Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Síða 4

Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Síða 4
Skáíúþróttin varjhtápólitísk þegar Spassky og Fischer gefígu á hólm í Reykjavík. Heimurinn hafði rambað á barmi styijaldar en nú átti að gera upp kalda striðið á hvítum reitum og svörtum. Illugi Jökulsson veitir innsýn í spennandi heim OG HEIMSPOLITI Þegar Sovétmaðurinn Borís Spasskí og Bandaríkjamaðurinn Bobby Fischer settust að tafli í Reykjavík voru ekki nema tiu ár síðan engu hafði munað að kjarnorkustyrjöld brytist út milli stórveldanna sem þeir voru fulltrúar fyrir. veldi Sovétmcnno þannig varð hann HtlMSWEISTARI E' VIÆLISMOT DARINNAR Haustið 1962 höfðu Bandaríkjamenn uppgötvað að Sovétmenn voru að koma fyrir eldflaugum með kjarnorkuvopnum á Kúbu, steinsnar frá ströndum Bandaríkjanna, og þeir brugðust við affullri hörku. I nokkra daga í nóvember rambaði heimurinn á barmi styrjaldar sem hefði tortímt hundruðum milljóna og gert stóra hluta Jarðar óbyggilega í áratugi eða jafnvel aldir. A síðustu stundu tókst leiðtogunum Nikita Krústjov og John F. Kennedy að vinda ofan af ástandinu, en allir vissu að mjög litlu hafði rnunað. Og þó leiðtogar stórveldanna tveggja væru ákveðnir í að koma í veg að slíkt hættuástand endurtæki sig, þá sýndu atburðirnir í nóvember 1962 að „kalda stríðið“ svokallaða var svo sannarlega ekkert grín. Sem betur fór kom aldrei til allsherjarstríðs um víða veröld milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna en ýmis staðbundin stríð voru beint eða óbeint afleiðing samkeppninnar milli þeirra. Og áróðursstríðið var líka ________________ gríðarlega hart. Bæði ríkið beittu öllum brögðum til að skapa sér betri áróðursstöðu og ganga í augum á heiminum. Sovétmenn höfðu snemma áttað sig á mikilvægi skáklistarinnar í því sambandi. Allt frá því á fjórða áratugnum lögðu þeir mikla áherslu á að efla skáldífí landinu.Að hluta til var það vegna þess að þeir áttuðu sig á uppeldisgildi manntaflsins en einnig og ekki síður vegna þess að skáklistin naut virðingar og aðdáunar. Ef Sovétríkin stæðu framarlega á því sviði myndu þau njóta góðs af þeirri virðingu. Áróðursstríð stórveldanna stóð áratugum saman, bæði á sviði lista, menningar, íþrótta og stjórnmála. Eftir að stórveldin höfðu staðið á barnti hengiflugsins í nóvember 1962 vildu bæði snúa af þeirri braut sem virtist leið beint til kjarnorkustyrjaldar, en þá voru tortryggnin og kappsemin orðin of mikil. Það tók áratugi að vinda ofan á því hugarfari sem hafði nærri steypt öllu mannkyni í glötun 1962. Árið 1972 voru nýir leiðtogar komnir til skjalanna í báðum risaveldunum. Richard Nixon stóð þá á hátindi sínum í Bandaríkjunum. Hann hafði gegnt forsetaembættinu í tæp fögur ár og ljóst var að hann yrði endurkjörinn með yfirburðum í nóvember 1972. Hann hafði rneðal annars komist til valda af því landar hans treystu honum til að sýna Sovétríkjunum fulla hörku, hann var víðkunnur sem stækur andkommúnisti. Þótt Nixon hafi seinna þurft að hrökklast úr embætti vegna bellibragða og lögbrota sem hann og hans menn voru sekir um í kosningabaráttunni (innbrotin í Watergate-bygginguna áttu sér stað í byrjun júní 1972 þegar íslendingar vissu enn ekki hvort eitthvað yrði af heimsmeistaraeinvíginu í skák), þá var Nixon um þetta leyti að vinna ýmis merkileg afrek í alþjóðasamskiptum. I febrúar hafði hann farið í heimsókn til Peking en kommúnistastjórnin í Kína hafði í áratug verið afar einangruð eftir að hún komst upp á kant við „stóra bróður“ í Sovétríkjunum. Það var áhyggjuefni og jafnvel álitshnekkir fýrir Sovétríkin að horfa upp á Bandaríkjamenn vingast við Kínverja, og þeim mun

x

Afmælismót aldarinnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælismót aldarinnar
https://timarit.is/publication/2053

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.