Polyvitamin - 31.01.1946, Page 1

Polyvitamin - 31.01.1946, Page 1
POLYVJTAMIN Fimmtudagur 31. janúar 1946 Frumskammtur (canapé). Stefán og Scheving hafa fundið nýtt ráð við eyðslusemi. Sá fyrri spennir launagreiðslur svo hátt, að ekki er hægt að eyða kaupinu. Sá síð- arnefndi þrælar svo niður vinnustundafjöldan- um að ekki er hægt að eyða frítímanum. Er Scheving reiðubúinn að veita aukið frí til þess að íhuga, hvernig þessum afgangstíma skuli varið, og Stefán er fús til að hækka kaupið sem þeirri fyrirhöfn nemur — en þá verður Scheving líka að gefa auka-auka-frí til þess að hægt sé að lóga öllum þessum tekjum. Oss finnst málið fara að vendast, og leggjum til að vellaunuð nefnd fái auka-auka-frí til að gera tillögur í málinu. Framhaldssagan. Er síðast var horfið frá framhaldssögunni um viðskipti þursa og puta, höfðu putar beðið herfilegan ósigur, nokkrir fallið en sumir sárir, síðan flúði foringi puta af landi burt, sennilegt, að hann óttaðist refsiaðgerðir Surts þursafor- ingja. Putar margir fylgdu honum í útlegðina, en sumir eru aftur heim komnir til að taka upp baráttuna á ný, og hafa þeir kappsamlega reynt að tileinka sér bardagaaðferðir vestrænna puta. Kusu putar sér foringja úr hópi hinna vestlærðu. Víkur nú sögu að því, að fyrrum höfðu hættur stórar steðjað að þursum og putum, stóð að þessum ófögnuði Tröll eitt ferlegt er býr að Arnarhóli. Hafði það fram til orustu sent óvíg- an flokk mangara norðan úr höfum, höfðu þeir fengið í lið sitt útlendan puta, Úfinnskegg að nafni og síðar putinju eina er brá sér í hálf- gíjarham og var þursum og putum óþæg mjög. Reistu mangarar sér herbúðir miklar norður undir ísnum og hafa síðan þeim herbúðum hald- ið. Var þetta þursum og putum áfall mikið, en sættu sig þó furðu vel við orðinn hlut. Þursar og putar gerðu nú með sér bandalag traust og höfðu sameiginlegan her. Átti her þessi að verja þursa og puta gegn öllum árásum Frh. á bls. 3. SAMSULLIÐ. Lag: Á sprengisandi fullvel um mig færi. í apóteki inndælt er að vera þótt ýmislegt þar verði samt að gera. Að hlaupa um í skranka, og hendast til og frá, að reikna verð, að blanda lyf og skrifa utaná. Pakka inn, aurunum við taka versogúð, 5-aura til baka versogúð. Það eina sem hjá Scheving þarf að sinna er að sirka út að gera minna og minna. Þar er hafður Super-Man, sem vinnur hundrað- fallt, verðleggur og afgreiðir og blandar (sér í allt). Syngjum dátt, Schevings drekkum minni. Hnerrar hátt, höfðinginn þar inni A—tjú—a-tjú!! Úr Ingólfi fæst enginn til að fara því Mogens lokkar til sín kvennaskara. Og Apoteker Mogensen nú hefir fengið kross. Hver verður svo næstur, sem hlýtur þetta hnoss ? Kristensen, han skal ha’ en Orden. Kristensen! Vi bröler som en Torden: Kristensen!! f Iðunni er úrvals fólk að finna þótt Fisher-Nielsen sé þar ei að vinna. Því þar er Baldvin, Birgir, frú Jóhanna & Co., frú Christensen með umboðið — nei, nú er komið nóg! Étum lax, útbleyttan í bóra, meiri lax, svo Baldvin fái’ að tóra. Étum lax! Hjá Stefáni nú færðu allt með rentum, fimmfalt kaup, svo ekki verði kent’um, að þar sé slæmt að vera, og engum í óhag. Nei, eggjasnaps og rófusneið þú færð í onálag. Stefáns heill, styðjum ekki Vilmund. Stefáns heill, lærum heldur langhund. Stefáns heill! laudsbókasafn «A'S 167339 ÍSL-ANDS

x

Polyvitamin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Polyvitamin
https://timarit.is/publication/2020

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.