Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Qupperneq 7

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.11.2021, Qupperneq 7
Í byrjun nóvember sl., sléttu ári eftir að baráttan um yfirráð yfir Tigray-fylki hófst, lýstu stjórnvöld í Eþíópíu yfir neyðarástandi í landinu vegna átakanna. Her Tigray- manna hafði þá náð landsvæðum utan Tigray á sitt vald og notið við það aðstoðar m.a. frá Frelsisher Oromo-fylkis. Abiy Ahmed forsætisráðherra, sem fékk friðarverðlaun Nobels árið 2019, hvatti í framhaldinu alla vopnbæra íbúa landsins til að verjast yfirvofandi áhlaupi uppreisnar- herjanna á höfuðborgina Addis Ababa. „Við erum bara fólk eins og þið!“ HVAÐ ER AÐ GERAST Í EÞÍÓPÍU? Íbúi í Tigray-fylki sýnir hjálparstarfsfólki hvar húsið hans var jafnað við jörðu. Íbúar í Tigray-fylki segja hjálparstarfsmanni Lútherska heimssambandsins frá aðstæðum á vettvangi. Genfarsamningarnir banna árásir á skóla og sjúkrahús en hér sést sundurtætt sjúkrahús í Tigray. Báðar fylkingar eru sakaðar um alvarleg brot á mannúðarlögum. Erfitt hefur reynst að koma hjálpargögnum til íbúa í Tigray en aðstoð verið veitt fólkinu sem hefur flúið yfir til nágrannafylkja. Karlmenn eru flestir kvaddir í herinn en konur og börn sem neyðast til að yfirgefa heimili sín hafast við í yfirfullum flóttamannabúðum. Hjálparstarfsfólk skipuleggur dreifingu hjálpargagna en mannúðaraðstoð felst fyrst og fremst í að tryggja fólki fæðu, húsaskjól, hreint vatn og hreinlætisaðstöðu. Í Eþíópíu búa nú yfir 115 milljónir íbúa í átta fylkjum sem hvert um sig hefur sjálfsákvörðunar- rétt í ýmsum málum. Landið er ellefu sinnum stærra en Ísland að flatarmáli og íbúarnir til- heyra yfir 80 mismunandi þjóðum sem hver hefur sitt tungumál. Ríkisstjórn Abiy Ahmed leggur áherslu á einingu milli þjóðanna sem byggja landið og að styrkja þjóðarímynd Eþíópíu. Stjórnskipulag í Eþíópíu er flókið og nú er spurt hvort Abiy hafi farið of geist í umbætur en frá því hann tók við stjórnartaumunum árið 2018 hefur hann meðal annars leyst pólitíska fanga úr fangelsi, veitt fjölmiðlum aukið frelsi og aukið veg kvenna í stjórnmálum, en nú er forseti landsins og helmingur ráðherra í ríkisstjórninni konur. Friðarverðlaunin fékk svo Abiy fyrir frumkvæði hans til að leysa áratugalangt landa- mærastríð við Eritreu. Fyrrum valdhafar í Eþíópíu voru að stórum hluta Tigray-menn en eftir að Abiy komst til valda minnkuðu áhrif þeirra í þjóðstjórninni til mikilla muna. Við það myndaðist gjá milli stjórnmála- flokks Tigray og ríkisstjórnar Abiy. Forsætis- ráðherranum auðnaðist ekki að fá stjórnmála- elítuna í Tigray til samstarfs og í stað einingar náðu uppreisnarher og elítan í Tigray fylkinu að mestu leyti á sitt vald. Átökin hafa nú stigmagnast og ófriðurinn borist til nágrannafylkja. Alþjóðleg hjálparsamtök hafa gagnrýnt bæði stjórnarherinn og uppreisnarheri harðlega fyrir alvarleg brot á mannréttinda- og mannúðarlögum. Tilkynnt hefur verið um morð á almennum borgurum, pyntingar, nauðganir og árásir á sjúkrahús og skóla. Tugþúsundir íbúa hafa neyðst til að flýja heimkynni sín yfir til nágranna- héraðanna og yfir til Suður-Súdan og Sómalíu. Nú er svo komið að hjálparsamtök komast ekki til að veita íbúum í Tigray-fylki hjálp en aðstoð er veitt íbúum og flóttafólki í nágrannahéruðum. Í lok mars sendi Hjálparstarf kirkjunnar rúmlega tuttugu og eina milljón króna til þessarar brýnu mannúðaraðstoðar en stærsti hluti framlagsins er styrkur frá utanríkisráðuneytinu. Í Sómalí-fylki sunnar og austar í landinu heldur Hjálparstarf kirkjunnar ótrautt áfram með verk- efni í þróunarsamvinnu sem miðar að valdeflingu fólks sem býr við afar bágar aðstæður af völdum þurrka sem meðal annars eru raktir til lofts- lagsbreytinga. Megináhersla þar er lögð á að tryggja aðgengi fólks að drykkjarhæfu vatni. Margt smátt ... – 7

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.