Ármann - 01.09.1973, Blaðsíða 7
ÁRMANN - LYFTINGADEILD
Þróun þríþrautarinnar
Norðurlandameistaramótum i
Noregi og Svíþjóð. Skeði nú
margt í senn. Hingað til lands
kom árið 1969 danskur maður
að nafni Bent Nilsen, og hélt
dómaranámskeið, sem útskrifaði
dómara í lyftingum. Úr því var
stutt í fyrsta íslandsmeistaramót-
ið í lyftingum, og var það háð
í Reykjavík haustið 1969, nánar
tiltekið í veitingastaðnum Lido.
Eins og gefur að skilja var þar
settur aragrúi af íslandsmetum,
og væri of langt mál að fara að
rekja það upp hér.
Þarna kom fram mikið af
ungum og efnilegum mönnum,
sem flestir hafa haldið áfram
keppni fram á þennan dag.
Heimsókn Dana
Veturinn 1971 réðust Ármenn-
ingar í það stórvirki að bjóða
beztu lyftingamönnum Dana
hingað til keppni. Fór keppnin
fram í Laugardalshöllinni og
heppnaðist hið allra bezta í alla
staði. Sóttu Danir ekki gull í
greipar íslendinga, þó svo að
þeir standi á gömlum merg í
íþróttinni. Þennan sama vetur
1 bættist Ármenningum góður liðs-
auki, sem var Gústaf Agnarsson,
er þá hóf æfingar af mildum
móð. Sýndi hann undraverðar
framfarir og er talinn einn efni-
Iegasti lyftingamaður sem fram
hefur komið á Norðurlöndum.
Þegar um haustið 1971 átti Gúst-
af mikla möguleika á að hljóta
Norðurlandameistaratitil ung-
Iinga, en vegna mistaka var hann
ekki sendur út til keppni.
Er Gústaf talinn vera í jafn-
miklum sérflokki meðal unglinga
á Norðurlöndum og Norðmaður-
inn Eivind Rekustad var fyrir
3 til 4 árum.
Vaxandi gengi
Fyrr á þessu ári héldu þeir
Óskar og Guðmundur til keppni
á Evrópumeistaramótið i Con-
stansa í Rúmeníu og stóðu þeir
sig þar af stakri prýði. Skapaði
þessi ferð þeim vissan „standard"
á heimslistanum yfir beztu lyft-
ingamenn. Svo á sjálfan þjóð-
hátíðardaginn 17. júní sl. kepptu
þeir Óskar og Gústaf á alþjóð-
legu móti í Danmörku. Því mið-
ur voru aðstæður lélegar og náði
Óskar ekki því takmarki að setja
nýtt íslandsmet og vinna sér þar
með rétt til þátttöku á Ólympíu-
Ieikunum í Múnchen. Gústaf
kom sá og sigraði, þvx eftir mót-
ið áttu Danir ekki orð til að
Iýsa hrifningu sinni á þessum
hávaxna íslenzka víkingi, sem
ekki bar meiri virðingu fyrir
þyngdum en svo, að hann reyndi
að bæta Norðurlandamet ung-
linga í snörun, en því miður mis-
tókst það.
Nokkru eftir þessa ferð tókst
svo Óskari að ná alþjóða Ólymp-
íulágmarkinu og voru það því
tveir íslenzkir lyftingamenn, sem
héldu til Múnchen. Guðmundur
hafði náð lágmarkinu fyrr á
árinu. Mönnum er enn í fersku
minni hin frábæra frammistaða
þeirra félaga á Ólympíuleikun-
um, þar sem þeir skipuðu sér á
bekk með fremstu íþróttamönn-
um lyftingaíþróttarinnar.
Hvar eru þeir?
Kannski mun einhver spyrja
hvað orðið hafi af frumkvöðlun-
um Birni, Svavari og Eiríki.
Vegna margvíslegra annarra á-
hugamála hætti Eiríkur fljótlega
A
afskiptum af íþróttinni. Svavar
snéri sér að Judo-iðkunum og
varð fyrsti íslandsmeistarinn í
þeirri íþróttagrein. Fyrir kemur
að hann grípi í lyftingatæki og
er hann enn vel Iiðtækur. Björn
hefur aftur á móti átt við van-
heilsu í baki að stríða, og því
lítið getað æft. En það stendur
allt til bóta og vonandi er hann
ekki búinn að segja sitt síðasta
orð.
Alþjóðamót
í bígerð
Mikill uppgangur er nú í
málum iyftingamanna, og eru
þeir að innrétta æfingaaðstöðu
að Brautarholti 22 ,og verður það
langt komið, þegar blað þetta
kemur fyrir almenningssjónir. Á
komandi vetri eru hér fyrirhug-
uð alþjóðamót í lyftingum, með
þátttöku margra af beztu lyft-
ingamönnum heims.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um þróun lyftinga á íslandi, en
þar sem efnin Ieyfa ekki útgáfu
á stærra né vandaðra blaði, verð-
um við að láta þetta nægja. Von-
andi verður seinna hægt að gefa
út meira og vandaðra rit, þar
sem árangur og annað markvert
munu skipa meiri sess. Við
þökkum öllum þeim, er stutt
hafa við bakið á okkur með ráð-
um og dáð, að ógleymdum fjár-
styrkjum.
Lyftingadeild Armanns
Farseð/ar ti/
Kanarí
næsta vetur
Sólarfri i skammdeginu
Allar nánari upplýsingar veitir:
WKrFERDASKRIFSTOFAN
URVAL
PÓSTHÚSSTRÆTI2, REYKJAVÍK
SÍMI 2 69 00
NÝTT FRÁ
Enn nýjungar frá
mm
„Læra má af leik”
NÝTT!
LEGO TANNHJÓL
Þroskandi skímmtun fyrir
unglinga á vélöld.
Ný tækifæri til þjálfunar
og þátttöku í tækni nútimans.
NYTT! LEGO DUPLO
Stórir LEGO-kubbar
fyrir yngstu börnin.
Einkum ætlaðir ungum börnum,
sem' enn hafa ekki náð öruggri
stjórn á fingrum sínum.
Njótió góórar skemmtunar heima.
AÐALSKRIFSTOFA
REYKJALUNDI,
Sími 91 66200
Mosfellssveit
SKRIFSTOFA
í REYKJAVÍK
Bræðraborgarstíg 9
Sími 22150
NÝTT FRÁ
NYTT FRA
NÝTT FRÁ