Félagsrit KRON - 15.02.1947, Page 3
1. árgangur
1. tölublað
Wi r v m __ -m.T Febrúar 1947
Felagsnt KROIV
ÚTGEFANDI: KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
Til félagsmanna KRON
A aðalfundum félagsins og víðar hafa
verið uppi all háværar raddir um það,
að nauðsynlegt væri að félagið gæfi út
blað, þar sem félagsmönnum væru gefn-
ar upplýsingar um viðgang félagsins á
hverjum tíma og þar sem félagsmenn
ræddu áhugamál sín varðandi félagið.
Félagið hefur áður gefið út slíkt blað
„Heimilið og KRON“ og „Heima“, en
síðan árið 1942 hefur útgáfustarfsemin
legið niðri. Ymislegt veldur því, að nú
virðist full þörf á félagsblaði, t. d. að
yfirleitt er erfitt að fá hús til fundar-
halda og jafnvel ]jó slíkt takist er fund-
arsóknin léleg og má þar sennilega um
kenna vaxandi störfum manna almennt.
Nú vill stjórn félagsins með þessu riti
gera tilraun til úrbóta með að ná til fé-
lagsmanna með málefni félagsins.
Aformað er að gefa út 4 blöð á ári og
yrði þá ársskýrslan felld inn í eitt þeirra.
Stjórnin óskar eftir samstarfi við sem
flesta félagsmenn, sem áhuga hafa fyrir
útgáfu félagsblaðs, að þeir sendi blaðinu
efni; greinar um áhugamál sín varðandi
félagið, fréttir frá innlendri og erlendri
samvinnuhreyfingu, jafnvel ýmislegt til
skemmtilesturs o. fl. — þannig, að hlað-
ið á hverjum tíma verði sem mest að
óskum félagsmanna, fjölhreytt, fróðlegt
og skemmtilegt.
Ritið er haft í bókarstærð, svo þægi-
legra sé fyrir félagsmenn að varðveita
]rað til innhindingar og geymslu í bóka-
skáp.
Skilnaður utanbæjardeilda og rekstur KRON
Ennþá liggja ekki fyrir endanlegar
skýrslur um vörusölu Kron á síðastliðnu
ari, en láta mun nærri, að hún nemi
14,4 milljónum kr., en að krónutali mun
það snöggt um meiri umsetning en árið
1943, en það ár náði félagið mestri
vörusölu frá byrjun.
Árið 1945 skildu Hafnarfjarðar- og
Keflavíkurdeildir Kron við aðalfélagið
og voru stofnuð sjálfstæð félög á þess-
um stöðum. Ennþá er ekki nákvæmlega
vitað um vörusölu þessara nýju félaga,
en eftir lauslegri áætlun mun umsetning
þeirra hafa numið 5—6 milljónum kr.
Félagsrit KRON
uwdsbókasafn
1