Leikskrár Þjóðleikhússins - 07.10.1952, Blaðsíða 7

Leikskrár Þjóðleikhússins - 07.10.1952, Blaðsíða 7
A B B E Y - L E I K H Ú S I Ð. Þjóðleikhús Irlands. Aðfaranótt 18. júlí 1951 brann Abbey-lcikhúsið í Dyflinni. Eldurinn kom upp á leiksviðinu og gereyðilagði þann hluta byggingarinnar, búninga- og tjaldageymslur og vistarverur leikaranna. Áhorfendassalurinn stórskemmdist af eldi og vatni, en hið fræga málverkasafn af skáldum og leikurum í anddyri leikhússins slapp að mestu óskaddað af öðru en reyk og hita. Á leikkvöldum höfðu leikhúsgestir verið vanir að safnast þarna saman, fá sér hressingu og ræða um gang leiksins, sem verið var að sýna, og hafði þá stundum komið fyrir, að hitnaði í umræð- unum, svo að jafnvel lögregla og herlið var kvatt á vettvang. Aldrei hafði þó sá hiti leikið hina öldnu byggingu svo grátt sem nú gálaus meðferð sígarettustubbs, þvert á móti, hinar tíðu og hörðu deilur um vcrkefni þjóðleikhússins írska lýsa eins og eld- stólpar á langri og söguríkri slóð eins merkasta leikhúss vest- rænnar menningar. Myndir brautryðjenda, skálda, listamanna og leikara, voru ekki teknar niður eftir brunann. Þær héngu eftir sem áður í anddyrinu. W. B. Yeats fyrir miðju andspæn- is inngöngudyrum sem vera bar, á hægri vegg ti! hliðar Lady Gregory, „ræstingarkonan í Abbey“, sem Shaw kallaði, og hin- um meginn, náttúrlega, önnur Ijósmóðir hússins, Miss Horni- man, hvorug á vegg með Yea.ts, og gera ekki meira en svo að þola návist. hvor annarar, þó að allt anddyrið sé á rnilli. Hér er líka mynd af Maud Gonne, fyrstu Caitlin ni Houlihan eða Fjallkonu Irlands, og stór mynd er af Söru Allgood, leikkonunni góðu, en fyrst og fremst eru það skáldin, leikritaskáldin, sem sitja í fyrirrúmi. Dufþekkur Synge starir fjarrænu augnaráði út í keltneskan buskann, þar sem aldan brýtur á Aran og þýtur í eik í Wicklowdölum. Yfir te-borðinu vindur Lennox Robinson upp á hina löngu fætur sína eins og indverskur fakír og rétt við uppgönguna á svalirnar hefur sviðnað í kringum málverk af Sean O’Casey, og hefur þá fyrr hitnað í kringum þann mann. Strax eftir brunann fékk Ieikhúsið inni til bráðabirgða í rúm- góðu samkomuhúsi í borginni, svo að engin sýning féll niður þess vegna, en nýverið hefur stærsta leikhús borgarinn- [ 5 ]

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.