Margt smátt - 01.08.2024, Page 2
2 Fréttabréf Hjálparstarfs kirkjunnar júlí / 2024
Fréttabréf 2. tbl. 2024
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason. Ábyrgðarmaður: Svavar Hávarðsson. Umbrot: Birgir Jóakimsson.
Forsíðumynd: Hjálparstarf kirkjunnar. Aðrar myndir: Hjálparstarf kirkjunnar og samstarfsaðilar.
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins, á góðri
stundu í vinnuferð í þorpinu TA Makhwira í Malaví. Mynd/Hk
Ég hef sagt frá því áður þegar ég var á ferð í verkefni okkar
í Malaví fyrir mörgum árum síðan og spurði stúlku að því
hvenær hún hafi byrjað í skóla að svar hennar var: „Ég
byrjaði í skóla þegar brunnurinn kom.“
Þetta stutta en merkingarhlaðna svar felur í sér að
hindrunin fyrir hennar skólagöngu var sú að um langt
skeið þurfti hún á hverjum morgni að sækja neysluvatn
fyrir fjölskyldu sína. Það var þó ekki eins einfalt og það
hljómar því til að komast að vatnsbóli þorpsbúa þurfti hún
að ganga í tvær klukkustundir – og svo til baka sömu leið
með sligandi þungan vatnsbrúsann. Þetta var á skólatíma.
Þegar brunnur var grafinn og tók að gefa þorpsbúum
vatn, þá hófst skólaganga þessarar stúlku sem er mér svo
eftirminnileg.
Sem betur fer er ekki skortur á vatni á Íslandi og það er ekki
á ábyrgð barna að sinna þeim verkum sem varða frumþarfir
fjölskyldunnar í daglegu lífi. En hvaða hindranir geta mætt
börnum í skólagöngu þeirra á Íslandi?
Ein stærsta hindrunin, ef þá ekki sú stærsta, er fátækt
barnafjölskyldna. Það er ljóst að það eru einstæðir
foreldrar, örorkulífeyrisþegar og innflytjendur sem verst
standa þegar kemur að fátækt á Íslandi. Hækkandi verðlag
og ógnar hár húsnæðiskostnaður hittir þennan hóp
sérstaklega illa fyrir. Í skýrslu forsætisráðherra sem kom út í
júní 2023 undir heitinu Fátækt og áætlaður samfélagslegur
kostnaður, kemur meðal annars fram að um 9.000 börn hafi
tilheyrt fjölskyldum sem töldust undir lágtekjumörkum árið
Foreldrar fjölmargra barna og unglinga
yngri en 18 ára fengu styrk til að gera
börnum þeirra mögulegt að stunda
íþróttir, listnám og tómstundastarf með
jafnöldrum sínum.
2020 en alls reiknast 47.795 einstaklingar undir nefndum
mörkum þegar tekið hefur verið tillit húsnæðisstuðnings
og barnabóta. Niðurstöður skýrslunnar eru í öllum aðal
atriðum staðfesting á því sem starfsfólk Hjálparstarfsins
upplifir í sínum störfum dag frá degi.
Foreldrar grunnskólabarna sem búa við kröpp kjör hafa
mörg undanfarin ár leitað stuðnings hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar við að útbúa börnin í skólann. Haustið 2023
studdi Hjálparstarfið foreldri um 250 grunnskólabarna
með skólatöskur, ritföng og nestisbox í upphafi skólaárs.
Foreldrar fjölmargra barna og unglinga yngri en 18 ára
fengu styrk til að gera börnum þeirra mögulegt að stunda
íþróttir, listnám og tómstundastarf með jafnöldrum
sínum. Margar fjölskyldur fengu einnig stuðning sem fólst
í hlýjum vetrarfatnaði og íþróttabúnaði. Framtíðarsjóður
er sérstakur sjóður Hjálparstarfs kirkjunnar sem notaður
er til að styrkja ungmenni til náms sem gefur þeim réttindi
til starfs eða veitir þeim aðgang að lánshæfu námi.
Sjóðurinn hefur verið til frá árinu 2006 en markmiðið
með styrkveitingu úr honum er að rjúfa vítahring stuttrar
skólagöngu, lágra launa og fátæktar. Á starfsárinu fengu
tugir ungmenna styrk úr sjóðnum til greiðslu skólagjalda
og fyrir bóka- og efniskostnaði.
Nú er haustsöfnun Hjálparstarfsins í gangi til að aðstoða
efnaminni foreldra á Íslandi í upphafi komandi skólaárs. Við
höfum því sent valgreiðslu í heimabanka landsmanna um
3.500 króna framlag. Einnig er hægt að leggja inn á reikning
Hjálparstarfsins: 0334-26-27, kt. 450670-0499.
Styðjum söfnunina, skiljum ekkert barn útundan, tryggjum
öllum börnum jöfn tækifæri til náms.
Takk fyrir stuðninginn.
Bjarni Gíslason
framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri, á góðri stundu í vinnuferð í þorpinu TA Makhwira í Malaví.