Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Side 7
Fréttir frá Tafifélagi Reykjavíkur
Vel skipulagt
Skákæfingar fyrir börn og
unglinga hafa verið haldnar
íTaflfélagi Reykjavíkur í
áratugi. Skákæfingarnar hafa
sinn sess á laugardögum
og eru því iðulega kallaðar
, ,Laugardagsæfingarnar“.
Barna- og unglingastarf
félagsins er vel skipulagt og
árangursríkt. Skákþjálfun er í
höndum sterkra skákmanna
T.R. og fara æfingarnar fram
á heimavelli, í taflheimili og
skákhöll félagsins að Faxafeni
12.
Skákæfmgarnar eru
opnar fyrir alla krakka á
grunnskólaaldri þ.e.15 ára og
yngri. Einnig hafa nokkrir 5
ára krakkar tekið þátt og hefur
verið tekið vel á móti þeim.
Þetta er breitt aldursbil en
það hefur sýnt sig að aldurinn
skiptir ekki máli. Getulega
séð fer færni í skák ekki eftir
aldri og félagslega séð er gott
samband milli eldri og yngri
krakkanna í hópnum.
Þau sem sækja skákæfmgar
T.R. að staðaldri koma
frá hinum ýmsu hverfum
Reykjavíkur, allt frá Granda
vestur í bæ til Arbæjar austan
Elliðaár. Þar að auki tilheyra
nokkrir krakkar úr Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði
hinurn harða kjarna, sem sækir
skákæfmgarnar í T.R. reglulega
yfir allan veturinn.
Á laugardagsæfmgum er
blandað saman skákskýringum,
endataflsæfingum, skákþrautum
og taflmennsku. I öllum
þáttunum eru krakkarnir
virkir. Það ríkir góður andi á
æfmgunum og mikil áhersla er
lögð á að krakkarnir læri góða
skákhegðun við skákborðið, á
skákstað og séu góðir félagar,
hvort sem skákirnar enda með
vinning,jafntefli eða tapi.
A skákæfmgunum koma
bæði krakkar sem eru í fremstu
röð sinna jafnaldra á landsvísu
í skákinni, svo og byrjendur
og allt þar á milli. Síðustu
skákæfmgar hverrar annar,
þ.e. haust -og vorannar, eru
uppskeruhátíðir og þá eru
veittar viðurkenningar fyrir
ástundun og árangur yfir hvora
önn fyrir sig.
Skákæfingarnar i T.R. eru
stökkpallur fyrir krakka sem
vilja tefla meira! Taflfélag
og árangursríkt barnastarf
Reykjavíkur heldur margvísleg
skákmót yfir vetrartímann
og flest þau eru aðgengileg
fyrir börn og unglinga.
Þannig fá þau dýrmæta
reynslu í kappskákmótum
og hraðskákmótum á þeirra
heimavelli, í félagsheimili T.R.
I vetur verður boðið upp á
sér skákæfmgar fyrir stelpur á
öllum aldri kl. 11.30 - 13.30.
Þar geta allar stelpur frá og
með 5 ára aldri lært að tefla.
Þetta verða æfingar fyrir
allar kynslóðir kvenna og þvi
eru allar mömmur, ömmur,
frænkur og vinkonur boðnar
velkomnar að taka þátt í
skákæfmgunum.
Hinar hefðbundu
Laugardagsæfmgar fyrir bæði
stráka og stelpur 15 ára og
yngri (fædd 1997 og síðar) eru
svo kl. 14.-16. Skákþjálfarar í
vetur verða þau Torfi Leósson,
Daði Omarsson og Sigurlaug
Regína Friðþjófsdóttir.
Laugardagsæfmgarnar
eru fastur punktur i tilveru
allra skákkrakka í T.R.
Félagsskapurinn er góður og
skemmtilegur. Þau koma með
bros á vör, tefla af einbeitingu
og áhuga og þroska um leið
sína skákhæfileika.
Það er gott og garnan að
teflaíT.R.!
Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir
Formaður Taflfélags
Reykjavíkur
„Ungur og
vitlaus ... og
hélt með
Spassky“
Einvígi aldarinnar markaði
dýpri spor í íslenska skáksögu
en nokkur annar viðburður fyrr
og síðar. Það magnaði mjög þann
skákáhuga sem vaknað hafði hjá
mér í aðdraganda einvígisins.
Eg var aðeins níu ára gamall en
fylgdist mjög vel með einvíginu í
fjölmiðlum. Fór reyndar bara á eina
skák með föður mínum. Það var
ekki seinna vænna því þetta var 21.
og síðasta skákin sem Fischer vann
svo eftirminnilega. Ég var ungur
og vitlaus á þessum tíma og hélt
með Spassky, líklega sakir áhrifa frá
móður minni sem hafði oft orð á
því hve myndarlegur hann væri! Hin
mikla aðdáun mín á Fischer kom til
síðar eftir að ég hafði komist til vits
og ára og náð þeim skákþroska sem
þurfti til að skynja ótrúlega snilligáfu
hans á skákborðinu. I dag get ég ekki
hugsað þá hugsun til enda hvernig
allt hefði farið ef Bobby hefði ekki
unnið einvígið eða hann hætt í fússi
eftir 2. skákina.
—fóhann Hjartarson
Jóhann Hjartarson tefldi í flórðungsúrslitum um heims-
meistaratitilinn, og er stigahæsti skákmaður
íslands frá upphafi.
Sumarið "72
/
Eg var 11 ára gamall þetta sumar
og var í Laugardalshöllinni
á 1. skákinni, sem virtist ætla að
sigla lygnan sjó í jafnteflishöfn.
Þegar Fischer drap peð á h2 varð
andrúmsloftið skyndilega rafmagnað.
Meira að segja ég sá að biskupinn
gat lokast inni. Ég fékk áhuga á skák
á þessu augnabliki.
Einvígið hafði mikil áhrif á mig.
Ég lærði mannganginn 6 ára en fór
ekki að tefla að ráði fyrr en sumarið
'72. Fyrsta mótið sem ég tók þátt í
var HaustmótTaflfélags Reykjavíkur
sama ár.
Ég var eins og þjóðin, hélt með
Spassky í upphafi en hreifst smám
saman með Fischer og tiktúrum
hans, eða öllu heldur þrátt fyrir þær.
—Jón L. Arnason
Jón L. Árnason varð heimsmeistari sveina í skák árið
1977, þegar hann var aðeins 16 ára. Hann varð stórmeis-
tari 9 árum siðar og myndaði besta landslið íslands
ásamt Jóhanni Hjartarsyni, Margeir Péturssyni
og Helga Ólafssyni. 7