Kosningablað Sjálfstæðismanna - 14.07.1933, Síða 2

Kosningablað Sjálfstæðismanna - 14.07.1933, Síða 2
Á þessumÍfj^ árum fók Fram- sóknarstjór^in ný ríkislán, samtals að upphæð 151/* miijón króna, og af þeim þarf ríkissjóður sjálfur að standa straum af um 12 miljónum króna. — Auk þess tók ríkið að sér 3 miljónir króna af láninu frá 1921 (til Útvegsbankans), en af eldri lánum voru greiddar einar 3 milj- ónir króna. Raunveruleg aukning ríkisshuld- anna á þessum einstöku góöœr- um nam því 12 miljónum og 200 þúsund krónum. Eyðsla Framsóknarstjórnarinnar var því á þessum 3 árum um 60 miljónir króna, eða um 20 milj- króna árlega, móti 11V* miljón kióna í stjórnartíð Jóns þorláks- sonar. — það er einnig mjög eftirtektar- vert, að þótt umframtekjurnar væru 14.6 miljónir, þá fór þó ekkert af þessari fúlgu til þeirra framkvæmda og ráðstafana, sem Framsókn gumaði mest af og gaf út heila myndabók á ríkisins kostnað til að dásama, því að alt var það tekið að láni. Framlagið til Landsbankans (3 milj.) var tekið að láni. Framlag- ið til Búnaðarbankans (3.6) milj.) sömuleiðis. Sama er að segja um framlagið til Útvegsbankans (4.5 milj.) Féð til endurbyggingar síma- stöðvaririnar (1.2 miljónir) var tekið að láni, byggingarkostnaður útvarpsstöðvarinnar sömuleiðis (7—800.000). Sama er að segja um byggingarkostnað síldarbræðsl- unnar á Siglufirði (1.3 milj.). — Sama um kaupverð „járnbrautar smáhafnaena" (230 þús.). Sama um byggingarkostnað Arnarhvols (351 þús. kr.)Sama um kaupverð Reykj- artorfunnar (70 þús.). Sama um byggingartillagið til Landsspítalans (847.000) og til kaupa vinnuhælis- ins á Stórahrauni (50.000). —Alt var þetta tekið að láni. Umframtekjunum var hinsvegar ráðstafað í hitt og þetta, sumt nauðsynlngt, annað algjörlega ó- nauðsynlegt, sumu var beinlínis stolið úr ríkissjóði til uppihalds bitlingaliði Framsóknar og sóclal- ista. — En um alt þetta másegja að fénu hafi verið kastað út á báða bóga algjörlega heimildar- laust og forsjárlaust. — Þessi stórkostlega skuldaaukning er nú farin aö hafa sín þungu en óhjákvæmilegu áhrif á árlegan rekstur þjóðarbúsins, eins og lýs- ir sér í því, að vextirnir af skuld- unum, sem árið 1927 voru komn- ir niður í 701 þúsund kr., voru árið 1929 orðnir um 935 þús. kr. en áriö 1932 um lx/2 miljón, aða meira en helmingi hœrri en árið 1927, þegar Sjálfstœðismenn le'tu af fjármálastjórninni. Þetta eru verk og tölur sem tala til þeirra, sem skilja vilja. þetta er nú sagan af fjármála- stjórn Framsóknarflokksins þau árin, sem að Jónas Jónsson réði í einu öllu meö samþykki og stuðningi raunverulegra flokks- bræðra sinna, jafnaðarmanna. Árin 1931 og 1932 má að vísu segja, að nokkur stefnubreyting hafi átt sér stað í fjármálastjórn Framsóknarflokkstns viö það, að Ásgeir Ásgeirsson tók við fjár- málaráðherraembættinu og svifti Jónas frá Hriflu að mestu mögu- leikum til fjárausturs úr ríkissjóði. Árið 1931 voru tekjur ríkisins kr. 14.959.177, en voru áætlaðar kr. 12.816.000, en útgjöld ríkisins urðu kr. 15.654.344. Tekjuhalli var því kr. 695.167. En við þenna halla bætast eignahreyfingar gjalda- megin, að frádregnum eignahreyf- ingum tekjumegin. Raunverulegur greiösluhalli er því árið 1931 kr. 2.945.000.