Margt smátt - 01.08.2024, Qupperneq 4
4 Fréttabréf Hjálparstarfs kirkjunnar mars / 2024
„Nú þarf að klára málið með því að öll börn og ungmenni
fái að stunda sinn skóla án þess að fjölskyldur þeirra
þurfi að bera af því kostnað,“ segir Vilborg og vísar til
þess að fjölskyldur 16 til 18 ára barna bera kostnað sem
réttmætt má telja að væri greiddur eins og í tilfelli yngri
barna. Sérstaklega er þetta mikilvægt þar sem þessi
aldurshópur krefst ýmiss kostnaðar sem fellur ekki til hjá
fyrr á ævinni og öll eru þau ekki svo heppin að komast í
uppgrip í sumarvinnu. Þá er brottfall úr skóla áhyggjuefni
sem mikið er rætt og aðgerð sem þessi getur unnið gegn
því að ungmenni flosni upp úr skóla, að mati Vilborgar
og vísar til reynslu sinnar í viðtölum við fjölskyldufólk í
störfum sínum sem félagsráðgjafi um langt árabil.
Um 300 börn fengu aðstoð í fyrra
Þegar grunnskólinn var að byrja haustið 2022 leituðu 160
fjölskyldur með yfir 300 börn til Hjálparstarfsins. Aldrei
hafa jafn margir sótt um aðstoð til Hjálparstarfsins vegna
skólabyrjunar en til samanburðar sótti 81 fjölskylda
yfir 200 barna um sambærilega aðstoð haustið 2021.
Aðstæður haustið 2022 voru sérstakar vegna stríðsins
sem þá var nýhafið í Úkraínu og flóttamenn þaðan þurftu
stuðning. Það vekur því athygli að þrátt fyrir að aðstæður
hafi verið sérstakar 2022 þá voru börnin sem fengu
aðstoð í fyrrahaust litlu færri.
„Það er hópur einstaklinga sem á ekki fyrir skólatösku,
útifötum og öðru slíku sem þarf þegar skólinn er að byrja.
Þetta sjáum við skýrt en aðsókn eftir aðstoð til að kosta
tómstundir barna og unglinga hefur líka verið að aukast og
fyrir því liggja ýmsar ástæður. Þegar haustið kemur þá eru
allir búnir með frístundastyrkinn sinn. Þá gerist það oft að
krakkar hætta í íþrótta- eða tómstundastarfi, allt þar til það
kemur nýr frístundastyrkur. Þess vegna erum við að safna
fjármagni til að hjálpa fólki til að greiða haustgjöldin,“ segir
Vilborg sem gaf dæmi í útvarpsviðtali á Rúv í fyrrahaust
en komið hefur fram að í tilfellum meira en þúsund barna
í Reykjavík er frístundakort þeirra nýtt til að greiða fyrir
Frístundaheimili og í tilfelli 150 barna er frístundastyrkur
þeirra notaður til að greiða fyrir íslenskukennslu.
Krakkar heltast úr lestinni
„Það sem ég er að sjá er að börnin byrja í janúar í íþrótta-
eða tómstundastarfi en um leið og það fara að koma
keppnisferðir þá heltast krakkarnir úr lestinni – segja að
þetta sé ömurlegt að vera t.d. í fótbolta og nota það sem
afsökun fyrir því að hætta, í stað þess að segja að það
séu ekki til peningar á heimilinu og þau komist ekki með.
Ég veit að það eru félög sem eru með félagslega styrki
en kynna það ekki nægilega vel fyrir foreldrum, sem
mörgum finnst erfitt að fara þess á leit að fá slíka styrki
eða niðurfellingu á gjöldum. Svo eru það sumarferðirnar.
Það kom til mín faðir með fjögur börn; þrír í fótbolta og einn
í handbolta. Hann spurði: „Hvernig á ég að fara að þessu.
Einn er að fara til Svíþjóðar, einn norður á Akureyri og sá
þriðji til Vestmannaeyja. Ég þarf að taka lán fyrir þessu.
Kostnaðurinn hleypur á hundruðum þúsunda.“
Öll börn þurfa að hafa vissa hluti hjá sér þegar
skólastarf hefst. Afar mikilvægt er að öll börn
standi jafnfætis jafnöldrum sínum á þessum
mikilvæga tíma í lífi okkar allra.
Stundum þarf svo lítið til.
Áföll sem í margra augum
eru smávægileg geta haft
alvarlegar afleiðingar á
þessum viðkvæma tíma í lífi
hvers barns. Þess vegna er
afar mikilvægt að lágmarka
hættuna á því að börnin sjái
skólann í neikvæðu ljósi í
upphafi skólagöngu. Það getur
haft mikil áhrif síðar á ævinni.