Polyvitamin - 31.01.1946, Blaðsíða 1
POLYVJTAMIN
Fimmtudagur 31. janúar 1946
Frumskammtur
(canapé).
Stefán og Scheving hafa fundið nýtt ráð við
eyðslusemi. Sá fyrri spennir launagreiðslur svo
hátt, að ekki er hægt að eyða kaupinu. Sá síð-
arnefndi þrælar svo niður vinnustundafjöldan-
um að ekki er hægt að eyða frítímanum. Er
Scheving reiðubúinn að veita aukið frí til þess
að íhuga, hvernig þessum afgangstíma skuli
varið, og Stefán er fús til að hækka kaupið
sem þeirri fyrirhöfn nemur — en þá verður
Scheving líka að gefa auka-auka-frí til þess að
hægt sé að lóga öllum þessum tekjum. Oss
finnst málið fara að vendast, og leggjum til að
vellaunuð nefnd fái auka-auka-frí til að gera
tillögur í málinu.
Framhaldssagan.
Er síðast var horfið frá framhaldssögunni
um viðskipti þursa og puta, höfðu putar beðið
herfilegan ósigur, nokkrir fallið en sumir sárir,
síðan flúði foringi puta af landi burt, sennilegt,
að hann óttaðist refsiaðgerðir Surts þursafor-
ingja. Putar margir fylgdu honum í útlegðina,
en sumir eru aftur heim komnir til að taka upp
baráttuna á ný, og hafa þeir kappsamlega reynt
að tileinka sér bardagaaðferðir vestrænna puta.
Kusu putar sér foringja úr hópi hinna vestlærðu.
Víkur nú sögu að því, að fyrrum höfðu hættur
stórar steðjað að þursum og putum, stóð að
þessum ófögnuði Tröll eitt ferlegt er býr að
Arnarhóli. Hafði það fram til orustu sent óvíg-
an flokk mangara norðan úr höfum, höfðu þeir
fengið í lið sitt útlendan puta, Úfinnskegg að
nafni og síðar putinju eina er brá sér í hálf-
gíjarham og var þursum og putum óþæg mjög.
Reistu mangarar sér herbúðir miklar norður
undir ísnum og hafa síðan þeim herbúðum hald-
ið. Var þetta þursum og putum áfall mikið, en
sættu sig þó furðu vel við orðinn hlut.
Þursar og putar gerðu nú með sér bandalag
traust og höfðu sameiginlegan her. Átti her
þessi að verja þursa og puta gegn öllum árásum
Frh. á bls. 3.
SAMSULLIÐ.
Lag: Á sprengisandi fullvel um mig færi.
í apóteki inndælt er að vera
þótt ýmislegt þar verði samt að gera.
Að hlaupa um í skranka, og hendast til og frá,
að reikna verð, að blanda lyf og skrifa utaná.
Pakka inn, aurunum við taka
versogúð, 5-aura til baka
versogúð.
Það eina sem hjá Scheving þarf að sinna
er að sirka út að gera minna og minna.
Þar er hafður Super-Man, sem vinnur hundrað-
fallt,
verðleggur og afgreiðir og blandar (sér í allt).
Syngjum dátt, Schevings drekkum minni.
Hnerrar hátt, höfðinginn þar inni
A—tjú—a-tjú!!
Úr Ingólfi fæst enginn til að fara
því Mogens lokkar til sín kvennaskara.
Og Apoteker Mogensen nú hefir fengið kross.
Hver verður svo næstur, sem hlýtur þetta hnoss ?
Kristensen, han skal ha’ en Orden.
Kristensen! Vi bröler som en Torden:
Kristensen!!
f Iðunni er úrvals fólk að finna
þótt Fisher-Nielsen sé þar ei að vinna.
Því þar er Baldvin, Birgir, frú Jóhanna & Co.,
frú Christensen með umboðið —
nei, nú er komið nóg!
Étum lax, útbleyttan í bóra,
meiri lax, svo Baldvin fái’ að tóra.
Étum lax!
Hjá Stefáni nú færðu allt með rentum,
fimmfalt kaup, svo ekki verði kent’um,
að þar sé slæmt að vera, og engum í óhag.
Nei, eggjasnaps og rófusneið þú færð í onálag.
Stefáns heill, styðjum ekki Vilmund.
Stefáns heill, lærum heldur langhund.
Stefáns heill!
laudsbókasafn
«A'S 167339
ÍSL-ANDS