Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Side 9

Afmælismót aldarinnar - 01.09.2012, Side 9
Hrafn Jökulsson fjallar um Friðrik Ólafsson: r An hans hefði þetta aldrei gerst Það gerðist ekki af sjálfu sér að Island yrði vettvangur fýrir sögufrægasta skákeinvígi allra tíma. Arið 1972 voru ekki nema 28 ár síðan Island varð sjálfstætt ríki. Hingað kornu fáir ferðamenn og Björk var bara 7 ára, drengirnir í Sigurrós varla fæddir. Sjónvarpið var í svarthvítu. Það var verið að byggja i Breiðholtinu. En það voru ósköp fáir að pæla í íslandi. Nokkrir einstaklingar höfðu hinsvegar náð afburðaárangri á sínu sviði — það gladdi íslendinga ógurlega þegar Laxness fékk Nóbelsverðlaunin 1956, en höfðum við þá uppáskrift sænsku akademíunnar að hér byggi gáfuð þjóð. Þessvegna fyllti það Islendinga ekki síður stolti, þegar fréttir tóku að berast af því í kringum 1950 að ungur og hæglátur piltur, Friðrik Olafsson að nafni, væri efnilegasti skákmaður sem íslendingar hefðu eignast. Það er sérstakt rannsóknarefni hvernig Friðrik tókst á undraskömmum tíma að komast í hóp fremstu skákmanna heims. Jújú, skáklífið var að mörgu leyti blómlegt, en á æfmgum voru þungbúnir miðaldra menn í miklum meirihluta. Það þurfti meira að segja að greiða um það atkvæði hvort 11 ára gamall Friðrik fengi að vera með í skákmóti fullorðinna. Sumum keppendum fannst hugmyndin alveg fráleit — og höfðu víst mestar áhyggjur af því að pjakkurinn yrði niðurbrotinn í mótslok. Það fór nú á aðra leið, og sá sem hafði haft mestar áhyggjur af þátttöku Friðriks litla var auðvitað gjörsigraður! Friðrik varð fyrst íslandsmeistari 1952 og síðan í öll þau sex skipti sem hann tók þátt í Skákþingi íslands. Hann varð Norðurlandameistari og háði um árabil mikla glímu við danska meistarann Bent Larsen, sem tefldi á fyrsta borði heimsliðsins gegn Sovétmönnum 1970. Friðrik var útnefndur stórmeistari 1958, en þá voru aðeins nokkrir tugir sem gátu skartað því sæmdarheiti — nú nálgast tala stórmeistara óðfluga 2000! Friðrik kom íslandi á skákkort heimsins. Hann var eftirsóttur á skákmót, því bæði er hann þekktur fyrir herramennsku, góðan húmor og yfirburða þekkingu á skáksögunni. Það er unun að heyra Friðrik segja frá því hvernig skákin ferðaðist frá Indlandi fyrir hálfu öðru árþúsundi, og barst síðan með Persum og aröbum til Evrópu... En eitt er víst: Ef Friðrik Olafsson hefði ekki verið búinn að koma íslandi á skákkort heimsins er alveg bókað að einvígið mikla 1972 hefði ekki verið haldið í Reykavík. Það hefði einfaldlega engum dottið það í hug. En allir þekktu Friðrik Olafsson og hann þekkti bæði Fischer og Spassky. Hin stórhuga stjórn Skáksambands Islands á þessum árum, undir forystu Guðmundar G. Þórarinssonar vann þrekvirki, sem lengi verður í minnum haft. Og úr varð langstærsti viðburður sem haldinn hefur verið á íslandi. Um einvígið hafa verið skrifaðar 150 bækur. Um það hafa verið gerðir ótal sjónvarpsþættir. Það er sífellt verið að fjalla um þetta einvígi, skoða það frá nýjum hliðum. Eg læt sérfræðingum eftir að reikna út „markaðslegt gildi“ þess, en með hliðsjón af öllu framansögðu held ég að við getum útnefnt Friðrik Olafsson einhvern verðmætasta og mikilvægasta Islending 20. aldar. Ráðgátan Bobby Fischer Hue Yifan heims- meistari kvenna við gröf Fischers. Fyrsta skákin í Einvígi aldarinnar hófst í Laugardalshöll 11. júlí 1972. Síðasta skákin, sú tuttugasta og fyrsta, hófst 31. ágúst en var sett í bið eftir 40 leiki. Daginn eftir gafst Spassky upp án frekari taflmennsku. Fischer sigraði 12!4-8!4 og varð ellefti heimsmeistarinn í skák. Eftir þetta hvarf Fischer af sjónarsviðinu. Hann gekk á hönd sértrúarsöfnuði í Bandaríkjunum, neitaði öllum tilboðum um taflmennsku og afsalaði sér heimsmeistaratitlinum 1975, frekar en tefla einvígi við Anatoly Karpov. Mesti skákmeistari allra tíma lét sig hverfa! Árið 1992 skaut Fischer upp kollinunt í Júgóslvíu, sem var að liðast í sundur í borgarastyrjöld. Þarna tefldi Fischer við sinn ganila vin og keppinaut, Boris Spassky, í ferðamannaparadísinni Sveti Stefan. Með þessu braut Fischer samskiptabann Bandaríkjastjórnar við Júgóslavíu, og varð nú eftirlýstur flóttamaður. Hann bjó um hríð í Belgrad og Búdapest, flutti sig þaðan til Asíu og var löngum á Filippseyjum ogThailandi. Hann var handtekinn með útrunnið vegabréf á flugvelli í Japan, og við blasti að hann yrði framseldur til Bandaríkjanna, þar sem rnargra ára fangelsisvist gat beðið hans. Davíð Oddsson þv. utanríkisráðherra skarst í leikinn, og margir vinir Fischers á íslandi lögðu allt í sölurnar til að bjarga honum. I þeim hópi voru m.a. Einar S. Einarsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Garðar Sverris, Magnús Skúlason og Sæmundur Pálsson. Fischer átti róleg æviár á tslandi. í nýrri bók Helga Olafssonar, Bobby Fischer Cornes Home, er frábær lýsing á lífi hans hér, með mörgum óborganlegum sögum. Ekki sakar að einn besti og stílfærasti skáksnillingur íslendinga heldur um pennann. Bobby Fischer hvílir í kirkjugarðinum að Laugardælum. 9

x

Afmælismót aldarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælismót aldarinnar
https://timarit.is/publication/2053

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.