Skák


Skák - 01.02.1998, Side 21

Skák - 01.02.1998, Side 21
Heimsmeistaramótið í Groningen Ágúst Sindri Karlsson íslensku keppendurnir þrír f.v. Helgi Áss Grétarsson, Margeir Pétursson og Jóhann Hjartarson. Keppni um heimsmeistaratitil- inn í skák er orðin rúmlega 100 ára gömul og á þeim tíma hefur keppnin tekið litlum breyt- ingum. Segja má að eina um- talsverða breytingin hafi verið um og eftir stríð þegar Alþjóða skáksambandið (FIDE) eign- aðist titilinn, en fram að þeim tíma hafði hann verið í eigu heimsmeistarans hverju sinni. A grundvelli þessa eignaréttar hefur FIDE haldið heimsmeist- arakeppni óslitið frá 1948, allt þar til árið 1993, þegar Kasparov og Short klufu sig frá FIDE og stofnuðu sérstakt skák- samband PCA. Frá þeim tíma hefur keppni um heimsmeis- taratitilinn verið ein hringavit- leysa. Síðustu ár hafa í raun verið tveir heimsmeistarar í skák, Karpov sem FIDE meist- ari og Kasparov sem PCA meistari. Þar sem PCA er félagsskapur án nokkurrar starfsemi væri eðlilegast að líta þannig á að Karpov væri hinn raunverulegi heimsmeistari. Málið er hins vegar langt frá því að vera svo einfalt og í reynd hefur Kasparov venjule- ga verið talinn hinn raun- verulegi heimsmeistari. Þessu til staðfestingar getur greinar- höfundur vitnað til reynslu sinnar á opnunarhátíð Olym- píumótsins í Armeníu árið 1996, þegar Kirsan llyumz- hinov, forseti FIDE, kynnti Kasparov sem heimsmeist- arann í skák og lét í engu getið um FIDE meistarann. Bein afleiðing af þessari óvissu hefur verið að undankeppni fyrir heimsmeistaramót hefur legið niðri um nokkurn tíma. Til að mynda höfðu þeir skák- menn sem áttu rétt til keppni á millisvæðamótum þurft að bíða í voninni í allt að þrjú ár og voru í raun flestir farnir að afskrifa keppnisréttinn. Ekki bætti úr skák að forseti FIDE, nefndur Kirsan Ilyumzhinov, hafði átt frumkvæði að því á síðasta Olympíumóti að um- bylta heimsmeistaramótinu. Hugmynd Kirsans var að tefla heimsmeistaramótið með út- sláttarfyrirkomulagi, með sama hætti og tíðkast á tennismótum, og ekki nóg með það heldur lofaði hann einnig 5 milljón dol- lara verðlaunapotti. Þessi him- inháa verðlaunafjárlræð varð þess valdandi að menn voru almennt vantrúaðir að mót þetta færi fram. A miðju ári 1997 kom yfirlýsing frá FIDE að lítt þekkt rússneskt olíufélag hefði tekið að sér að greiða verðlaunaféð. Þessi yfirlýsing varð ekki til þess að auka traust manna á að mótið færi fram. FIDE hélt hins vegar sínu striki og boðaði þá sem rétt áttu til taflmennsku til hollenska bæjarins Groningen og skyldi taflmennska hefjast 9. desem- ber 1997. Stóra spurningin langt fram eftir móti var hins SKÁK19

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.