— Árið 1932 voru gjöldin 13 milj. 832 þús. kr., en tekjur voru alls 11.483 þús. kr., svo greiðsluhalli ársins hefur orðið 2.249.000 kr. Á þessum 2 árum hefur greiðslu- halli því numið alls um 5 milj. og 200 þús. kr., og í árslok 1932 eru ríkisskuldirnar orðnar alls 40 milj. 927 þús. kr. Áf þessari upphæð hvíla um 26 milj. beinlínis á rík- inu, sem það verður að standa straum af. Um fjárlögin frá síðasta þingi er það aö segja, að það er síður en svo, að eins vandlega sé frá þeim gengið, eins og vænta hefði mátt, því nú ætti öllum að vera Ijóst, að tími er kominn til að ríkið hætti skuldasöfnun og reki hallalausan búskap. Við lestur sjálfra fjárlaganna er svo að sjá, að þau séu afgreidd meö 22 þús. kr. tekjuafgangi, en þegar nánara er aðgætt, eru í 22. gr. þeirra útgjaldaheimildir og ábyrgðarheimildir sem nema stór- kostlegum upphæðum. Af því, sem nú hefur verið iýst um fjárhaginn, er það sýnilegt, að hann er í alla staði hinn óg- urlegasti og sjálfstæði landsins komið í bókstaflegan voða. Skattabiröi hvers einstaklings til ríkis og sveita er líka orðin svo ódærileg, að ekkl verður með neinu sæmilegu móti hert frekar á skattaskrúfunni. Samt verður að komast út úr öngþveitinu og til þess duga eng- in vetlingatök. Það sem gera verður er í höf- uðatriöunum þetta: a) Gjöld ríkisins verður að færa niður til mikilla muna. í þvísam- bandi verður að afnema öll óþörf embætti og óþarft starfsmannahald og þau embætti og starfa aðra, sem ekki verður að skoða sem úradnauðsynlega til reksturs ríkis- ins, þótt ekki geti þeir talist óþarf- ir — og gæta sparnaðar í rekstri í hvnetna. Einúasölur ríkisins á að leggja niður og leysa það fé, sem í þeim er bundið, og hlýtur það auk þess að hafa stórkostlegan sparnað í för með sér, því í skjóli þeirraer hópur af vinnulausum ónytjungum á háum Iaunum, sem er arfur Framsóknar og sócíalistastjómar- innar. Ennfremur ætti að leggja niður skipaútgerð ríkisins og leggja rekst- ur ríkisskipanna undir Eimskipa- félag íslands. Sama er að segja um Lands- smiðjuna og ýmsar fleiri stofnan- ir síðari ára. b) Þá þarf tafarlaust að afnema öll innflutningshöft og tálmanir með gjaldeyrisverslun. Innflutningshöftin hafa sáralitla þýðingu fyrir greiðslujöfnuð ríkis- ins út á við, en svifta ríkissjóð hinsvegar tolltekjum, sem hann alls ekki má án vera og auka stórum dýrtíð í landinu. c) Þá verður að efla og treysta atvinnunegina — skapa meirifjöl- breytni og ná betri skipulagningu og aukinni samvinnu milli verka- manna og vinnuveitenda, t. d. með því að finna hæfilegan grundvöll fyrir hlutaskiftingu sjómanna, sem gefur þeim frekara tækifæri til arðs ef að vel gengur, en gerir þá um leið interesseraða í fjárhagsafkomu fyrirtækjanna. — d) Á það, að auka og tryggja markaði fyrir framleiðsluvöru landsrnanna verður að leggja hina mestu áherslu. — Á sviði land- búnaðarins þarf að leggja meiri áherslu en gjört hefur verið á markað innanlands. Á sviði sjávarútvegsins þarf að leggja áherslu á hraðfrysting fiskj- ar og að koma þeirri vöru á er- lenda markaði. Ég hef nú í fáum dráttum lýst ríkisbúskapnum að því er hann tekur til fjármála í höndum Sjálf- stæðismanna fyrst og síðan í hönd- um Framsóknarmanna með stuðn- ingi jafnaðarmanna. Þessi lýsing hefur sýnt það, að ólíkt hefur verið á haldið um fjár- málin. Landsmenn vita það allir, þótt sumir vilji ekki af skiljanlegum ástæðum viðurkenna það, að fjár- hagslega viðreisn ríkisins geta sjálfstœðismenn einir framkvœmt. í þeirra flökki er sá eini mað- ur, sem sýnt hefur að hann hefur haft vilja og vit til að endurreisa fjárhag ríkisins úr rústum — Jón Þorláksson — og ég vona að þjóðin beri gæfu til þess að nota starfskrafta hans til þess aftur — áður en