Jólablaðið - 17.12.1945, Blaðsíða 3
JÖLABLAÐIÐ 1945
votu fötin sín upp til þurrks og hlúði
að sér í fletinu. Og það leið ekki á
löngu þangað til mókið sótti á hann
aftur, svo að allan mátt dró úr honum
og hann sofnaði. Hann svaf lengi —
vaknaði loks við það, að hann var að
skellihlæja, reif feldinn ofan af sér
og góndi kringum sig eins og í hálf-
gerðri vímu. — Hríðin var búin,
skildi hann strax. Og dagsbirtan
reyndi að smjúga inn til hans gegnum
rifuna milli hleranna, sem hann hafði
fyrir glugganum á suðurgaflinum.
Hann lá kyrr um stund og hafði ekki
kjark til þess að skríða undan heitum
feldinum, en svo herti hann upp hug-
ann, slengdi löppunum fram á gólfið
og trítlaði berfættur út á stéttina. —
Ha, komið ljómandi veður.
Jæja, hann varð nú að fara í dag,
hvað sem því leið — upp um fell og
hnúka og vitja um haukasöx og snör-
ur. Því að meðan helgin stæði yfir,
átti allt lifandi að fá að vera í friði,
hvort sem það voru rándýr eða ekki.
Svo langt varð maðurinn að feta í fót-
spor meistarans.
II.
Þokan sauð enn upp af klettunum
í norðri og rak suður á bóginn með
kaldanum, í þéttum, bólstrum og
loðnum flygsum.
Pétur í Skarði sat upp undir
Grænakambi með byssuna milli
hnjánna og horfði agndofa á þetta.
Aldrei hafði hann séð annað eins áð-
ur, þó oft hefði hann komið þama
upp í fjall.
Sólin var enn á lofti og lék sér við
víðikjarrið og kræklabjörkina, sem
sem var þarna niðri á stallinum, með
allsnakta angana. En svo kom þokan
veltandi og lagðist yfir allt saman.
Grænikambur einn rak nefið upp í
himinblámann, og þama sat Pétur
eins og á skeri úti í reginhafi, en sól-
in speglaði sig x þokuhafinu fyrir neð-
an hann og myndaði þúsundir af ör-
smáum regnbogum.
Allt í einu fann hann hrollkalda
vindstroku leika um sig, eins og ísnál-
ar stingjust í andlit og hendur. Klett-
amir langt undan urðu eins og skugg-
ar, skuggarnir komu nær og nær, fínn
úði af vatnsdropum ýrði á hann.
Hann hnipraði sig saman og bretti
upp úlpukragann, tróð hampi í byssu-
hlaupið og bjóst til að halda af stað.
Hann var renglulegur vexti og and-
litið veðurbarið, skeggið jarpt og
strýkennt. Hann var með stormhúfu,
í peysu og gráum vaðmálsbuxum.
Sokkaböndin voru bundin utan um
skálmarnar, því að það kom sér bet-
ur, þegar hann óð í polli eða sökk x
snjó milli steina.
Að fara heim, já. Rata í þessu veðri
þarna um slóðalausa auðnina! Hann
gekk í kút og honum fannst eins og
hann væri með drápsbyrði á herðun-
um. Aldrei hafði honum fundizt hann
vera eins einmana. Bezt að reyna að
halda beint í austur, þvx að þar var
Tröllavatn, og kæmist hann niður að
vatninu, þá var honum borgið. Hann
rétti úr sér, hló að eymdarskapnum
í sjálfum sér — það tók þvx nú varla
fyrir fullorðinn mann, að verða að
aumingja, þó að hann lenti í einhverj-
um þokuslæðingi. Hann greikkaði
sporið og komst niður að vatninu á
rúmum klukkutíma.
Sinan var orðin vot, og niðri á brún-
inni lak vatnið af fjalldrapanum, svo
að hann varð gegndrepa á fótunum.
Og þokan var svo vatnsmett og svo
köld, að hún gustaði köldu á hann
gegnum fötin.
Hann þversneri við og lét skeika
að sköpuðu um nýju stefnuna. Það
var um að gera að finna einhverja
slóð, því að hann hafði víst verið
rammvilltur, þegar hann kom niður
af fjallinu. Sums staðar varð hann að
víkja úr leið til þess að lenda ekki 1
fenjum, og við það missti hann stefn-
una á ný.
Flexibíe /
fe SPLITKEIIl
W SKIS
faEXIBur
Árið 1946 mun færa okkur ýmsan varning, er
að undanförnu hefir verið erfitt að fá, t. d.:
Ryksugur
Hrærivélar
Skápgrammofóna
Píanó — Orgel
Mótorhjól
Reiðhjól
Myndavélar
Sjónauka
Laxveiðitæki
Iþróttaáhöld
Utanh orðsm ó tora
Vindsængur
Ferðaáttavita
Ferðaprimusa
Barnakerrur
Stofuklukkur
Kæliskápa
Þvottavélar
Byssur
Riffla
BRYNJOLFUR SVEINSSON H.F.
Hafnarstræti 85 — Sími 129 — Akureyri
EF YÐUR VANTAR
JOLAGJAFIR
þá lítið í
SKEMMUNA
P. V. A.
Rúsínur
Sveskjur
Epli
Þurrkaðir ávextir
Kókosmjöl
Bökunarvörur
Fæst í
Pöntunarlélagi Verkalýðsins
MUNIÐ,
að hjá okkur fáið þið ■
beztu
JÓLAGJAFIRNAR
Mikið úrval!
verzl.
EGGERTS EINARSSONAR
Kaupmenn og kaupfélög!
Von á nýjum vörum með
hverju skipi
Símanúmer okkar er 333
Heildverzlun Yigfúsar Þ. Jónssonar
SkíÖafólk!
Skíði
Skíðastafir
Skíðabindingar
Skíðabuxur (fyrir dömur og herra)
Skíðalegghlífar
Skíðavettlingar
Skíðastakkar
Bakpokar
Hliðartöskur
Svefnpokar
Sportvöru- og hljóðfæraverzlunin
Ráðhústorgi 5 — Akureyri
Heiðruðu viðskiptavinir!
Nýkomnar vörur - hentugar jólagjafir
Silkisokkar, enskir og svissneskir
Kjólatau
Gardínutau
Nærföt, margar gerðir
Undirkjólar
Undirfatasett
Regnhlífar, mjög vandaðar
Eyrnalokkar, frá kr. 15.00
Armbönd, frá kr. 11.00
Heiðruðu dömur — athugið!
Ávallt fyrirliggjandi nýtízku hattar úr bezta efni.
Hattar frá okkur teknir til breytinga og pressunar.
Gleðileg jol! Hattaverzlun Lillu og Þyri
Jólagjafír!
Herra:
Hálsklútar, hvítir
Hanzkar
Bindi
Ermahnappar
Raksett
Slípivélar
Dömu:
Náttkjólar
Náttermar
Undirföt
Silkisokkar
Ilmvötn
Gjafakassar
Einnig: Allt í jólabaksturinn!
Verzlun Jóns Egils