gert?“ Stjórnvöld ríkja heims bera að sjálfsögðu á því höfuðábyrgð að finna lausnir sem duga í margslungnum veruleikanum. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Glasgow á dögunum og COVAX-samstarfið um aðgengi fátækari ríkja heims að bóluefni gegn Covid-19 eru dæmi um samstarf þjóða í milli þó deila megi um árangur af því samstarfi. Hjálparsamtök eru ekki opinberar stofnanir og hafa þess vegna tækifæri til að nálgast flókin úrlausnarefni á annan hátt en stjórnvöld. Hjálparstarf kirkjunnar vinnur þannig í grasrótinni, með fólkinu sjálfu, milliliðalaust, og fær því vitneskju um hvar skóinn kreppir hjá hverjum einstaklingi fyrir sig. Aðstoðin sem fólkið fær er efnisleg, til dæmis inneignarkort í matvöruverslunum hér á Íslandi, en samhliða er veitt félagsleg ráðgjöf og valdeflandi stuðningur sem gerir fólkinu betur kleift að fást við þann veruleika sem það býr við. Við erum svo lánsöm að hafa fengið skilaboð frá fólki sem áður þáði aðstoð en nýtur þess nú að gefa til baka. „Ég er svo þakklát fyrir aðstoðina sem ég fékk frá Hjálp- arstarfi kirkjunnar þegar aðstæður sem við mæðginin bjuggum við voru slæmar. Við fengum efnislegan stuðning og sonur minn gat haldið áfram í námi. Í dag starfar hann sem viðskiptafræðingur og við getum gefið til baka,“ eru ein þessara skilaboða. Þau eru til marks um það hvernig örlítill stuðningur getur gjörbreytt aðstæðum einstaklinga. Og summa einstaklinganna er jú samfélagið. Við höldum áfram öflugu hjálparstarfi með frábærum stuðningi frá hjartahlýju fólki um land allt. Fyrir þann stuðning erum við innilega þakklát! Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar MJÓR ER MIKILS VÍSIR Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar ÞÖKKUM STUÐNINGINN HÁTÍÐAR- MESSA Í UPPHAFI JÓLAFÖSTU Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, prédikar. Séra Sigurður Árni Þórðarson og séra Eiríkur Jóhannsson prestar Hallgrímsprestakalls þjóna fyrir altari. Kór Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst með formlegum hætti. Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason Margt smátt …, 3. tölublað 2021, 33. árgangur Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir Myndir: Forsíðumynd „Mjór er mikils vísir“ Þorkell Þorkelsson tók myndina á verkefnasvæði Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu árið 2016 Aðrar myndir: Hjálparstarf kirkjunnar og samstarfsaðilar. Umbrot: Pipar\TBWA Útvarpað frá Hallgrímskirkju á Rás 1 fyrsta sunnudag í aðventu 28. nóvember, kl. 11 䈀欀栀愀氀搀猀︀樀渀甀猀琀愀 刀준吀吀匀䬀䤀䰀 2 – Margt smátt ...

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.