það er orðið of seint. Ég hef nú farið nokkrum orð- um um fjármálastjórn þá, sem við höfum átt undir að búa síðastlið- in 5 ár. Nú skal ég snúa mér lítilsháttar að öðru stjórnarfari í stjórnartíð Framsóknar og jafnaðarmanna. Ef að skírgreina á framkvæmd- ir stjórnarinnar með tilliti til kosn- ingarloforöanna 1927, verður það ekki betur gjört en með þessum 2 orðum: loforð og svik. Eitt af ákveðnustu kosningar- loforðunum var að forðast skulda- söfnun og búa skuldlaust — enda hafði Tíminn ráðist mjög að Sjálfstæðismönnum meö brigsl- yrðum um ógætilega fjármálastjórn og skuldasöfnun. í kaflanum á undan hef ég sýnt fram á það, að ríkisskuldirnar uxu um 15x/2 miljón f stjórnartíð Framsóknar, þrátt fyrir eindæma góöæri. Kjósendum var lofað vaxtalækk- un. í stað vaxtalækkunar hœkkuðu vextir. Hinum ítrasta sparnaði var lofað í rekstri þjóðarbúsins. Aldrei hefir í sögu íslensku þjóðarinnar verið sóað og sukk- að eins og á ráðsmenskutímabili Jónasar frá Hriflu. Embættum átti að fækka, en raunin varð sú, að nýjum opin- berum starfsmönnum, að meira eða minna Ieyti óþörfum, skaut upp eins og gorkúlunv á mykju- haug. — Eitt af þeim embættum, sem Tíminn hafði mest barist á móti og taliö óþarfast af öllu var sendi- mannsstarfinn á Spáni. — Ekki bar neitt á að Tímastjórnin Iegði hann niður. þvert á móti hefur hann nú um skeið verið notaður sem bitlingur handa uppgjafa bankastjóra úr hópi Framsóknar- manna. Krossarnir voru eitt af því, sem mest var á móti barist og taliö prjál og óþarfi, sem fullorðnum mönnum væri ósamboðiö að eiga við. — Tryggvi Þórhallsson og Ásgeir Ásgeirsson eru nú samt orðnir svo ógurlegir krossberar —- þrátt fyrir fyrri ummæli—að vart mun finnast á ameríkönsku miljóna- mæringaheimili skrautlegra jólatré en þeir, er þeir klæðast skrúði sínu. — Og að Framsóknarstjórnin hafi ekki talið neina goðgá að gefa íslenska krossa má sjá á því, að 26 þúsund krónur voru notaðar til krossagerðar í stjórnartíð þeirra. Og að ekki hafi allir þurft til mik- ils að vinna til að verða heiðurs- ins aðnjótandi sést við fljótan lestur í B-deiId stjórnartíðindanna. Til þess aöeins að nefna eitt dæmi skal þess getið, að kognaks- fabrikant í Frakklandi Courmount að nafni — faðir Courmount konsúls — er gjörður að stór- riddara íslensku fálkaorðunnar. Um afskifti hans af íslandi eða íslenskum málum er ekki annað vitað, en að eftir dauða sonar síns taldi hann ekki svara kostn- aði að flytja út reiðhesta 2, sem hann átti hér, og mun hafa gefið þá vini sonar síns, Jónasi frá Hriflu. — Á mörg fleiri dæmi mætti minnast um ráðdeild og fordild Framsóknarstjórnarinnar. Veislu- höld hennat og óhóf á ríkiskostn- að eru aiþekt, t. d. síldarverk- smiöjuveisluna, veislan, sem hald- in var á Hótel Borg. þegar gæð- ingur hennar Einar skipstjóri á Ægir tók Belgaum fastan, sællar minningar, Ennfremur erkostnað- urinn við bíla- og hestahöld, sem sumpart var greiddur úr landhelg- issjóði og sumpart úr ríkissjóði, í fersku minni og ekki síöur Borg- arfjarðarferðin fræga, þegar Óðinn var notaöur sem léttibátur fyrir Fyllu. — þessu skal þð slept hér en ef ti! vili verður tækifæri til þess að koma lítilsháttar að því síðar. En hér má ekki ganga fram hjá því, aö það alvarlegasta við stjórn Framsóknar var það, að hún var

x

Kosningablað Sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað Sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/2046

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.