Alþýðublaðið - 08.02.1926, Blaðsíða 1
Grefiö dt al AlþýdoflokknQm
1926.
Mánudaginn 8. febrúar.
33. lölublað.
Vfrlenti simskeyfi.
Khöfn, FB., 6. febr.
Seðlafölsunarprentvélin fundin.
Frá Budapest er símað, að
prentvélin, sem notuð var af pen-
ingafölsurunum, sé fundin. Hún
er af þýzkri gerð, búin til í
Leipzig.
Amundsen hættulega veikur.
Frá Los Angeles í Californíu
er sírnað, að Amundsen sé þar
staddur, hættulega veikur, senni-
lega af lungnabólgu. Frægir lækn-
ar bafa verið sóttir til hans.
Heimskautsflugið ameriska.
Frá New-York-borg er símað,
að 'amerísku heimskautsfararnir,
sem Ford styður með fjárfram-
iögum, séu farnir af stað til Al-
aska. Þar eru fyrir tvær Fokker-
flugvélar. Ráðgert er, að fljúga
frá Alaska í byrjun marz. Finn-
ist land á norðurleið, er ákveðið,
að varpa niður ameríska fánan-
um í landnámsskyni.
Eftirlit með ítaliuförum.
Frá Rómaborg er símað, að það
hafi verið opinberlega tilkynt, að
allir ftalíufarar verði að fá far-
arleyfi hjá ítölskum ræðismanni
og segja honum, hver tilgangur
þeirra sé með förinni.
Áfengisbölið.
Frá Honolulu er símað, að sex
hermenn hafi beðið bana af hár-
vatnsdrykkju. Aðrir sex eru dauð-
vona af sömu orsök.
Frá Vestmannaeyjum.
Stjórnarkosning i verkamanna-
fél. „Drifanda41.
Á aðalfundi verkamannafélags-
ins „Drífanda" í Vestmannaeyjum
voru kosnir í stjórn Kjartan Nor-
dal formaður, Jón Rafnsson ritari
og Tómas Jónsson gjaldkeri. Með-
stjórnendur: Haukur Björnsson og
ísleifur Högnason.
Kappteflið norsk-islenzka.
(Tilk. frá Taflfélagi Reykjavíkur.)
Borð I, 43. leikur fslendinga
(hvítt), K b 6 x a 6. Þá gáfust
Norðmenn upp.
Borð II, 41. leikur fslendinga
(svart), H c 1 x c2, skák.
42. leikur Norðmanna (hvítt), K
f 2 — e 1.
42. leikur fslendinga (svart), B
e 4 — d 3.
Innlei&d tíðindi.
Seyðisfirði, FB., 7. jan.
Bæjarstjórnin hefir ákveðið, að
veita 15000 kr. til endurbóta á
sjúkrahúsinu hér, fáist umsótt 30
þús. kr, fjárveiting úr ríkissjóði
í því skyni. Enn fremur ályktað,
að ráða Guðmund Ásmundsson
iækni í Noregi sjúkrahússlækni,
ef um semst. — Síðasti fundur
ákvað, að senda Jóhannesi Jó-
hannessyni bæjarfógeta alúðar-
þökk fyrir ákvæði um Stúdenta-
garðs-gjöf hans.
Ritstjóri „Hænis“ hefir höfðað
mál gegn biaðinu „Eini“ fyrir
meiðandi unnnæli í tveimur nafn-
lausum greinum. Sáttafundur í
gær varð árangurslaus.
Góðviðri, úrkoma. Snjólétt. Gott
heilsufar.
Um daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Árni Pétursson, Uppsöl-
um, shni 1900.
Þingstörfum frestað.
Eftir að alþingi hafði verið sett á
laugardaginn, tilkynti forsætisráðherr-
ann, að samkvæmt ósk „Framsókn-
ar“-flokksins og „Sjálfstæðis“-flokks-
ins og með samþykki íhaldsflokksins
yrði þingfundi frestað þar til i dag
og þar með forsetakosningum o. s.
frv. sökum þess, að sjö þingmenn
voru þá enn ókomnir.
Stjórn Jafnaðarmannafélags ís-
lands
var endurkosin á aðalfundi þess í
fyrra kvöld: Haraldur Guðmundsson
bæjarfulltrúi, formaður, meðstjórn-
endur Nikulás Friðriksson, Guðmund-
ur Ó. Guðmundsson, Guðmundur Ein-
arsson og Sigurður Guðmundsson (á
Freyjug. 10) og endurskoðendur Kjart-
an Ólafsson steínsmiður og Sigurjón
Á. Ólafsson. — Á fundinum flutti Pét-
ur G. Guðmundsson fróðlegt erindi
um kosningar. Fundurinn var vel
sóttur.
Trúlofun.
6. þ. m. opinberuðu trúlofun sína
Marta Kolbeinsdóttir, Suðurgötu 14,
Hafnarfirði, og Axel Grímsson, tré-
smiður, Bókhlöðustíg 11. Reykjavík.
ísfisksala.
Maí hefir nýlega selt afla sinn fyrir
1163 sterlingspund.
Frá fiskiþinginu.
Tillaga hefir komið fram frá forseta
þess, um að leggja nokkuð af út-
flutningstolli sildar í sjóð, sem varið
sé til að leita nýrra markaða fyrir
íslenzku sildina.
Tvitugtefli.
Brynjólfur Stefánsson stud. polyt,
tefldi við 20 á 20 borðum i Bárunni
i gær; vann hann 9, en tapaði 10, og"
ein skákin varð jafntefli. Töflin stóðu
yfir tæpar 4 stundir.
Skipaferðír.
Suðurland kom frá Stykkishólmi i gær
Island fer síðdegis í dag til útlanda.
Togararnir.
Snorri goði kom frá Englandi í
morgun. Egill Skallagrímsson kom af
veiðum í fyrra dag með 700 kassa.
Fór aftur á veiðar. Ætlaði hann að
fiska dálítið í viðbót og fara síðan til
Englands.
Snjólaust
var alveg í Önundarfirði núna fyrir
helgína, eins og á sumardegi, sagði
maður, sem kom þaðan að vestan
með „lslandi“.