Skák


Skák - 15.01.1958, Síða 4

Skák - 15.01.1958, Síða 4
miðað við taflmennskuna, því að hún var götótt sem gamall ostur. Slæm i byrjun, góð um miðbik mótsins, hörmuleg í lokin. Hin aldna kempa Najdorf kemur svo f 7. sæti og má hann vissulega muna sinn fífil fegri. Hver man eftir Najdorf næstneðstum í móti áður fyrr? En Najdorf var ekki gæfunnar barn í þessu móti, eins og áðurnefnt tap hans gegn Res- hevsky sýnir ljóslega, enda virtist mér hann eldast um 10 ár við þann atburð. í síðasta sæti kemur svo bandaríski stórmeistarinn Ev- ans og verður ekki sagt, að hann hafi átt hærra sæti skilið, en að sjálfsögðu tefldi hann undir sín- um venjulega styrkleika. Mótið var afar strangt, því að þessar 14 umferðir voru tefldar á aðeins 16 dögum. Hafði þetta að sjálfsögðu sín áhrif á gæði skákanna, enda er mjög óalgengt að mót vinnist á svo lágri pró- sentutölu sem hér varð raunin á. Sýnir það líka öðrum þræði, hve keppnin hefur verið jöfn, því að einungis skilja að fyrsta og síð- asta mann 3Vs vinningur. — AÖ- sókn að mótinu var fremur dræm til aö byrja með, en jókst, er á leið, og komu margir skákunn- endur frá öðrum landshlutum, þegar liða tók að síðustu umferð. Aðbúnaður keppenda var allur með ágætum og munum við lengi minnast frábærrar gestrisni þeirra Texasbúa. Friðrik Ólafsson. Skák nr. 629. Hvítt: L. Szabó. Svart: FriSrik Ólafsson. Grúnfelds-vörn. 1.. d4 Rf6 2. c4 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 d5 Ég tefli þetta varnar- kerfi ákaflega sjaldan, en það er hins vegar góð tilbreyting frá margþvældum afbrigðum Kóngs- indversku varnarinnar. 5. cxd5 Rxd5 6. e4 6. Rf3, eins og Tifunovic lék á móti mér í Wageningen, virðist hættuminna áframhald. 6. — Rb4 Skarpasta svarið eins og kemur á daginn. 7. d5 7. a3 R4c6 8. d5 Rd4 þykir hagstætt svörtum. 7. — c6 8. Re2 cxd5 9. exd5 Áframhaldið 9. a3 Da5 10. O—O með hótuninni 11. Bd2 kemur hér til greina, þótt örðugt sé að segja til um réttmæti þess. 9. — Bf5 10. Da4f? í hæsta máta vafasamur leikur, eins og þegar hefur verið sýnt fram á í fjölda skáka. Rökrétt er 10. O—O og strandar þá - Rc2 á 11. g4. Hvítur fær tvo létta menn fyrir hrókinn. 10. — R8c6 11. O—O Riddarinn var eigi dræpur vegna Il.-Rc2t og síðan - Ddlt mát. 11. — Bc2 Nýjasta endurbótin á vamarkerfi svarts. Hvítur neyð- ist til að láta af hendi hið þýð- ingarmikla d-peð sitt og er það bezta sönnun þess, að leikaðferð hans er eitthvað ábótavant. Þess ber aö gæta hér, að Il.-Rxd5 strax strandaði á 12. Hdl e6 13. Rbc3 og svartur á í margvíslegum erfiðleikum. 12. DaS En ekki 12. Db5 Bd3 13. Dxb7? Hb8. 12. — Rxd5 Nú er 13. Hdl ekki mögulegt, en hvítur hefur önnur ráð til að flækja taflið. 13. Dc5 Bxbl Mannstapi varð ekki forðað á annan hátt. 14. Bxd5 Skákin Porath-Barcza (landsmaður Szabó) Moskva ’56 tefldist: 14. Hxbl e6 15. Rc3 Db6 16. DxD RxD 17. Rb5 0—0 og svartur fékk betra endatafl. Leiö sú, er Szabó velur hér, er skarp- ari, en leiðir ekki til neins við rétta taflmennsku af hálfu svarts. 14. — Bf5 15. Bg5 Á þennan hátt hyggst hvítur notfæra sér yfirburði sína í liðskipan. — En svartur á einfaldan svarleik. 15. — Hc8! Hótunin 16. - Rd4 vofir nú yfir hvítum, og tækni- lega séð er hann þegar glataður. 16. Hfbl! Szabó er ekkl af baki dottinn. — Eftir 16. - Rd4 fengi svartur alvarlegan skell: 17. Dxe7t! Dxe7 18. Rxd4 Dxelt 19. Hxelt Kf8 20. Rxf5 gxf5 21. He7 og staða hans er ömurleg! 18. — 0—0 17. Rc3 li6 18. Bc3 Eftir þennan leik er mannstap óumflýjanlegt, en sú var einnig raunin eftir 1C. Bxe7 Rxe7 19. Dxe7 Bxc3. Eina leiðin til að klóra í bakkann var 18. Bh4. 18. — Ra5 19. Dxa7 Ef 19. Db5, þá - a6. 19. — Hxc3! Betra en 19. -Bxc3 20. Hedl! 20. Hedl Hd3 21. IIxd3 Bxd3 22. Bg2 Hvítur hefði getað gefist upp hér, en hann hefur ennþá ekki misst trúna á forsjónina. Næsti leikur svarts virðist líka réttlæta þessa afstöðu hans! 22. — Ba6 23. Bb6 Nú virðist hvítur vinna manninn aftur eftir 23. - Dd2 24. Bxa5 Dxa5 25. Bxb7. Málið er bara ekki svo einfalt. 23. — Dd6! og hvítur gafst upp. Hann tapar drottningunni eftir 24. Bxa5 Bd4. Rkýríno'fT eftlr Friörtk ólafsson. ★ Najdorf fer í peðakaup á drottn- ingarvæng til þess að opna sér línur, og einnig til að tryggja sér peðameirihluta á miðborðinu. — Þetta tekst að vísu, en færir Res- hevsky hins vegar sóknarmögu- leika, ásamt tveim samstæðum frípeðum, sem reynast Najdorf of erfið viðureignar. Þegar svartur sér hvert stefnir, reynir hann að stöðva framrás peðanna með því að láta drottningu sína fyrir hrók og riddara, en sú tilraun hans ber ekki árangur. Skák nr. 630. Hvítt: Reshcvsky. Svart: Najdorf. Nimzoindversk vöm. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5 5. Re2 cxd4 6. exd4 d5 7. c5 Re4 8. Bd2 Rxd2 9. Dxd2 b6 10. a3 Bxc3 11. Rxc3 bxc5 12. dxc5 a5 13. Bb5t Bd7 14. 0—0 0—0 15. b4 Bxb5 16. Rxb5 Ra6 17. Rd6 Dd7 18. f4 Hab8 19. f5 exf5 20. Habl axb4 21. axb4 Kh8 22. Dc3 Rc7 23. Rxf5 Rc6 24. Rd6 f6 25. Dh3 Hfd8 26. Hfel Rd4 27. He8t Dxe8 28. Rxe8 Hxe8 29. b5 Rxb5 30. Dd7 Rc3 31. Hxb8 Hxb8 32. c6 Re4 33. h4 Gefið. 2 S <Á8Í

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.