Margt smátt - 01.08.2024, Side 6
6 Fréttabréf Hjálparstarfs kirkjunnar mars / 2024
Skjólið – opið hús fyrir konur sem búa við heimilisleysi, opnaði dyr sínar fyrst snemma árs
2021. Síðan þá hafa konur, margar hverjar í nær vonlausri stöðu í sínu einkalífi, fundið þar
vin í eyðimörkinni, þó aðeins sé það dagpart í senn.
Konurnar sem heimsækja Skjólið koma úr öllum áttum. Margar kalla Ísland heimaland sitt.
Aðrar koma lengra að. Óþarfi er að greina aðstæður þeirra sérstaklega – í grunninn eru
þær allar á líkum stað og þurfa aðstoð. Skjól. Flestar þeirra kvenna sem koma í Skjólið, fara
aftur án þess að skilja eftir sig varanleg ummerki, nema ef væri í hugum þeirra sem tilheyra
Skjólinu á einn eða annan hátt. Við hin sem erum svo lánsöm að búa við öryggi getum aldrei
sett okkur í spor þeirra sem eiga hvergi höfði að halla.
Það eru því aðeins konurnar sjálfar sem geta lýst því hvaða þýðingu Skjólið hefur. Hér til
hægri er bréf sem barst til umsjónarkonu Skjólsins í vetur. Nafn bréfritara má liggja á milli
hluta en það er birt hér til hægri með fullu samþykki hennar.