Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Síða 4

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Síða 4
Starfsfólk og sjálfboðaliðar Hjálparstarfs kirkjunnar eru nú í óða önn að undirbúa sérstaka aðstoð við fólk sem býr við fátækt svo það geti gert sér dagamun yfir hátíðirnar. Fyrir síðustu jól fengu 1707 fjölskyldur um land allt inneignarkort fyrir matvöru og fleira og við búumst við svipuðum fjölda umsókna í ár. Auk inneignarkorta fær fólk í brýnni þörf notaðan sparifatnað og foreldrar fá m.a. aðstoð svo börnin fái jóla- og skógjafir. Aðstoðin er veitt í góðri samvinnu við Hjálpræðisherinn, Rauða krossinn, Mæðrastyrksnefndir og kirkjusóknir vítt um landið og með frábærum stuðningi frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum. JÓLAAÐSTOÐ HJÁLPARSTARFS KIRKJUNNAR „Gott að hafa tilgang og að hafa eitthvað að gera!“ Verkefnið Taupokar með tilgang er fyrir konur úr hópi innflytjenda, flóttafólks og hælisleitenda og aðrar sem eru útsettar fyrir félagslegri ein- angrun. Konurnar endurvinna efni sem almenningur hefur gefið og læra að sauma úr því fjölnota inn- kaupatöskur, grænmetispoka, dúka, skiptiteppi fyrir börn o.fl. Í lok saumaskapar borða konurnar svo hádegismat saman og kynnast betur en þær koma víða að og hafa ólíkan bakgrunn. Verkefnið stuðlar þannig að aukinni virkni kvennanna og félagsskap þeirra í milli um leið og konurnar vinna að umhverfisvernd. Verkefnið er unnið í samvinnu við Hjálpræðisherinn og var upphaflega einu sinni í viku en vegna mikillar eftirspurnar og vegna samkomutak- markana í heimsfaraldri var ákveðið að skipta hópnum í tvennt. Félagsráðgjafi Hjálparstarfsins hefur haft umsjón með mánudagshópnum en Hjálpræðisherinn í Reykjavík hefur séð um samveruna á fimmtudögum. Í heimsfaraldri hefur þurft að takmarka fjölda þátttakenda við 20 konur í hvert skipti og hafa því færri tekið þátt í verkefninu en hafa viljað. Rannveig Sigurðardóttir, Mjöll Þórarinsdóttir, Anna Barkardóttir, Dúfa S. Einarsdóttir, Bergþóra Njálsdóttir, Sigrún Benedikts Jónsdóttir og Sólveig Árnadóttir hafa í mörg ár gefið vinnu sína við að flokka, raða og hengja upp flíkur sem fólk hefur komið með til Hjálparstarfsins. Hjálparstarfið kann þeim og öðrum sjálfboðaliðum bestu þakkir fyrir afar dýrmætt framlag og frábæran félagsskap! Á gjafabréfasíðu Hjálparstarfs kirkjunnar er hægt að styðja verkefnið með því að kaupa gjöf sem gefur. Þau eru mörg skrefin í að fullgera jólapokana, fyrst er að sníða, svo sauma, þá næst að þræða borða og að lokum eru pokarnir straujaðir. Þær voru kappsamar konurnar sem taka þátt í verkefninu „Taupokar með tilgang“ þar sem þær sátu við að sauma jólapoka nú í nóvember. Konurnar í verkefninu eiga það sameiginlegt að hafa lítið tengslanet á Íslandi og að vera utan vinnumarkaðar. Umhverfisvænu jólapokarnir eru til sölu á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar á neðri hæð Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66 í Reykjavík. 4 – Margt smátt ...

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.