Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.02.1997, Blaðsíða 2
LEIÐARI
Nú líður að lokum þessa starfsárs Sam-
takanna 78. Aðalfundur verður haldinn
þann 22. febrúar og þar verður árið gert upp
og stefnan tekin fyrir næsta tímabil.
Á þessum aðalfundi verða miklar breytinga'r
á forystu samtakanna; þorri núverandi
stjórnar mun víkja fyrir nýju forystuliði og
formannsskipti verða. Ég undirrituð hef nú
„afplánað" þrjú ár við stjórnvöl samtakanna
og tel tímabært að afhenda leiðsögnina í
annarra hendur.
Síðastliðin þrjú ár hafa verið annasöm og
viðburðarík í sögu samtakanna - og storma-
söm á köflum. Það skal reyndar játað að
ágjöfin hefur oft verið meiri í brúnni en mig
hafði órað fyrir áður en ég tók verkefnið að
mér - en útsýnið og ferðagleðin hefur einnig
verið meiri og lærdómsríkari en ég reiknaði
með í upphafi. Þar munar vitaskuld mest
um gott samferðafólk, - frábæra samvinnu
við fjölmarga félaga samtakanna bæði
innan stjórnar og utan.
Landvinninga og sigra ber hátt þegar litið er
til baráttu samkynhneigðra á síðustu árum.
Ometanlegir ávinningar hafa náðst á sviði
löggjafar; lög um staðfesta samvist og
verndarákvæði fyrir lesbíur og homma.
Mannréttindabarátta samkynhneigðra hefur
styrkst og orðið æ sýnilegri. Fjárveitingar
hins opinbera hafa aukist verulega og
hefur það styrkt starfsemina og gefið
kjölfestu í daglegum rekstri. Nýjar áhersl-
ur hafa verið lagðar á hinum félagslega
vettvangi þannig að félagsmiðstöðin er nú
starfrækt af öflugum sjálfboðaliðahópum
og nýir áhugahópar hafa tekið til starfa á
síðustu mánuðum. Félagafjöldi sam-
takanna hefur aldrei verið meiri. Þetta og
margt fleira má nefna til marks um árang-
ur af óeigingjörnu starfi fjölmargra á
síðustu árum.
Ekkert vex af engu. í formannstíð minni
hef ég og samstarfsfólk mitt notið góðs af
því brautryðjendastarfi sem unnið hefur
verið í samtökunum allt frá upphafi og oft
höfum við verið að uppskera það sem til
var sáð á árum áður.
Vonandi höfum við, starfsfólk samtakanna
síðastliðin þrjú ár, einnig náð að sá
fræjum fyrir komandi tíð.
Verkefnin er óþrjótandi framundan þótt
margt sé að baki. Von mín er að Samtökin
78 vaxi og dafni að visku og vexti um
ókomna framtíð og að ný stjórn nái að
nema ný lönd; efla menningu okkar og
auka réttindi samkynhneigðra með
einörðum stuðningi allra þeirra lesbía og
homma sem láta sig málstað okkar varða.
Margrét Pála Ólafsdóttir
SAMTÖKIN 78
FÍIAC LESBlA 0 C
H 0 M M A Á i S L A N D I
LINDARGATA 49
PÓSTHÓLF1262
IJl REYKIAVÍK
SÍMI 552 8539
BRÉFSlMI 552 7525
Ritstjóri og ábyrgftarmaður: Matthías Matthíasson Netfang: mm@khi.is
Umbrot: Kristinn Gunnarsson Netfang: krirag@itn.is
Stjórn Samtakanna '78: Margrét Pála Ólafsdóttir formaöur,
Matthías Matthíasson varaformaður, Árni Kristjánsson, Einar Örn Einarsson,
Fjalar Ólafsson, Klara Bjartmarz og Unnur Bragadóttir.
Viðtalstími formanns er á fimmtudögum milli kl. 20-21.
Framkvaemdastjóri: Lilja S. Sigurðardóttir
Viðtalstími framkvaemdastjóra er alla virka daga milli kl. 11-12,
Netfang: gayice@mmedia.is
Vefsíða: www.mmedia.is/-gayice
SAMTAKAFRÉTTIR - SAMTÖKIN '78
Bréf þetta er öllum
opið án ritskoöun-
ar en aðsendar
greinar skulu
merktar höfundi,
enda birtar á hans
ábyrgð.