Skák


Skák - 01.12.2002, Side 6

Skák - 01.12.2002, Side 6
Helgi Óiafsson Skák mánadarins Perlan á Selfossi Alþjóðlega Mjólkurskákmótið á Selfossi, haldið af hinu mjög- siglandi taflfélagi Hróknum með Hrafn Jökulsson í broddi fylkingar, var hluti skákhátíðar í Flóanum sem hafði að mark- miði öðrum þræði að halda upp á 150 ára afmæli Barnaskólans á Eyrarbakka. Þetta var glæsileg framkvæmd og aðstandendum til mikils sóma. Mótið hófst nokkrum dögum eftir fyrri hluta Islandsmóts taflfélaga í B&L húsinu. Rétt eins og þegar minningarmót um Jóhann Þóri fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í fyrra gat hluti þeirra útlend- ingahersveitar, sem nú orðinn allt að því sjálfsagður hluti Deildakeppninnar, haldið á- fram taflmennsku. Mótstaður- inn var hið nýja og glæsilega Hótel Selfoss. I A-flokki sem er til umræðu hér völdust sterkustu stórmeistarar Bosníu um langt árabil þeir Ivan Sokolov, sem um þessar mundir gerir atlögu að 2700 Elo-stiga múrnum, Predrag Nikolic sigur- vegarinn frá Reykjavíkurskák- mótinu 1986, Pavel Tregubov sem ég hygg að hafi teflt í fyrsta skipti hér á landi, Luke McShane einn efnilegasti skák- maður sem Englendingar hafa eignast og líklegur arftaki Nigel Short og Michael Adams, Tékk- arnir Zbynek Hracek og Tomas Oral auk undirritaðs, Hannesar Hlífars Stefánsssonar, Björns Þorfinnssonar og Stefáns Krist- jánssonar. Allir erlendu stór- meistararnir eru þrautreyndir at- vinnumenn í skák og harðir keppnismenn. Það var alveg ljóst frá byrjun að mótið yrði erfitt enda teflt á hverjum einasta degi og tímafyr- irkomulagið býsna kröfuhart, 40 leikir á 2 klst. og klukkutími til að ljúka skákinni. Umgjörðin á Hótel Selfossi var vel hönnuð, skáksalurinn skemmtilega skreyttur myndum úr fórum eins dómarans Einars S. Einars- sonar, skákirnar fóru fram á raf- eindaborðum og var þaðan varp- að beint á Internet chess club. Félagar Hrafns, Róbert Harðar- son og Ingvar Þ. Jóhannesson unnu sitt starf með miklum á- gætum og Hróksmaðurinn Har- aldur Blöndal setti sterkan svip á mótið með nærveru sinni. Hann stjórnaði einnig hraðskákmóti sem haldið var strax eftir mótslit (eitthvað var niðurröðunin í því hraðskákmóti einkennileg - þó ekki við Harald að sakast - því sigurvegarinn Helgi Ass Grétars- son teíldi að mér sýndist nær eingöngu við Flóamenn sem margir hverjir eru vissulega ban- eitraðir hraðskákmenn eins og t.d. Magnús Gunnarsson en fyrr má nú rota en dauðrota; (þarna voru nú einnig ríllega 10 stór- meistarar einnig með). Þetta verkefni allt hefði ekki gengið svo vel ef heimamanna hefði ekki notið við. Vart er á nokkurn hallað þó fyrst sé nefnt nafn Þor- láks Helgasonar fræðslustjóra Árborgar sem mun hafa átt hug- myndina að mótshaldinu. Björn Helgason sá um tæknimál á skákstað í samvinnu við tölvu- snillinginn Ingvar Þór og sér- stakur ljósmyndari var ráðinn ungur piltur, sem áreiðanlega á eftir að hasla sér völl á sviði blaðamennsku, Egill Bjarnason. Flestir keppendur í A-flokknum fengu hótelgistingu á Selfossi og voru aðstæður þar afbragðs góð- ar. Bragi Þorfinnsson einn skák- manna í A-riðlinum mátti þó lúta því að aka rösklega 100 km á mótsstað dag hvern og hefði verið eðlilegra að hann fengi 290 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.