Leikskrár Þjóðleikhússins - 07.10.1952, Side 10

Leikskrár Þjóðleikhússins - 07.10.1952, Side 10
voru um tíma farnir að líta hýru auga til leikhússins vegna ber- sögli þess um írska þjóðarhætti og' lundarfar, en þá vakti hann reiði enskra yfirvalda í Irlandi með því að taka til sýningar sjónleik eftir Bernard Shaw, sem hafði verið bannaður í Eng- landi. A þann hátt og' með fleiri jafn einföldum ráðum hélt leik- húsið jafnvægi á milli hinna stríðandi afla, oftast með vísa vanþökk fjöldans fyrir umbun, en ávallt með merki listarinnar við hún á hverju sem gekk. Yeats var áhorfendum strangur siðameistari og agaði leikendur sína í hörðum skóla, enda fór brátt mikið orð af allri leikmeðferð þeirra. Hann þoldi þeim ekki hinn minnsta mótþróa gegn fyrirætlunum sínum og mörg- um ágætum leikurum var vikið burt fyrir þær sakir, en svo var virðing þeirra mikil fyrir Yeats, að jafnvel elztu og kunnustu leikarar og leikkonur risu sem einn maður úr sætum sínum, þeg- ar hann kom í biðsal leikenda að tjaldabaki. Fyrir skáldskap sinn var Yeats heiðri krýndur. Hann féklc Nóbels-verðlaunin 1923, hann var heiðurs-doktor við nokkra háskóla, hann var á skáldalaunum frá Bretlandi og hann var tilnefndur senator á fyrsta þing Irska fríríkisins. Hann andaðist fjarri ættjörðunni, í Frakklandi, rétt í stríðsbyrjun 1939, en lík hans var sótt af írskri hersnekkju og útför hans gerð á ríkisins kostnað. Við hlið Yeats stóð, meðan henni entist líf og heilsa, einhver merkasta kona sinnar samtíðar. Það var Lady Gregory, sem Bernard Shaw bæði í gamni og alvöru kallaði „ræstingarkonuna í Abbey“. Eins og Yeats var hún af ensk-írsku bergi brotin, ekkja jarðeiganda í vestanverðu Irlaiidi, sjálf ættuð frá Kunn- áttum. Ilún var ekki auðug, en hún studdi Yeats með ráðum og dáð, fékk ríkan nágranna sinn, kaþólskan, skáldið Edward Martyn, til að styðja fyrstu félagsstofnunina, og það voru þau þrjú, sem leigðu lítinn samkomusal í Dyflinni, þar sem fyrsta leiksýningin fór fram 8. maí 1899. Onnur kona ríkari, ungfrú Horniman í Manchester á Englandi, einlægur aðdáandi Yeats, en að öðru loyti ókunn írskum málum, bauð fram fé svo að fé- lagið gat keypt gamalt leikhús í borginni og nálæga byggingu, sem iaunar var líkhús borgarinnar. Leikhús þetta var í dag- legu tali nefnt „Mechanics“, samskonar stytting og „Iðnó“, og skemmtileg tilviljun, að „The Mechanics Theatre“ má leggja út: Járniðnaðarmanna-leikhúsið. En úr því minnst er á vort aldna leikhús í Reykjavík, þá lýsir það stórhug þeirra, sem það byggðu

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.