Skák - 01.12.2002, Blaðsíða 10
vera að ég hafi treyst útreikning-
um Ivans sem hlaut að hafa séð
leikinn. Riddarafórnin er hins-
vegar ekki endilega rökrétt nið-
urstaða sviptinganna á undan
og var ég farinn að búa mig
undir tæknilega erfiða stöðu þar
sem ég taldi möguleika svarts
vera betri. Þannig fannst mér
líklegt að kæmi til uppskipta á
hrókum. Eftir skákina fór fram
mikil umræða hvort ég hefði
spillt henni með því að missa af
þessari leið. Það verður hver að
dæma fyrir sig. Hinsvegar fer í
hönd sá kafli skákarinnar sem ég
er stoltastur af.)
25. Bxe5
(Ivan ákveður að stofna til upp-
skipta eins og ég hafði hálft í
hvoru búist við. Það er skiljanegt
að hann vilji ekki eiga -Re4+
möguleikann hangandi yfir sér.)
26. - Hxe5 26. Hd8 He2+ 27.
Kfl Hxd8 28. Kxe2 a5!
(Það virtust ekki margir gefa
þessum leik gaum og sumir op-
inberuðu hreinlega skilnings-
leysi sitt á stöðunni. Þannig full-
yrti Elvar nokkur Guðmunds-
son að Ivan hefi einungis tapað
vegna þess að hann hefði verið
að reyna að vinna steindauða
jafnteflisstöðu. Ivan var vita-
skuld ljóst að hvítur er að berjast
fyrir jafntefli; svartur getur ef
honum sýnist svo stillt hróknum
upp á d4 og riddaranum á d7
og ætti mönnum þá kannski að
skiljast að hvítur getur aldrei
gert sér beinar grillur um vinn-
ing. Ymsar aðrar þvergirðingar
(dlraun til að þýða enska hug-
takið ,,fortress“) má byggja upp
svo sem að hafa hrókinn á
6-reitaröðinni og finna síðan
heppilega reiti fyrir riddarann.
Þetta er auðvelt í framkvæmd ef
hvítur lætur hjá líða að brjóta
upp með b2-b4.)
29. Db3 Hd6 30. Db5 g5 31.
Da6
(Ivan telur hagsmunum sínum
best borgið með því að kom
drottningunni í virka stöðu að
baki víglínunnar. En þetta gefur
svarti tíma til að endurskipu-
leggja lið sitt og beina spjótum
að veika blettinum í stöðu hvíts,
f3-peðinu.)
31. - Rh5 32. Dc8+ Kg7 33.
Dc7 Rf4+ 34. Kfl Hf6
(Það er kominn vísir að vinn-
ingsáætlun: Rg6-h4xf3 o.s.frv.
35. h4! g4
(Einnig kom til greina að leika
35. - gxh4 en meiri ógn er af
frelsingja á f-línunni.)
36. Kgl
(Vitskuld ekki 36. fxg4 Re6+ og
drottningin fellur.)
36. - gxf3 37. Kfl f2 38. De5
(Hvíti kóngurinn getur sig
hvergi hrært sem þýðir að ekki
þarf annað til að koma en ridd-
araskák og þá fellur tjaldið. Ein-
hvern tímann í góðu tómi ætla
ég að láta tvö tölvuforrit tefla
einhverjar af þessum stöðum til
enda
38. - Rg6 39. Dg3 h5 40. Dg5
Hf4 41. b3?
(Ég veit ekki hvar var hægt að
endurbæta taflmennsku svarts en
hér var betra að leika 41. Dxh5
Hxh4 42. Dd5 Hf4 og enn er
róðurinn þungur fyrir hvítan þó
uppskipti á h-peðum hafi aukið
jafnteflismöguleika hans. Nú
þegar tímamörkunum var náð
þurfti ég að búa til nýja áætlun.
Skarpasta leiðin og sú sem ég
valdi fólst m.a. í því að gefa öll
peðin á drottningarvæng. Þetta
kostaði milda útreikninga en
þegar ég lék 33. leikinn var ég
fullkomlega sannfærður um að
ég væri á réttri leið.)
41. - Hxh4 42. Dd8
(Eftir 42. Kxf2 Hf4+ og 43. - h4
á svartur að vinna án teljandi
erfiðleika. Það felst fyrst og
fremst í því að þróa peðastöðuna
á kóngsvæng hægt og bítandi.
Hvítur hefur ekkert mótspil svo
heitið geti.)
42. - Hf4 43. Dxb6 Hf5!
(Besti leikurinn í skákinni.
Elrókurinn færi augnabliksfrið
og riddarinn kemst á valdaðan
reit á g4 þar sem hann hótar
skákum á h2 og fl. Þetta virðist
einfalt en tók mikinn tíma því ég
var ekki 100% viss um að enda-
taflið þar sem riddarinn þarf að
kljást við peðin þrjú væri unnið á
svart. Þess vegna varð ég sjá fyrir
„hliðar-valkosturinn“ 45. - Kg6.)
44. Dxa5 Re5 45. Dxc5 Kg6!
(Auðvitað liggur beinast við að
leika 45. - Rg4 46. Dxf5 Re3+
47. Kxf2 Rxf5 en þá kemur 48.
a4! Eg var ekki með tölvuforrit
mér til aðstoðar eins og þessir
ágætu spekingar sem eftir skák-
ina bentu á einhverja vinnings-
leið að öllum líkindum ættaða
frá Fritz sem byggir á því að leika
294
S K A K