Fregnmiðinn - 20.06.1959, Page 1

Fregnmiðinn - 20.06.1959, Page 1
1*1 IÐI N N 1. tbl. 1. árg. juni 1959 . Útg. : Sjálfstæðisflokkurinn Ábm. : Magnus jónsson mun Stwm mrnuffm mvrmu Sigurður Nordal í 3. tölublaði K.iördæmablaðsins frá 2. juní* eru (með feitu letri!) prentuð ummæli eftir mig um "strjálbýlið og íslenzka menningu". Ég hefi orðið þess áskynja úr ýmsum áttum, að svo er litið á sem ég hafi skrifað þetta handa blaðinu og það eigi að vera andmæli gegn þeirri lausn kjördæmamálsins, sem samþykkt var nýlega á Alþingi. Hvort tveggja er eðlilegt. Blaðið hefur ekki sýnt þá ráðvendni að skýra frá því*, hvaðan þessi ummæli séu tekin. Það er svo einsýnt 1 öllum mál- flutningi sínum, að engum getur dottið 1 hug að þar sé neitt prentað nema 1 einum og sama tilgangi, hvers efnis sem það annars er. Og þetta tölublað þess kom einmitt ut um leið og öll önnur blaðautgáfa stöðvaðist, svo að ég hafði ekkert tækifæri til þess að leiðrétta þennan misskilning þegar 1 stað. Fyrrnefnd ummæli eru, vitanlega að mér fornspurðum, sott 1 32 ára gamla grein, sem var prentuð i' Vöku árið 1927. f þeim er ekkert, . sem ég er ekki fús að standa við enn 1 dag. En eins og hver maður getur séð, sem nennir að lesa þau, koma þau kjördæmamálinu ekki lifandi vitxind við. Ef ég hefði ætlað mér að styðja málstað Kjördæma- blaðsins, mátti ekki minna vera en ég hefði minnzt eitthvað a það, sem nu er deilt um. Eins og allir vita, voru þeir þrýr flokkar, sem stóðu að samþykkt síðasta þings, sammála Framsóknarflokknum um að hafa rett kjosenda 1 strjálbýlinu áfram meiri en kjósenda 1 þéttbýlinu, og Framsókn aftur þessum þrem flokkum um hitt, að ekki væri lengur stætt á svo miklu misrétti sem átt hefur sér stað upp á siðkastið. Eini raunverulegi ágreiningurinn er þá um það, hvort gera skuli rétt einstakra hluta dreifbýlisins og kjósenda þar jafnari en hann er nu. Að þessu stefnir einmitt hin fyrirhugaða breyting á kjördæmaskipuninni. Ef nokkurum manni gæti verið forvitni á að vita, hvernig einn óbreyttur reykviskur kjósandi ætlar að verja sinu léttvæga atkvæði, er mér sönn ánægja að lýsa yfir þvá, að ég mun neyta þess til að styðja þessa fyrir- huguðu breytingu, - meðal annars vegna þess, að ég hygg hun muni verða til verulegs ávinnings fyrir strjálbýlið.

x

Fregnmiðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnmiðinn
https://timarit.is/publication/2031

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.