Skák


Skák - 01.02.1998, Page 29

Skák - 01.02.1998, Page 29
1. d4 Rf6 2. c4e6 3. Rc3 d5 4. e3 c6 5. Rf3 Be7 6. Bd3 0-0 7. 0-0 dxc4 8. Bxc4 b5 9. Bd3 a6 10. b3 Rbd7 11. Bb2 Bb7 12. Hcl c5 13. Bbl Da5 14. Hel Hfd8 15. De2 Hac8 16. Re5 Rf8 17. dxc5 Bxc5 18. Rd3 Bd6 19. f4 Rg6 20. Hflb4 21. Ra4 Re4 22. Bd4 Rc3 23. Hxc3 Bxc3 24. Bb6 Db5 25. Bxd8 Hxd8 26. Rxc3Dc6 27. Ra4 Ba3 28. Rdb2 Rh4 29. Rc4 Rxg2 30. e4 Rh4 31. Rxa3 Dd6 32. Rc4De7 33. Hdl f5 34. Hxd8 Dxd8 35. exf5 Dd4+ 36. De3 Ddl+ 37. Kf2e5 38. Be4 Bxe4 39. Dxe4 h5 40. Rc3 Dcl 41. Dxe5 Dc2+ 42. Re2 Rxf5 43. De8+ Kh7 44. Dxh5+ Kg8 45. De8+Kh7 46. Re3 Rxe3 47. Dxe3 Dxa2 48. Kg3 Dbl 49. Rcl Dg6+ 50. Kf2 Dc2+ 51. Re2a5 52. Kf3 Ddl 53. h4 Dhl+ 54. Kg4 Ddl 55. Df3 Dd7+ 56. Kg3 Dd2 57. De4+ Kh8 58. Rd4 Ddl 59. De3 Dbl 60. Rf3 Gefið Með þetta góða veganesti fór hópurinn út að borða á laug- ardagskvöldið og gera lauslega könnun á samkvæmislífi og pöbbamenningu Þórshafnar. Matur og drykkur virtist á ívið lægra verði hér heldur en heima, en hinsvegar gekk okkur ekki svo greiðlega að finna út hverjir voru helstu dansstaðirnir, enda fer víst hluti af samkvæmislífinu enn fram í lokuðum klúbbum sem er arfur frá þeim tíma er vínsala var ekki frjáls í Færeyjum. Ekki var þó örgrannt um að þessi "fríði" flokkur íslenskra skák- manna vekti nokkra athygli og hlóðust á menn ýmsar nafn- giftir. Þór Valtýsson fékk sæm- darheitið "Very Old Champion" frá Færeying einum er var nokkuð við skál og stendur Þór á því fastar en fótunum að það þýði "heiðursstórmeistari". Yngri mennirnir þóttu nokkru frjálslegri í fasi og voru meyjar staðarins helst á því að þeir væru sjómenn frá Kollafirði! En aftur að skákinni. Á sunn- udaginn tók Sámal Christian- sen við dómgæslu, en hann ættu þeir að þekkja sem voru í keppninni 1989 sem þáverandi formann Taflsambands Fær- eyja. Mikill glímuskjálfti var í liðum beggja og ljóst að stefndi í æsispennandi keppni, sem og varð. Þeir Steintór, Martin og Haldur voru ekki með, sem gerði það að verkum að Flóvin færðist upp á sjötta borð og Bernhard á það áttunda, en Herluf og John Jakobsen komu nýir inn á sjöunda og níunda borð auk Carl Eli á það tíunda. Eftir miklar sviptingar lauk viðureigninni með færeyskum sigri, 6-4, sem dugði þeim þó ekki í heildina því Islendingar voru með betri útkomu á efstu borðum. Einstök úrslit voru: Heildarúrslit 10-10, eða eins og sagði í Dimmalætting daginn eftir, "Föroyar fingu jafnleik - men hinir tóku steypið". Þegar líða tók á taflið í síðari umferð var ljóst að skák Jóns Garðars gegn John Arni myndi ráða úrslitum í keppninni, á þann veg að Jón Garðar varð að vinna því jafntefli hefði dugað Færeyingum til sigurs. Vakti skákin því mikla athygli og fylgdust menn spenntir með. I 39. leik hafnar Jón Garðar því að þráleika og kreisti fram vinning af sinni alkunnu seiglu. John Arni gefst upp þegar drottingartap eða mát blasir við. Hvítt: John Ami Nilssen Svart: Jón Garðar Viðarsson 1. d4 Rf6 2. c4e6 3. g3 Bb4+ 4. Bd2 De7 5. Rf3 b6 6. Bg2 Bb7 7. 0-0 Bxd2 8. Rbxd2 0-0 9. Dc2d6 10. e4e5 11. d5 c6 12. Hfcl Hc8 13. Ddl Rbd7 14. Rel b5 15. dxc6 Bxc6 16. cxb5 Bxb5 17. a4Bc6 18. Rc4 Bxe4 19. Rxd6 Hxcl 20. Hxcl Bxg2 21. Rxg2Rb6 22. a5 Rdb5 23. Rc4 h5 24. Del e4 25. Rg3e3 Hb8 26. Rxd5Rxd5 27. Hdl Rf6 28. Dd2h4 29. Df4 Hd8 Einstök úrslit voru sem hér segir ísland Færeyjar Jón Garðar John Arni 1-0 Rúnar Jens Christian y2 - y2 Gylfi Torkil 1 -0 Þór Torbjörn 0-1 Sigurjón Eyðun 0-1 Smári Flóvin y2 - y2 Sigurður E. Herluf y2 - y2 Gunnar Bernhard 0-1 Sigurður I. John 0-1 Sverrir Carl Eli ’/2 - y2 4-6 SKÁK 27

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.