Víkurfréttir - 14.08.2024, Blaðsíða 8
„Mitt starf snýst um að allir sem koma að sjónvarpsupptökum geti
sinnt sínu starfi sem best,“ segir Njarðvíkingurinn Elín Ólafsdóttir en
hún hefur verið í vinnu fyrir alþjóðlega Ólympíusambandið í fimmtán
ár. Hún hefur verið búsett á Spáni í tæp tuttugu ár, er gift Spánverja
og á með honum fjögur börn. Hún hefur verið í París síðan í júní og
verður þar fram í september með viku fríi á milli Ólympíuleikanna
sem nú er nýlokið, og Ólympíuleika fatlaðra sem taka alltaf við í kjöl-
farið.
Ella eins og hún er kölluð, vinnur
sem verkefnastýra við að sjá um allt
sem viðkemur „broadcasting“ eða
sjónvarpsútsendingum.
„Mitt starf snýst um að láta allt
ganga upp sem viðkemur sjón-
varpsupptökunum, allt frá því að
redda öllum gistingu, fæði, fari
á milli staða og í raun allt milli
himins og jarðar. Við erum 300
sem vinnum allan ársins hring hjá
fyrirtækinu en í París eru um átta
þúsund starfsmenn og það þarf
að koma þeim öllum fyrir. Inni í
þessari tölu er fólk úr ótal starfs-
stéttum, sjónvarpsupptökufólk,
kokkar, túlkar, hljóðverkfræð-
ingar og svona gæti ég lengi haldið
áfram. Allir þessir aðilar þurfa að
geta sinnt sínu starfi og mitt starf
snýst um að auðvelda þeim það.
Hvað þarf manneskja að hafa til
brunns að bera til að komast í
þetta spennandi starf ?
„Ég lærði ferðamálafræði og svo
innanhússarkitekt en minn styrkur
liggur í því að geta talað reiprenn-
andi fjögur tungumál. Ég sótti
einfaldlega um þetta starf á sínum
tíma því mér fannst þetta spenn-
andi og hreppti hnossið, byrjaði
sem tækniteiknari í verkfræðideild
en ég hef alltaf haft áhuga á við-
burðastjórnun og komst í starfið
sem ég er í í dag. Þetta er búinn
að vera mjög skemmtilegur tími og
ég hef komið til ótal landa, mínir
fyrstu Ólympíuleikar voru vetrar-
leikarnir í Vancouver árið 2010 og
ég hef komið á alla leika sem hafa
verið haldnir síðan. Ég dvel um tvo
til fjóra mánuði á hverjum stað á
meðan leikunum stendur og ég
held að mér sé óhætt að segja að
vinnan mín sé fjölbreytt, það koma
upp ótal mál sem þarf að leysa og
ég nýt mín til hins ýtrasta í þessu
starfi,“ segir Ella.
Hvernig nær Elín að halda
tengslum við Reykjanesbæ og
Ísland?
„Ég reyni að koma sem oftast
heim, einu sinni á ári hið minnsta,
ég er alltaf með heimþrá í íslenska
loftið, kyrrðina og auðvitað sam-
veru með fjölskyldu og vinum
sem ég sakna mikið. Mér finnst
mjög mikilvægt að börnin mín
hafi sterka tengingu við Ísland og
meðal annars var ein af dætrum
mínum eina önn í 4. bekk í Njarð-
víkurskóla og bjó á meðan hjá
ömmu sinni og afa. Henni var mjög
vel tekið í Njarðvíkurskóla og vildi
hún helst vera lengur. Hún er enn
að tala um hversu góður skóla-
maturinn hefði verið. Svo erum
við dugleg að fá heimsóknir frá
Íslandi til okkar í Madríd. Rætur
okkar eru nokkuð kyrfilega fastar
á Spáni svo ég á ekki von á öðru en
við munum búa þar áfram en þó
veit maður auðvitað aldrei,“ sagði
Ella að lokum.
n Njarðvíkingurinn Elín Ólafsdóttir hefur starfað á öllum Ólympíuleikum frá árinu 2010. Talar reiprennandi fjögur tungumál.
Sér um að sjónvarpsupptökur
frá Ólympíuleikunum gangi
fullkomlega upp
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Frá vinstri, eiginmaðurinn
Jorge, dóttirin Nora og
sonurinn Aron, á Roland Garros
tennisvellinum í París.
Ella með dætrunum
Soniu Briet og Noru
við Ólympíueldinn.
Elín Ólafsdóttir með Effelturninn í baksýn og í vinnunni að ofan.
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM