Straumsvíkurverkamaðurinn - 01.02.1975, Blaðsíða 2
m
Mor • B
Allt £rá áramótum hefur þaö verið ætlun okkar að gefa út blað,
sera sérstaklega værx ætlað verkafðlki, er vinnur við áliðjuverið
í Straumsvík. Nú loksins sér þetta blað dagsins ljós, en útkomu
fyrsta tölublaðsins hafði verið lofað fjrrir löngu* Sellan verður
því að biðjast velvirðingar á þeirri seinkun, sem orðið hefxir á
blaðinu. Astæðurnar fyrir pessari seinkun eru fyrst og fremst
þær, að sellumeðlimir hafa verið svo önnum kafnir við almenn
störf i þágu samtakanna og þannig ekki getað sinnt þessu verkefni
sem skyldi. Jafnframt hefur útkomti þessa blaðs orðið okkur o£
viðamikil og erfið í framkvæmd í því formi, sem við ætluöum í
fyrstu. Það hefur þvi verið ákveðið, að £orm þess og innihald
verði riieð einfaldara sniði en ætlunin var %. þannig að Straums-
víkurverkamaðurinn verði ekki blað i eiginlegum skilningi, heldur
gegni fremur því hlutverki að vera dre_i£irit, er fjalli um þau
mál, er snerta jafnt hagsmuni verkafólks í Straumsvik sérstaklega
sem og verkalýðsins á íslandi i heild. þannig myndi blaðið t.d.
fjalla um öryggismál i Straumsvik, kjarabaráttuna, arðrán og kúgun
Swiss Aluminium einokunarhringsins og annað, sem beinlinis snertir
hagsmuni verkafðlksins hér í Straumsvik, jafnfrant þvi sem skýrt
verður £rá þeim málum, er snerta hagsmuni þorra vinnandi alþýðu
á islandi, eins og t.d. þær gífurlegu kjaraskerðingar, sem dunið
hafayyfir okkur að iindanförnu og tilraunir borgarastéttarinnar,
með aðstoð rikisvalds sins, til að velta byrðum kreppunnar yfir
á verkalýðsstéttina.